Fréttablaðið - 01.05.2006, Blaðsíða 2
2 1. maí 2006 MÁNUDAGUR
SVEITARSTJÓRNARKOSNINGAR Sjálf-
stæðisflokkur fengi hreinan
meirihluta í borgarstjórn miðað
við niðurstöður könnunar Gallup
á fylgi flokkanna í borginni sem
Ríkisútvarpið greindi frá í gær.
Könnunin var gerð á tímabilinu
30. mars til 25. apríl.
Sjálfstæðismenn bæta tveimur
prósentum við fylgi sitt frá síðustu
könnun fyrir mánuði síðan og eru
með 49 prósent. Samfylkingin
missir fjögur prósent og mælist nú
með 32 prósent. Vinstri grænir eru
með þrjú prósent eins og fyrir
mánuði síðan og Framsóknar-
flokkurinn mælist áfram með þrjú
prósent.
Frjálslyndi flokkurinn bætir
við sig tveimur prósentum og er
með fimm prósent nú.
Miðað við þessar tölur fengi
Sjálfstæðisflokkurinn átta borgar-
fulltrúa af fimmtán og þar með
hreinan meirihluta. Samfylkingin
fengi fimm eða sex borgarfulltrúa
og Vinstri grænir einn eða tvo.
Hvorki Framsóknarflokkur og
Frjálslyndir myndu ná inn manni.
Í könnuninni voru niðurstöður
greindar niður eftir kyni og kom í
ljós að Sjálfstæðisflokkur og
Framsóknarflokkur njóta meira
fylgis hjá körlum en konum.
Þessu er öfugt farið hjá Samfylk-
ingu og Vinstri grænum en svipað
kynjahlutfall er hjá Frjálslynda
flokknum. - sdg
KOSNINGAKAFFI F-LISTANS
1. MAÍ
kl. 14-17 í Aðalstræti 9.
Þórir Baldursson leikur ljúf lög.
LÖGREGLA Karlmaður var handtek-
inn á laugardag með talsvert
magn af fíkniefnum í fórum
sínum. Bæði kannabisefni og
amfetamín fundust á manninum.
Lögreglan í Kópavogi segir
líklegt að efnið hafi verið ætlað
til sölu.
Maðurinn er góðkunningi lög-
reglunnar og var honum sleppt að
lokinni skýrslutöku. Málið telst
upplýst.
Einnig fannst lítilræði af fíkni-
efnum í tveimur bílum við venju-
bundið eftirlit aðfaranótt sunnu-
dags.
- sdg
Fíkniefnamál í Kópavogi:
Þrír teknir
með fíkniefni
Bílvelta við Borgarfjarðarbrú
Ökumaður velti bíl sínum rétt sunnan
við Borgarfjarðarbrú á föstudag. Þrír
farþegar voru í bílnum og fóru þeir í
læknisskoðun á Heilsugæslunni í Borg-
arnesi. Bíllinn er mikið skemmdur.
LÖGREGLUFRÉTTIR
LÖGREGLA Konan sem ók á ofsahraða
í gegnum borgina á laugardags-
kvöld reyndist ökuréttindalaus og
hafði stolið pallbílnum sem hún ók.
Konan sinnti ekki ábendingum
lögreglu um að staðnæmast og var
henni veitt eftirför sem endaði á
hringtorginu við Ánanaust.
Lögreglan þurfti að brjóta rúðu til
að komast að konunni, sem veitti
mótþróa við handöku og var leidd
burt í handjárnum.
Tveir gangandi vegfarendur
urðu næstum fyrir pallbílnum og
skemmdust tveir lögreglubílar sem
konan ók á. Einn lögreglumaður fór
á spítala með hálshnykk eftir
áreksturinn. - sdg
Glæfraakstur í Reykjavík:
Próflaus á
stolnum bíl
SKEMMDUR LÖGREGLUBÍLL Konan ók á tvo
lögreglubíla áður en hún var stöðvuð.
FRÉTTABLAÐIÐ/ÓMAR
Missti allt þegar hús
brann til kaldra kola
Íbúðarhúsið Bergholt við Langanesveg 17a á Þórshöfn brann til kaldra kola
aðfaranótt sunnudags. Eigandi hússins, Skúli Jakobsson, missti allt sitt í brun-
anum. Hann á bara fötin sem hann stendur í en sér mest eftir ljósmyndunum.
EUROVISION Heimsóknir á vefsíðu
listaháskólanemans og ljósmynd-
arans Davids Terrazas hafa marg-
faldast eftir að tilkynnt var að
Silvía Nótt keppti fyrir Íslands
hönd í Eurovision-söngvakeppn-
inni. Fjölmargir heimsækja síðuna
utan úr heimi, en á henni er fjöldi
mynda af súperstjörnunni sem
fólk sækir í.
„Þessi síða átti fyrst og fremst
að snúast um mig og verk mín en
hún hefur heldur betur tekið á sig
aðra mynd eftir að Silvía varð
svona vinsæl,“ segir David og hlær:
„Hátt í fimmtíu nýir utan úr heimi
koma inn á síðuna hvern dag.“ Þeir
bætist við hundruð heimsókna
Íslendinga á síðuna: „Flestir koma í
gegnum erlendar spjallsíður um
Eurovision-keppnina.“
David starfar með Silvíu og
hefur tekið myndir af henni frá
upphafi. Hann fylgdi henni eftir í
fyrstu þáttaröðinni á Skjá einum,
tók ljósmyndir sem meðal annars
eru notaðar í auglýsingar en einnig
myndir sem prýða nýútkomna
ljóðabók hennar. „Silvía hefur
breyst ótrúlega. Ég hef elskað
hana frá upphafi og er ekki hissa á
því hversu langt hún er komin.“
Spurður hvort breytingin sé til
hins betra segir David: „Það er
svo ótrúlega margt heillandi við
hið upphaflega útlit hennar en
dívu-lúkkið er líka flott. Hún er
hin íslenska Madonna núna.“ - gag
DAVID VIÐ TÖLVUNA Fjölmargir heimsækja heimasíðuna hans Davids, á slóðinni: www.
davidterrazas.net, vegna mynda af Silvíu Nótt. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Heimasíða listaháskólanemans Davids Terrazas trekkir að:
Sóst eftir Silvíu Nótt á netinu
BRUNI „Ég á bara fötin sem ég
stend í,“ segir Skúli Jakobsson
eigandi íbúðarhússins Bergholts
við Langanesveg 17a á Þórshöfn
sem brann til kaldra kola aðfara-
nótt sunnudags.
Tilkynnt var um eldinn rúmlega
tólf og var slökkvilið Þórshafnar
fljótt á staðinn en illa gekk að
slökkva eldinn þar sem húsið er
gamalt og klætt að utan. Komst
eldurinn milli þils og veggja og
var því erfiður viðfangs. Það var
ekki fyrr en þak hússins var rofið
með stórri vinnuvél að slökkvi-
starfið fór að bera árangur.
Slökkviliðsmenn voru á vakt fram
undir morgun þar sem neistar
tóku sig upp aftur og aftur. Varla
þarf að orðlengja að húsið er gjör-
ónýtt.
Skúli var að heiman þegar
eldurinn uppgötvaðist. Hann kom
að húsinu stuttu síðar og var það
mikið áfall. „Maður er bara í
sjokki,“ segir Skúli, sem keypti
húsið fyrir rúmu hálfu ári. Það er
gamalt, upphaflega byggt á þriðja
áratug tuttugustu aldar en var
mikið endurgert fyrir fáeinum
árum síðan. „Þetta er svipað og að
fá andlátsfrétt,“ segir Skúli og
dæsir. Eins og vill verða með fólk
í hans stöðu eru það ekki verald-
legu og dýru hlutirnir sem honum
er sárast um. „Ég sé mest eftir
myndum og minningum,“ segir
Skúli, sem er sjálfstætt starfandi
múrari, en bruninn kemur sér
einnig mjög illa vinnu hans vegna
enda eyðilagðist mikið af bók-
halds- og tölvugögnum.
Skúli á þó góða að og segist
hafa fengið mikinn og góðan
stuðning frá vinum og fjölskyldu.
Hann býr sem stendur hjá vinum
sínum en stanslaus straumur
hefur verið af fólki til hans og
síminn hefur ekki stoppað að hans
sögn.
Um framhaldið hefur Skúli
lítið að segja. Hann telur sig vel
tryggðan þó þau mál eigi eftir að
skýrast betur. Hann getur ekki
ímyndað sér hvað hafi orsakað
eldinn og er málið til rannsóknar
hjá lögreglu. solveig@frettabladid.is
BERGHOLT Íbúðarhúsið við Langanesveg
17a á Þórshöfn er gjörónýtt. Húsið var
byggt á þriðja áratug síðustu aldar en var
mikið endurgert fyrir fáeinum árum.
MYND/GUÐJÓN GAMALÍELSSON
Ný Gallup-könnun á fylgi flokka í Reykjavík:
Hreinn meirihluti D-lista
TRÚMÁL Ásatrúarfélagið hefur
höfðað mál gegn dómsmálaráð-
herra og fjármálaráðherra og vill
fá viðurkenndan rétt sinn til sömu
fjárveitinga úr ríkissjóði og þjóð-
kirkjan fær.
Ríkið greiðir öllum trúfélögum
ákveðna upphæð af tekjuskatti en
þjóðkirkjan fær því til viðbótar
framlag í kirkjumálasjóð upp á
rúmar 180 milljónir á þessu ári og
tæpar 300 milljónir í jöfnunarsjóð
sókna.
Ásatrúarfélagið telur þessa
mismunun á milli trúfélaga brot á
jafnræðisreglu stjórnarskrárinn-
ar. - sdg
Ásatrúarfélagið í mál við ríkið:
Vill jafnmikið
og þjóðkirkjan
ÞJÓÐARPÚLS GALLUP
Apríl
Mars49
%
47%
32%
36%
11%11%
3%3%
Sjá
lfst
æð
is-
flok
kur
Sam
fylk
ing
Vin
stri
græ
nir
Fra
ms
ókn
ar-
flok
kur
3%5%
Frjá
lsly
ndi
flok
kur
SPURNING DAGSINS
Sigurður, eruð þið ekki komn-
ir á dálítið hálan ís?
„Jú, enda erum við bestir þar.“
Íslenska landsliðið í íshokkíi varð heims-
meistari í þriðju deild heimsmeistaramótsins
um helgina og keppir því í annarri deild
að ári. Sigurður Sveinn Sigurðsson er ritari
íshokkísambandsins.
LÖGREGLA Maður rotaðist þegar
hann var sleginn í höfuðið á
Hverfisgötunni á sjötta tímanum
á sunnudagsmorgunn. Maðurinn
var fluttur á sjúkrahús og var
meðvitundarlaus í nokkurn tíma.
Fjöldi vitna var að árásinni en
tildrög árásarinnar liggja ekki
fyrir. Lögregla veit hver árásar-
maðurinn er og hans er nú leitað.
Sá sem fyrir árásinni varð er
ekki alvarlega slasaður að sögn
lögreglunnar í Reykjavík. - sdg
Árás á Hverfisgötu:
Maður rotaður
í miðbænum
NEPAL, AP Girija Prasad Koirala
sór í gær embættiseið sem nýr
forsætisráðherra Nepal. Af því til-
efni hélt Koirala ræðu þar sem
hann hvatti uppreisnarher maó-
ista í landinu til að ganga að sátta-
borðinu.
Maóistar stjórna stórum hluta
landsins en þeir lýstu nýlega yfir
þriggja mánaða vopnahléi eftir að
konungur landsins, Gyanendra,
endurreisti þingið í kjölfar gífur-
legra mótmæla almennings í land-
inu.
Þau mótmæli kostuðu alls sex-
tán óbreytta borgara lífið en hinn
nýi forsætisráðherra vill nú líta
fram á veginn og berjast fyrir
frekari friði og lýðræði í landinu.
- sha
Nýr forsætisráðherra Nepal:
Vill semja við
maóista