Fréttablaðið - 18.05.2006, Side 44

Fréttablaðið - 18.05.2006, Side 44
2 Síminn og Kópavogsbær hafa síðan í október á síðasta ári átt í samstarfi um að Síminn leiði Kópavogsbæ inn í framtíðina hvað varðar fjarskipta- og upplýsinga- tækni. Samkvæmt samningnum fá íbúar Kópavogsbæjar fyrstir tæki- færi til þess að prófa ýmsa tækni frá Símanum áður en hún fer á almennan markað. Kópavogsbúar voru meðal annars þeir fyrstu sem fengu sjónvarp gegnum ADSL inn á sín heimili. Nýjasta samstarf Kópavogs og Símans felst í því að íbúar bæjar- ins fá fyrstir allra tækifæri til þess að prófa nýja tækni frá Símanum sem kallast Safnið. Í gegnum það geta viðskiptavinir Símans geymt gögnin sín miðlægt hjá Síman- um og miðlað þeim með öruggum hætti. Kópavogsbúum býðst tæki- færi til þess að nýta sér tæknina frítt í svokölluðum beta prófunum í fjórar vikur áður en hún kemur á almennan markað. „Viðskiptavinir okkar eiga eftir að taka þessari nýjung fagnandi en með miðlægri geymslu af þessu tagi getum við boðið upp á öruggt geymslusvæði fyrir mikilvæg gögn, eins og t.d. skjöl, tónlist og ljós- myndir.“ segir Eva Magnúsdóttir, upplýsingafulltrúi Símans. Íbúar Kópavogs geta skráð sig í þjónustuna á vef Símans en þátt- taka er takmörkuð. Þeir sem lenda í úrtaki eru látnir vita í tölvupósti. Fyrstir allra Kópavogsbúum býðst tækifæri til þess að prófa nýja gagnageymslu Símans áður en hún kemur á almennan markað. Eva Magnúsdóttir upplýsingafulltrúi Símans. Kópavogur og Síminn eru í samstarfi um að leiða bæjarbúa inn í framtíðina í tæknimálum. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Nú stendur yfir sýning á verkum Guðmundar frá Miðdal í Lista- safni Kópavogs, Gerðarsafni, og Ná t t ú ru f ræð i - stofu Kópavogs. Þar er að finna úrval olíumynda, vatnslitamynda og skúlptúra í eigu einkaaðila, stofnana og safna. Einnig eru sýndar þar allmargar og afar sjaldséðar grafíkmyndir ásamt fjölmörgum leirmunum sem búnir voru til í Listvinahúsinu frá um það bil 1930 til 1956 en Guðmundur var brautryðjandi á Íslandi í þess- um listgreinum. Íslensk náttúra og mannlíf, Samar í Finnlandi, Grænland, Alpar og evrópskar borgir – allt þetta og meira til eru myndefni Guðmundar Einarssonar frá Miðdal (1895-1963) sem var einn af kunnari myndlistarmönn- um landsins á sinni tíð. Guðmundur frá Miðdal Kópavogur er næstfjölmennasta sveitarfélag landsins. Íbúum hefur fjölgað þar hratt undanfarin ár og byggð hefur stækkað í samræmi við það, þannig að segja má að bæj- arlífið standi nú í blóma. Allt má finna í Kópavogi, hvort sem það er góð þjónusta, skólakerfi, menn- ing, fallegt umhverfi og skipulag. Sumir hafa haft á orði að þarna séu að finna ein bestu fjölskylduhverfi sem völ er á. Sömuleiðis eru mörg falleg svæði í Kópavogi, sum hver með mikla sögu að baki. Fífuhvammsvegurinn í Kópavogi liggur eins og lífæð í gegnum bæinn alla leið frá Hafnarfirði og fram hjá Smáratorgi, undir Reykjanesbraut og upp í Sala- og Lindahverfið, þar sem hið eiginlega Fífuhvammssvæði er staðsett. Í jaðri þessa svæðis stendur gamall sumarbústaður. sem er leifar frá svokölluðu sumarbústaðaskeiði í sögu bæjarins, og þar er einnig að finna söguminjar, líklega einhvern tímann frá því fyrir siðaskipti. Á leiðinni er margt skemmtilegt að sjá og var ljósmyndari sendur á vett- vang til að fanga það helsta. Útkom- una má sjá á eftirfarandi myndum. Bæjarlíf í blóma Kópavogsbær er í örum vexti og er þar margt fal- legt að sjá, meðal annars Fífuhvammssvæði sem hefur sögulegt gildi fyrir bæinn. Kópavogsbær er tilvalinn fyrir þá sem hafa áhuga á útivist og hreyfingu. Þar má finna Golfklúbb Kópavogs og Garðabæjar, Hestafélagið Gustur og Siglingafélagið Ýmir svo dæmi séu nefnd. Þá er mikið af skemmtilegum göngustígum í Kópavogi, ýmist fyrir þrautþjálfaða göngugarpa eða áhugasama, og inni á milli skemmtileg græn svæði, svo sem Rútstún þar sem allt iðar af lífi 17. júní. Þessi skötuhjú kusu að njóta dagsins í veðurblíðunni. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Íþróttafélagið Breiðablik er með íþróttahús í Dalsmára 5, sem nefnist Smárinn. Á sumrin þegar hlýna tekur í veðri og sólin skín skært hefjast æfing- ar á útivellinum af fullum krafti, eins og sést á þessari mynd þar sem stúlkur í yngri flokki Breiðabliks spretta úr spori. Það má með sanni segja að menningarlíf Kópavogsbæjar hafi tekið öran kipp á síðustu árum. Ekki nóg með að þar sé að finna listasafn, tónleikahús, bókasafn- og náttúrufræðistofu heldur er þar fjöldinn allur af útilistaverkum sem prýða bæinn. Eins og hér sést geta sannir listunnendur verið á öllum aldri, en þessar stelpur fengu ekki nóg af þessu skemmtilega listaverki. Þessi langi göngustígur virðist við fyrstu sýn engan enda ætla að taka. Hann var lagður upp úr 1990 og liggur frá Kópavogsdal upp í Digraneshlíðar. Stígurinn hefur verið fjölfarinn alveg frá því að hann var fyrst lagður og hefur hann einkum notið mikilla vinsælda hjá skokkurum, enda gott fyrir þol og vöðva að hlaupa upp bratta stíga. Digraneskirkja í Kópavogsbæ þykir vera með fallegri kirkjum landsins en hún er hönnuð af Benjamíni Magnússyni arkitekt. Fyrsta skóflu- stunga að kirkjunni var tekin 27. mars 1993, en söfnuðurinn sjálfur hefur verið starfandi síðan 1971. Digraneskirkja var síðan vígð af Ólafi Skúla- syni, þáverandi biskupi Íslands, árið 1994. ■■■■ { kópavogur } ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■ VÖRUBÍLAVARAHLUTIR SCANIA, VOLVO OG MAN G.T. ÓSKARSSON VESTURVÖR 23, 200 KÓPAVOGUR SÍMI 554 6000 www.islandia.is/scania Bifreiðastillingin ehf. • Smiðjuvegi 40d • Sími 557 6400 Vissir þú að 90% af sjálfskiptingum bila vegna hitavandamála? Láttu skipta um olíu og síu á sjálfskiptingunni. Sjálfskiptingar, stillingar og alhliða viðgerðir.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.