Fréttablaðið


Fréttablaðið - 18.05.2006, Qupperneq 50

Fréttablaðið - 18.05.2006, Qupperneq 50
8 Ingibjörg Hinriksdóttir er þjón- ustufulltrúi hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga og situr í stjórn Knatt- spyrnusambands Íslands. Ingibjörg, sem skipar 5. sætið á lista Samfylk- ingarinnar í Kópavogi, segir uppá- haldsstaðinn á heimili sínu vera fyrir framan tölvuna þar sem hún fær allar upplýsingar frá degi til dags. ,,Ég nota tölvuna mikið, bæði við að afla mér upplýsinga og upp- færa heimasíðuna mína svo dæmi séu tekin. Stundum sit ég fram eftir nóttu við tölvuna. Ég er nú samt ekki að spila neina tölvuleiki.“ Vinnuherbergi Ingibjargar er því mest notaða svæðið í íbúðinni. Ingibjörg býr ein en heimilslífið hefur verið fjörugt upp á síðkastið. ,,Fjölskylda systur minnar býr hjá mér um þessar mundir og því er heimilið alveg undirlagt af þeim.“ Þegar Ingibjörg er ekki inni í tölvuherbergi að vinna þá finnst henni gott að slaka á við lestur bóka og segir hún Laxness vera í uppáhaldi. ,,Ég gríp nú alltaf í hann öðru hvoru og svo ferðast ég mikið með KSÍ og þá kaupi ég mér iðulega einhverjar góðar vasabækur til að lesa á dauðu tímunum.“ Survivor-þættirnir á Skjá einum hafa undirlagt mánudagskvöldin hjá Ingibjörgu undanfarin ár en nú segist hún vera að reyna að slíta sig frá þeim. ,,Þetta er alveg komið gott enda eru þeir örugglega að sýna 15. þáttaröðina núna,“ segir Ingibjörg og hlær. Raunveruleikasjónvarp yfir höfuð er eitthvað sem Ingibjörg festist oft í, jafnvel þótt hún játi að margt af því sé kjánalegt. ,,Svo missi ég aldrei af fréttum, þær eru það eina sem ég vil ekki missa af í sjónvarpi.“ Það er ekki nóg með að annríki sé í heimilslífinu um þessar mund- ir, heldur stendur Ingibjörg í stór- ræðum í pólitíkinni. ,,Það er alveg brjálað að gera í kosningabarátt- unni hjá okkur í Samfylkingunni. Ég er í 5. sætinu sem er algjört bar- áttusæti, þannig að það er mikill hugur í mér.“ Fjörugt og lifandi heimilislíf Ingibjörg Hannesdóttir, frambjóðandi Samfylkingarinnar, segist nota tölvuna mikið og því sé vinnuherbergið uppáhaldsstaður hennar á heimilinu. Heimili hennar er undirlagt af fjölskyldu systur hennar og því er nóg að gera bæði á heimilinu og í vinnu. Ingibjörg er mikið í tölvunni þegar hún er heima. Hæsta hús landsins verður risið í nóvember á næsta ári þegar að verklok við nýju verslunar- og skrifstofubygginguna á Smáratorgi eru áætluð. Nú þegar hefur verið lokið við að grafa fyrir grunninum og um þess- ar mundir er verið að skoða tilboð í bygginguna sem bárust í útboð- inu. Húsið sem hefur vinnuheit- ið Smáratorg verður á 20 hæðum sem hver verður um 800 fermetrar á stærð. Húsið mun vera 78 metra hátt og skáka því Hallgrímskirkju um 6 metra. Undir húsinu verður stór bílakjallari sem mun samein- ast bílakjallaranum undir Smára- torgi 1. Á fyrstu tveimur hæðun- um verða verslanir og fyrir ofan þær verður skrifstofuhúsnæði á 18 hæðum. Að sögn framkvæmda- stjóra Smáratorgs er mikil ásókn í húsnæðið og hefur þegar öllu verslunarhúsnæði verið úthlutað. Eins og sjá má á tölvumyndinni af byggingunni verður hún klædd úr gleri að utan og mun hún verða mikið kennileiti. Hæsta hús landsins rís á Smáratorgi Framkvæmdir við byggingu verslunar- og skrifstofubygg- ingar munu brátt hefjast. Húsið verður 78 metrar á hæð. Tölvumynd af háhýsinu. Bifreiðaverkstæði Dags Garðarsson- ar ehf. hefur verið staðsett á Smiðju- veginum í fimm ár. Á verkstæðinu starfa að jafnaði tveir starfsmenn en í sumar eru þeir þrír á verkstæðinu. Verkstæðið sinnir öllum almenn- um bílaviðgerðum og að sögn Dags Garðarssonar, eiganda verk- stæðisins, er nóg að gera. ,,Það er mjög gott að vera með verkstæði í Kópavoginum. Bílageirinn er allur í Kópavoginum þannig að þetta er mjög miðsvæðiðs. Stærstu vara- hlutaverslanirnar eru með útibú hérna rétt hjá þannig að það er líka mjög hagkvæmt fyrir viðskiptavin- ina að koma hingað“. Dagur segir helstu kosti Kópa- vogs vera hvað hann sé miðsvæðis og stutt sé að nálgast varahluti. Fólk komi úr öllum áttum á bif- reiðaverkstæðið og segir Dagur að það einskorðist ekkert við Kópa- vogsbúa. „Kúnnarnir koma úr öllum hverfum höfuðborgarsvæðisins og þar sem það eru mörg verkstæði hérna í þyrpingu þá er nokkuð mikil samkeppni í gangi,“ segir bif- vélavirkinn Dagur Garðarsson um starfsemi sína. Bílageirinn er í Kópavogi Dagur Garðarsson og samstarfsmenn hans á samnefndu bifreiðaverkstæði eru ánægðir í Kópavogi. Bílageirinn er að hans sögn allur í Kópavogi. Bifreiðaverkstæði Dags Garðarssonar ehf. hefur verið staðsett á Smiðjuveginum í fimm ár. ■■■■ { kópavogur } ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■ Almennar bílaviðgerðir F í t o n / S Í A
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.