Fréttablaðið - 18.05.2006, Blaðsíða 35

Fréttablaðið - 18.05.2006, Blaðsíða 35
FIMMTUDAGUR 18. maí 2006 Úr háborg tískunnar BERGÞÓR BJARNASON SKRIFAR FRÁ PARÍS Óður til kvenleikans á hvíta tjaldinu og utan Tískan hefur löngum átt í nánu sambandi við kvikmyndalistina. Ekki aðeins við tækifæri eins og í gærkvöldi þegar kvikmyndahátíðin í Cannes hófst með árvissri tískusýningu á rauða dreglinum heldur einnig á tjald- inu sjálfu. Og þegar betur er að gáð kemur í ljós að kvikmyndahandrit hefur oft verið uppspretta athyglisverðra sköpunarverka hönnuða. Forseti dómnefndarinnar að þessu sinni er kínverski kvikmyndaleik- stjórinn Wong Kar Wai sem er fæddur í Shanghæ en fór frá Kína þar sem hann hafði ekki nóg sköpunarfrelsi. Wai hefur einstakt lag á að kvik- mynda konur og kvenfatnað. Þetta sást vel í kvikmyndinni „In the mood for love“ (kynningarveggspjald kvikmyndahátíðarinnar í Cannes 2006 er einmitt út þessari mynd) þar sem einstaklega mikið er lagt í fatnað aðal- leikkonunnar Maggie Cheung en myndin gerist á fimmta og sjötta ára- tugnum í Hong Kong. Búningarnir einkennast af sterkum litum og mynstri og oft fylgir kvikmyndatökuvélin neðri hluta leggja leikkonunn- ar, fótum og skóm en þeir minna á tíma Jackie Kennedy. Í stuttmyndinni Höndin (la Main) sem er að finna, ásamt myndum eftir leikstjórana Soder- bergh og Antonioni, í safni þriggja mynda undir titlinum Eros, má aftur sjá þessa fallegu kvikmyndatöku. Þar lýsir Wai sérkennilegu sambandi klæðskera við lúxusgleðikonu sem lætur sauma á sig ógrynni af fallegum kjólum og sambandið verður náið, nánast eins og ástarsamband í gegnum fötin. Augnakonfekt fyrir fagurkera sem hafa áhuga á hönnun og tísku. Á forsíðu bókarinnar Litli svarti kjólinn (La petite robe noir) sem segir sögu þessarar flíkar sem þykir alltaf jafn ómissandi, má sjá einn slíkan sem Catherine Deneuve klæðist. Mynd úr kvikmyndinni „Belle de jour“ eftir Luis Bunuel og kjóllinn hannaður af Yves Saint Laurent eins og allur klæðnaður Deneuve í myndinni. Hann er reyndar með hvítum uppábrot- um á ermunum og hefði smellpassað í svarthvítu sumartískuna. Örlítið dæmi um tengingu þessara tveggja listgreina. Sama má sjá á sýningu sem stendur yfir í einni af útborgum Parísar, Enghien-les-Bains (upplýs- ingar á www.cda95.fr), tileinkuð dívum í ítalskri kvikmyndagerð á sjötta áratugnum. Á sýningunni er að finna dýrgripi sem jafnt Maria Callas, Sophia Loren og Gina Lollobrigida klæðast í frægum kvikmyndum leik- stjóranna Zeffirelli og Visconti, svo einhverjir séu nefndir. Oft leituðu stjörnurnar til Coco Chanel, Christian Dior og Yves Saint Laurent áður en haldið var til Cannes. En í Cannes verður frumsýnd mynd um einn besta viðskiptavin „Haute couture“ allra tíma, Marie-Antoinette Frakklandsdrottningu. bergthor.bjarnason@wanadoo.fr Þrískiptir augnlitir eru meðal forvitnilegra snyrtivara í nýrri sumarlínu Rifka. Rifka snyrtivörur hafa lengi átt sérstakan stand í Debenhams í Smáralind og í tilefni af nýrri sumarlínu snyrtivöruframleið- andans verður sérstök kynning í versluninni í dag. Rifka kynning- arvika verður haldin í Deben- hams í kjölfarið. Vörur í nýju sumarlínunni eru meðal annars þrír nýir augn- skuggar, sem eru þrískiptir og varalitagloss. Áhugaverðast er þó án efa sérstakur tvískiptur penni sem kallast Dual for Eyes en öðrum megin er kremaður augnskuggi og hinum megin er blýantur. Ný sumar- lína Rifka Sérstök kynning verður á Rifka-snyrtivörun- um í Debenhams í dag. 1 dálkur 9.9.2005 15:17 Page 2 NÝ SENDING herrasandalar dömusandalar MJÓDDINNI S: 557 1291 GLÆSIBÆ S: 553 7060 BORGARNESI S: 437 1240 Fæst í heilsubúðum, apótekum, og heilsuhornum verslana Einnig sjampó, hárnæring o.fl. DREIFING: JÓN KARLSSON • SÍMI: 5610570 • 100% náttúrulegir jurtalitir • Engin skaðleg aukaefni • Ekkert ammóníak • Laust við festiefni (Resorcinol) • Þægilegt og fljótlegt í notkun • 30 litir (Hægt að blanda fleiri) Heildsöludreifing www.Hafnarsport.is Útsölustaðir: Femin.is, Snyrtist. Okkar Keflavík. Snyrtist. Abaco Akureyri, Bætt Útlit, Snyrtist. Jara Akureyri, Þú þarft ekki lengur að sofa með góminn !! Hvítunarefni sem virkar á aðeins 20 mínútum !! ������������������� ������������������������������ � � �� � � � � �� � � � � �� � � � � � �� � � � � �� � � �� � � � � �� � � � �� � � � � � � � � �� �� � � � � �� � � �
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.