Fréttablaðið - 18.05.2006, Side 40

Fréttablaðið - 18.05.2006, Side 40
 18. maí 2006 FIMMTUDAGUR8 YD Design á Tangarhöfða er með til sölu gullfallegar heimilisvörur frá Cult Design. Sænska framleiðslulínan Cult Design er sérlega falleg. Hönnuðir hennar hafa meðal annars unnið fyrir IKEA, Trip Trap og fleiri. Í Svíþjóð er að finna sérstakar versl- anir sem eingöngu selja vörur Cult Design en hér á Íslandi má panta vörurnar gegnum heild- og net- verslunina YD Design sem er á Tangarhöfða. Í Cult Design-línunni má finna tvo strauma. Retro-línan er ávöl og mjúk og sækir strauma sína til sjötta og sjöunda áratugar- ins. Geometric-línan er stílhreinni að lögun þar sem lagt er upp úr að hver vara standi bæði ein og sér eða í bland við aðrar. Vörurnar samanstanda af blóma- pottum og vösum, lömpum, eldhús- vörum, kertastjökum og mörgu fleiru og í hverri vöru er lagt upp úr notagildi og fegurð. Nánari upplýsingar um vörurn- ar og fleiri myndir má finna á www. yd.is eða www.cultdesign.se. Fallegar línur, stílhrein lögun og góðir straumar Stórskemmtilegar skálar úr Retro-línunni. Glerblómavasar úr geometric-línunni. Fallega ávalir blómavasar úr Retró línunni. Fallegir vegg- blómavasar úr Retro-línunni. Geometric-línan er stílhrein og fallegt að blanda sama ólíkum gerðum og litum. Vinnuumhverfi á vinnustað skiptir flesta miklu máli. Hins vegar gleyma margir að reglur um góða vinnuaðstöðu eiga einnig að gilda heima fyrir. Sá staður á heimilinu þar sem mest er unnið er oftast eldhúsið. Því er mikilvægt að lagt sé upp úr góðu vinnnuumhverfi í eldhúsinu. Til að geta unnið með slakar axlir þurfa hendurnar að vera ögn fyrir neðan olnbogana. Því er hæðin frá lærum að öxlum besta vinnuhæðin. Uppþvottavélar eru oftast hafðar of lágar og það eykur álag á bak. Þegar uppþvottavélin er í lágri stöðu er mikilvægt að beygja sig rétt. Forðast ætti að vinna fyrir neðan hné í standandi stöðu. Ef fólk er viðkvæmt í baki er nauðsynlegt að hækka vélarnar eða sitja á kolli meðan unnið er við þær. Að sama skapi er mælt með að fólk stígi á koll ef unnið er upp fyrir axlarhæð. Reynið að skipuleggja eldhús- ið á þá leið að unnið er með mestu þyngdina við miðju líkamans, það getur til dæmis reynt mikið á hrygginn ef þungt leirtau er geymt í efri skápum. Eldhúsborð eru venjulega um 70 sentimetrar en vinnuborð eru höfð um 90 sentimetrar. Einnig þarf að huga að lýsingu því léleg lýsing eykur álag á augu og fólk lútir meira höfði við slíkar aðstæður. Unnið rétt í eldhúsinu Rétt vinnustaða og gott vinnuumhverfi í eldhúsi getur verið mikilvægt heilsunni. “Vorum að taka inn nýja sendingu af baðkörum innréttingum og handklæðaofnum, mikið úrval, gott verð. 550 5000 AUGLÝSINGASÍMI

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.