Fréttablaðið - 18.05.2006, Blaðsíða 88
18. maí 2006 FIMMTUDAGUR56
GOLF „Það er mjög gott fyrir
íþróttahreyfinguna að sjá að okkar
fyrirtæki eru til í að styðja við
okkar afreksfólk. Við erum einnig
að leggja áherslu á samfélagsleg-
an þátt með þessu en með því að
ná sterkum afreksmönnum erum
við að auglýsa Ísland í heild sinni.
Ég vona að þetta samstarf nýtist
bankanum einnig á mjög jákvæð-
an hátt,“ sagði Hörður Þorsteins-
son, framkvæmdastjóri Golfsam-
bandsins, eftir að samningar við
KB banka voru undirritaðir í
Viðey á þriðjudag. GSÍ og KB
banki hafa verið í samstarfi síðan
2001 en þá hét bankinn reyndar
Búnaðarbankinn.
„Samstarf okkur við KB banka
hefur verið mjög ánægjulegt og
skemmtilegt, þeir hafa sérstak-
lega verið að styrkja okkur í
barna- og unglingastarfinu sem
hefur gengið vel. Þeir hafa verið
með okkur í fimm ár og báðir aðil-
ar vita að hverju þeir ganga, sem
er mjög vænlegt,“ sagði Hörður,
hæstánægður með samninginn,
Bankinn ætlar að halda áfram
því verkefni að auka áhuga á golfi
meðal yngra fólks og sem dæmi
verða golfkynningar fyrir byrj-
endur fastur liður á hverju móti
og lögð verður áhersla á að vera
með fjölbreyttar og skemmtilegar
þrautir fyrir ungri kynslóðina. Þar
verður meðal annars boðið upp á
að hitta í skotmörk, pútta og kynn-
ast reglum íþróttarinnar undir
handleiðslu golfkennara.
„Við ætlum að reyna að skapa
betri umgjörð fyrir hinn almenna
kylfing og bjóða upp á margvís-
legar kynningar og skemmtanir
samhliða mótunum. Svo ætlum við
að reyna að fá kylfinga til að mæta
og horfa á mótin. KB banki ætlar
að auglýsa mótaröðina vel og við
ætlum að leggja áherslu á að það
sé gaman að horfa á gott golf. Það
vantar ekki fólk sem stundar golf
en við ætlum að kenna því að
mæta og horfa á golf.“
KB banka mótaröðin sam-
anstendur af sex mótum á jafn
mörgum golfvöllum. Fyrsta mótið
verður 27.-28. maí á Garðavelli á
Akranesi en hin mótin verða í Vest-
mannaeyjum, Leirunni, Urriða-
velli, Grafarholtsvelli og svo verð-
ur lokamótið á Hvaleyrarvelli í
Hafnarfirði. Stigahæstu kylfing-
unum verður boðið að taka þátt í
móti á vegum KB banka og Ice-
landair á Turnberry í Skotlandi í
byrjun október.
„Það er mikið að gerast í
íslensku golfi, allir vellir fullir af
fólki og við getum ekki annað en
verið mjög ánægðir með uppgang-
inn hér á landi. Nú þarf bara að
virkja fólk til að mæta og horfa á
mótaröðina okkar,“ sagði Hörður
Þorsteinsson. elvar@frettabladid.is
Kylfingum kennt að horfa á golf
Golfsamband Íslands undirritaði í vikunni samning við KB banka um að mótaröð sambandsins muni í
sumar heita KB banka mótaröðin. Stefnt er að því að fá fleiri áhorfendur á vellina til að fylgjast með.
SAMNINGAR UNDIRRITAÐIR Ingólfur Helgason frá KB banka tekur í höndina á Herði Þor-
steinssyni eftir að samningarnir höfðu verið undirritaðir í Viðey. FRÉTTABLAÐIÐ/HÖRÐUR
FRJÁLSAR Bandaríkjamaðurinn
Justin Gatlin sló heimsmetið í 100
metra hlaupi í síðustu viku á
frjálsíþróttamóti í Katar. Það hélt
hann í það minnsta. Gefið var upp
að Gatlin hefði hlaupið á 9,76 sek-
úndum og þar með bætt heimsmet
Asafa Powell sem var 9,77 sekúnd-
ur.
Tíminn sem Gatlin náði var
nákvæmlega mældur 9,766 en
mótshaldarar gerðu þau mistök að
gefa upp 9,76 þegar að sjálfsögðu
hefði átt að námunda í 9,77. Mis-
tökin hafa því verið leiðrétt og
Gatlin ku ekki vera kátur. - hbg
Neyðarleg mistök í Katar:
Bætti ekki
heimsmetið
JUSTIN GATLIN Taldi sig hafa bætt heims-
metið en jafnaði það bara þegar upp var
staðið. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY IMAGES
HAFNABOLTI Hataðasti íþróttamað-
ur Bandaríkjanna, Barry Bonds, á
ekki sjö dagana sæla um þessar
mundir. Bonds, sem er sakaður
um mikla steranotkun til fjölda
ára, skráir sig í sögubækurnar
með næsta heimahafnarhlaupi og
enginn kastari í deildinni hefur
áhuga á að verða maðurinn sem sá
til þess að hann nái þeim áfanga.
Russ Springer, kastari Houston,
gaf tóninn þegar hann kastaði bolt-
anum ekki að Bonds heldur í hann
og það af fullu afli.
Fyrsti boltinn sigldi rétt fram-
hjá baki Bonds og fékk Springer
þá aðvörun hjá dómaranum.
Springer lét ekki segjast og kast-
aði næstu fjórum boltum í Bonds
og hittu tveir þeirra beint í mark.
Dómarinn rak Springer og
þjálfara Houston af velli í kjölfar-
ið. Það segir sína sögu að allir 35
þúsund áhorfendur vallarins stóðu
upp og klöppuðu fyrir þeim félög-
um. - hbg
Barry Bonds:
Grýttur af
kastara
BARRY BONDS Á leiðinni niður eftir að hafa
verið grýttur af kastara í miðjum leik.
FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY IMAGES
FÓTBOLTI Gylfi Einarsson, leikmað-
ur Leeds á Englandi, hefur ítrekað
það að hann vilji ekki yfirgefa
Leeds. Gylfi sagði við Fréttablaðið
í vikunni að hann íhugaði að fara
að láni frá félaginu en eftir nánari
umhugsun ber hann þær sögur til
baka.
„Það stendur ekki til að ég sé á
förum. Ég hef verið ósáttur með
hversu lítið ég hef spilað en ég er
staðráðinn í því að vinna vel í
mínum málum í sumar og stefni á
að vera áfram hjá Leeds á næsta
tímabili, enda nýbúinn að fram-
lengja samninginn minn um tvö
ár,“ sagði Gylfi.
„Mér líður vel hjá Leeds og ég
vona að ég geti hjálpað liðinu að
komast upp um deild. Draumur
minn væri að komast upp í úrvals-
deildina og spila þar á meðal
þeirra bestu með Leeds,“ sagði
Gylfi Einarsson. - hþh
Gylfi Einarsson:
Ég ætla að
berjast áfram