Fréttablaðið - 18.05.2006, Blaðsíða 82

Fréttablaðið - 18.05.2006, Blaðsíða 82
 18. maí 2006 FIMMTUDAGUR Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson lagahöfundur var sáttur við frammistöðu dívunnar. „Þetta er Silvía, þetta er það sem hún gerir. Hún gerir mann hræddan stund- um en svo býr hún yfir leyndar- máli. Það er eins og hún geti togað í einhverja spotta. Enn er ein æf- ing eftir og við eigum bara eftir að sjá atriðið verða skemmtilegra.“ Þorvaldur segir atriðið enn vera að þroskast. „Það er alltaf eitt- hvað sem þarf að laga. Hlutir í bakvinnslu og lúkki. Það verður neglt á lokaæfingunni á morgun.“ Silvía lét falska tóna og óánægju- köll Grikkja í höllinni á fyrri æf- ingunni ekki á sig fá. Þegar blaðamaður Fréttablaðs- ins náði í skottið á ofurstjörnunni var ekki annað að heyra á henni en að æfingin væri eingöngu undan- fari þess sem koma skyldi í kvöld. „Æfingin var æðisleg. Hvað sem ég geri er æðislegt. Ég gæti skitið á sviðið og samt unnið keppnina,“ sagði Silvía rétt áður en einkabif- reið hennar flutti hana á æfingu með Selmu Björnsdóttur. Gamlir taktar gerðu vart við sig og Silvía hefur greinilega ekki látið mót- lætið fara í taugarnar á sér. „Þau elska mig.“ Spurð af hverju gekk svona illa, þegar hún yfirgaf höll- ina stuttu eftir atriðið, svaraði hún á íslensku. „Bíddu, er ekki allt í lagi.“ Það eru fyrstu íslensku orð hennar í langan tíma. Silvía svar- aði ekki þegar hún var spurð hvort hún væri ennþá veik, en Romario sagði að hún væri með hita. Fjöl- margir fylgdust með Silvíu á skjám úr fjölmiðlaherbergi hall- arinnar. Menn brostu út í annað og hvöttu hana áfram. Hún hefur ekki misst athyglina eða hörðustu aðdáendurna hér í Aþenu, þrátt fyrir skilningsleysi fjölda Grikkja á persónu hennar. Hún er orðin landsfræg hér í Grikklandi og er beðin um eiginhandaráritanir hvert sem hún fer. Silvía fullkomin á sviði ATRIÐIÐ AÐ VERÐA KLÁRT Þau Silvía Nótt, Peppe og Romario sýndu góða takta á sviðinu í Grikklandi. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI DROTTNINGIN Í GRIKKLANDI Smá tíma tók að finna bílinn sem flutti Silvíu á brott. Hún veifar hér eins og drottining. GÓÐ STEMNING Fín stemning var í íslenska hópnum baksviðs og menn vissir um að atriðið smelli þegar mest á reyni. Norðmenn búsettir á Íslandi héldu í gær upp á þjóðhátíðardag sinn, 17. maí, í Reykjavík með pompi og prakt. Þjóðin er þekkt fyrir mikið fjör á þessum degi í heimalandi sínu og þar skipa langar lúðra- sveitarskrúðgöngur stærstan sess í hátíðarhöldunum. Hér á landi hefur dagurinn verið haldinn hátíðlegur síðan 1934 og hefur dagskráin að miklu leyti snúist um það að gleðja börn- in. Í gær var að sjálfsögðu boðið upp á hefðbundna skrúðgöngu þar sem Skólahljómsveit Kópavogs sá um tónlistina. Fólk mætti prúðbú- ið til hátíðarhaldanna þrátt fyrir þungan himin og arkaði frá Nor- ræna húsinu í Dómkirkjuna. Að messu lokinni var aftur farið í Norræna húsið og um kvöldið var boðið upp á veitingar á sumarhúsi Nordmannslaget í Heiðmörk. Hátíðarhöldin í Noregi gengu einnig vel ef frá er talið dauðsfall í skrúðgöngu í Kristianssand. Þar varð einn lúðrarsveitarmaðurinn bráðkvaddur.Hann var 70 ára gamall og hafði spilað með lúðra- sveitinni í 60 ár. Norsk hátíð HIPP HURRA! Á þjóðhátíðardaginn klæðast normenn „bunad“ og skella sér í skrúð- göngu. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA Silvía Nótt fór hnökralaust í gegnum rútínuna sína á síðari æfingunni í O.A.K.A-höllinni í Aþenu í gær, vann salinn á sitt band, eftir að Grikkirnir púuðu á hana í byrjun atriðs- ins. Hún átti slæma fyrri æfingu og æfði því undir hand- leiðslu Selmu Björnsdóttur strax eftir hana.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.