Fréttablaðið - 18.05.2006, Blaðsíða 83

Fréttablaðið - 18.05.2006, Blaðsíða 83
FIMMTUDAGUR 18. maí 2006 51 Bítillinn fyrrverandi Sir Paul McCartney og eiginkona hans Heather Mills ætla að skilja eftir fjögurra ára hjónaband. Breska ríkisútvarpið BBC og dagblaðið The Daily Mirror greindu frá þessu í gær. McCartney og Mills, sem er fyrrverandi fyrirsæta, giftu sig í júní árið 2002 og eignuðust dóttur- ina Beatrice ári síðar. Þau hittust fyrst í kringum góðgerðarstarf Mills sem hún hóf eftir að hafa misst annan fót sinn í mótorhjóla- slysi árið 1993. Hjónaband McCartney og Mills var storma- samt og rifust þau oft. Bjuggu þau hvort í sínu húsi undir það síð- asta. McCartney var kvæntur Lindu Eastman á árunum 1969 til 1998 þegar hún lést úr brjóstakrabba- meini. Var því haldið fram að þau hefðu aðeins sofið hvort í sínu lagi eina nótt á meðan á hjónabandinu stóð. Eignir McCartney eru metnar á rúma 100 milljarða króna. Mills lét eitt sinn hafa það eftir sér að McCartney hefði neitað boði henn- ar um að skrifa undir hjónabands- sáttmála til að vernda auðæfi sín. Talið er að Mills fái fjórðung eign- anna eftir að skilnaðurinn gengur í gegn. Heather og Paul hætt saman MCCARTNEY OG MILLS Fjögurra ára hjóna- band Paul McCartney og fyrirsætunnar fyrrverandi Heather Mills er á enda. MYND/AP Nick Mason, fyrrverandi trommu- leikari Pink Floyd, verður með Roger Waters, fyrrum forsprakka hljómsveitarinnar, á tónleikum sem haldnir verða í Frakklandi 14. júlí. Einnig er búið að staðfesta að Mason verði á tónleikum Waters í Hyde Park í London. Verið er að vinna í því að fá Mason til að spila með Waters í Egilshöll hinn 12. júní og eru góðar líkur á að hann komi hingað og trommi þegar platan Dark Side of the Moon verður flutt í heild sinni. Miðasala á tónleikana fer fram á midi.is, í verslunum Skífunnar í Reykjavík og í BT á Akureyri og Selfossi. Miðaverð er 8.900 á svæði A og 7.900 á svæði B, auk miða- gjalds. Trommar Mason? ROGER WATERS Fyrrum trommari Pink Floyd mun hugsanlega spila með Waters í Egilshöll 12. júní. FRÉTTIR AF FÓLKI París Hilton, hótel-erfingi og partí- ljón, lenti í miklum hremmingum á mæðradaginn. Hún var að kaupa gjafir fyrir móður sína og var þeim öllum stolið fyrir utan heimilið hennar. París keypti einungis vörur frá Dior fyrir móður sína, Kathy Hilt- on, og var andvirði þeirra tæp milljón íslenskra króna. Hilton er nýbúin að fá hlutverk í nýrri rómantískri gamanmynd sem kallast ,,Hottie and the Nobbie“ en fyrirsætan þreytti frumraun sína á hvíta tjaldinu í myndinni ,,House of Wax“ sem frumsýnd var á síðasta ári. N icole Kidman hefur nú gert trúlofun sína við tón- listarmanninn Keith Urban opinbera. Þau mættu saman á góðgerðarkvöldverð á vegum UNI- FEM-sam- takanna og bar Kidman hring á fingri sér. Hún stað- festi trúlofunina einnig við blaðamenn og sagði að hún hefði aldrei annars komið í fylgd kærasta á svona viðburð. Leikkonan fagra var áður gift leikar- anum Tom Cruise og eiga þau saman tvö ættleidd börn. Söngvarinn og hjar-taknúsarinn Robbie Williams ætlar að stofna sértrúarflokk tileinkaðan geim- verum. Segist hann dreyma um geimverur á hverri nóttu og er hann með kenningu þess eðlis að þær séu á leiðinni til að bjarga jörðinni frá náttúru- hamförum. Ekki hefur söngvarinn þó tíma til að helga sig geimverum eins og er því hann er nýbú- inn að ganga til liðs við gömlu félagana í Take That sem eru á tónleikaferðalagi um Bretland í sumar. Hollywood-leikararnir Ewan McGregor og Colin Farrell hafa báðir samþykkt að leika í nýjustu mynd Woody Allen. Í myndinni, sem enn hefur ekki fengið neinn titil, leika Farrell og McGregor bræður sem snúast gegn hvor öðrum og verða óvinir. Farrell sóttist mjög eftir því að fá að leika tónlistarsnillinginn Bob Dylan í mynd sem byggð verður á ævi Dylans en varð að sjá eftir því hlutverki til Heath Ledger.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.