Fréttablaðið - 18.05.2006, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 18.05.2006, Blaðsíða 6
6 18. maí 2006 FIMMTUDAGUR KJÖRKASSINN Ætlarðu að fylgjast með úr- slitaleik Arsenal og Barcelona í meistaradeildinni? Já 38% Nei 62% SPURNING DAGSINS Í DAG Telurðu að Silvía Nótt sé góð landkynning? Segðu þína skoðun á visir.is DÓMSMÁL Jónína Benediktsdóttir fer fram á fimm milljónir króna í miskabætur frá fyrrverandi rit- stjórum DV, þeim Mikael Torfasyni og Jónasi Kristjánssyni, vegna umfjöllunar blaðsins um einkalíf hennar. Var málið dómtekið í gær í Hér- aðsdómi Reykjavíkur en Jónína heldur því fram að blaðið hafi með umfjöllun sinni svert mannorð henn- ar og gert lítið úr persónu sinni. Fer hún enn fremur fram á þyngstu mögulega refsingu til handa hinum ákærðu, sem getur mest orðið eins árs fangelsi eða fésektir. - aöe VILL FIMM MILLJÓNIR Mál Jónínu Bene- diktsdóttur gegn fyrrverandi ritstjórum DV var tekið fyrir í dómssal í gær. Jónína Benediktsdóttir: Vill 5 milljónir í miskabætur DANMÖRK Hundrað og tíu þúsund Danir mótmæltu fyrirhuguðum breytingum á velferðarkerfinu á götum úti í gær. Voru kröfugöng- ur gengnar í fimm stærstu borg- um landsins. Skipuleggjendur mótmælanna voru ánægðir með þátttökuna samkvæmt fréttum danskra fjölmiðla, þrátt fyrir yfirlýst markmið þeirra um að mótmælendur yrðu rúmlega hundrað og fimmtíu þúsund. Flestir söfnuðust saman fyrir framan Kristjánsborgarhöll í Kaupmannahöfn, þar á meðal Helle Thorning-Schmidt, for- maður Jafnaðarmannaflokksins, en stjórnarflokkarnir hafa síð- ustu daga gagnrýnt þátttöku flokksins í skipulagningu mót- mælanna. Talsmenn flokkanna segja mótmælin engu breyta um fyrirætlanir ríkisstjórnarinnar í málinu, breytingarnar séu mikil- vægar og séu gerðar með hags- muni fólksins sem tók þátt í mót- mælunum að leiðarljósi. Helstu stéttarfélög Danmerk- ur stóðu að mótmælunum og voru hækkanir á ellilífeyrisaldr- ingum, lægri dagpeningar til sjúklinga og öryrkja og niður- skurður í heilbrigðis- og mennta- kerfinu þau mál sem hvað harð- ast var mótmælt. - ks Metþátttaka í mótmælum gegn breytingum á danska velferðarkerfinu: 110.000 Danir mótmæla MÓTMÆLT Danskir fjölmiðlar segja 110.000 manns hafa mótmælt á götum danskra borga í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/AP SAMFÉLAGSMÁL Fullt var út úr dyrum á fundi um þjóðarátak í málum aldraðra sem Aðstand- endafélag aldraðra og Landssam- band eldri borgara stóð fyrir í Háskólabíói á þriðjudagskvöld. Siv Friðleifsdóttur heilbrigðisráð- herra voru á fundinum afhentar tæplega þrettán þúsund undir- skriftir eldri borgara og öryrkja þar sem skorað er á stjórnvöld að beita sér í málefnum þessara hópa. Stefán Ólafsson, prófessor við félagsvísindadeild Háskóla Íslands, flutti erindi um þróun kjaramála eldri borgara og öryrkja á undangengnum áratug. Stefán heldur því fram að hags- munir eldri borgara og öryrkja hafi verið fyrir borð bornir í góð- ærinu. Þetta hafi gerst vegna auk- innar skattbyrði, skerðingar- reglna almannatrygginga og annarra þátta í stefnu stjórn- valda. Stefán skiptir þjóðinni í tíu tekjuhópa og þar kemur fram að þeir sem eru í fjórum neðstu tekjuhópunum hafi tekið á sig aukna skattbyrði, frá um níu til fimmtán prósentum, á tímabilinu 1994 til 2004. Ástæður þessa segir Stefán vera rýrari skattleysis- mörk og að þessi hópur sé að stór- um hluta lífeyrisþegar. Aðeins þeir sem allra hæst hafa launin beri lægri skattbyrðar en þeir gerðu 1994. Skattbyrði þeirra minnkaði um rúm þrjú prósent. Stefán ræddi einnig lífeyrissjóða- kerfið í erindi sínu þar sem hann hélt því fram að ríkið tæki hátt í sjötíu prósent af meðal lífeyris- tekjum í skerðingar og skatta. Stefán telur að óumflýjanlegt sé að stokka upp skatta- og almanna- tryggingakerfið og fyrst þurfi að hækka skattleysismörk. Eftir að Stefán lauk erindi sínu fóru fram pallborðsumræður þar sem sátu fyrir svörum Árni M. Mathiesen fjármálaráðherra, Siv Friðleifsdóttir heilbrigðisráð- herra, Steinunn Valdís Óskars- dóttir borgarstjóri, Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson formaður Sambands sveitarfélaga, Dagur B. Eggerts- son oddviti borgarstjórnarflokks Samfylkingar og Hrafn Magnús- son, framkvæmdastjóri Landsam- taka lífeyrissjóða, auk formanna Samfylkingar, Vinstri grænna og Frjálslyndra. Kom meðal annars fram áhugi fyrir því að málefni aldraðra yrðu færð til sveitarfélaganna í auknum mæli og búsetumál þeirra yrðu skoðuð sérstaklega. svavar@frettabladid.is Góðærið hefur ekki náð til eldri borgara Hróp voru gerð að fjármálaráðherra á fundi um málefni aldraðra. Þeir sem hafa hæstu launin eru eini hópur samfélagsins sem greiddi lægri skatta 2004 en þeir gerðu 1994. Sjötíu prósent lífeyris fara til ríkisins í skerðingar og skatta. FRÁ FUNDINUM Hvert sæti var skipað enda brenna málefni eldri borgara og öryrkja á stórum hluta þjóðarinnar. Fundarmönnum var heitt í hamsi og kröfðu þá sem tóku þátt í pallborðsumræðum um skýr svör. FRÉTTABLAÐIÐ/HÖRÐUR PALLBORÐIÐ Siv Friðleifsdóttir heilbrigðisráðherra Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri grænna, og Dagur B. Eggertsson, oddviti borgarstjórnarflokks Samfylkingarinnar, voru á meðal þeirra sem tóku þátt í pallborðsumræðunum. FRÉTTABLAÐIÐ/HÖRÐUR SAMFÉLAGSMÁL „Forsætisráðherra skipaði fyrir nokkru nefnd sem er að taka einmitt á þessum málum sem voru rædd á fundinum í gær, eða kjaramálum aldraðra. Lands- samband eldri borgara á fulltrúa í þeirri nefnd og á þeim vettvangi er verið að vinna að kjaramálum þeirra. Ég býst við að þessi nefnd skili af sér í haust og hún er einmitt að skoða þær kjaraskerðingar sem voru til umræðu í gær.“ Siv segist þeirrar skoðunar að mjög æskilegt sé að draga úr tekjutengingum en erfitt sé að segja til á hvaða hátt það verður gert nákvæmlega. Siv segir að mikil vinna sé í gangi í heilbrigðisráðuneytinu varðandi búsetumál eldri borgara og hún hafi haldið mjög gagnlegan fund með Félagi eldri borgara í gær varðandi þau mál og öldrun- arþjónustuna í heild. „Á næstu mánuðum munum við halda áfram að efla heimahjúkrun og því eru það vonbrigði að mörg sveitarfélög eru um leið að draga úr sinni félagsþjónustu. Það er áhyggju- efni á sama tíma og verið er að tala um að færa málaflokkinn yfir til sveitarfélaganna sem ég tel að þurfi að skoða í fullri alvöru.“ Siv segir það mikilvægt að þjóna sem flestum heima því þar líði fólki best og gefur möguleika á að halda kostnaði niðri. - shá Siv Friðleifsdóttir heilbrigðisráðherra: Nefnd skilar af sér í haust SIV FRIÐLEIFSDÓTTIR Segir að heimahjúkr- un verði efld á næstu mánuðum. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA SVÍÞJÓÐ, AP Meirihluti íbúa í Stokkhólmi vill að vegagjöld verði til frambúðar í miðborg Stokkhólms til þess að draga úr umferðarþunga. Sjö mánaða tilraunatímabili lýkur í júlí, en þegar það hófst í janúar voru flestir á móti því. Nú hefur borgarbúum þó snúist hugur því 62 prósent vilja að þetta fyrirkomulag verði til frambúðar. Flokkur Græningja átti frum- kvæði að vegatollinum, sem hefur skilað þeim árangri að umferð til og frá miðbænum hefur minnkað um 23 prósent. - gb Vegatollur í Stokkhólmi: Meirihluti vill borga áfram Eldur í dagblöðum Kveikt var í blaðabunka í Völvufelli í gærnótt. Búið var að slökkva eldinn þegar slökkvilið kom á staðinn. Reykur hafði þó borist inn í stigagang fjölbýlishúss og þurfti að ræsta ganginn. Engan sakaði. LÖGREGLUMÁL VERÐLAUN Ingibjörg Einarsdóttir og Baldur Sigurðsson hlutu Foreldra- verðlaun Heimilis og skóla, lands- samtaka foreldra, fyrir frum- kvöðlastarf og óeigingjarna vinnu í þágu Stóru upplestrarkeppninnar. Markmið verðlaunanna er að vekja athygli á þeim mörgu verk- efnum sem efla starf grunnskól- anna og öflugt og jákvætt samstarf heimila, skóla og samfélagsins. Auk Foreldraverðlaunanna sjálfra voru veitt tvenn hvatningarverðlaun og ein dugnaðarforkaverðlaun. - sdg Landssamtök foreldra: Árleg foreldra- verðlaun veitt Innbrot á bensínstöð Brotist var inn á bensínstöð við Steina undir Eyjafjöll- um í gærmorgun og stolið þaðan tóbaki og smámynt. Lögreglan á Hvolsvelli segist hafa mann grunaðan um brotið.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.