Fréttablaðið - 18.05.2006, Síða 74

Fréttablaðið - 18.05.2006, Síða 74
 18. maí 2006 FIMMTUDAGUR42 Á laugardag var stafagöngudagur Íþróttasambands Íslands haldinn hátíðlegur á fjórtán stöðum á land- inu. Stafaganga hefur verið að breiðast hratt út og nú stunda milljónir manns þessa íþrótt um heim allan. Íþróttin á rætur sínar að rekja til Finnlands þar sem þjálfarar gönguskíðamanna létu þá ganga um með stafina á sumrin þegar enginn var snjórinn, til þess að halda efri hluta líkamans í þjálfun. ÍSÍ stóð fyrir stafagöngu- degi í fyrra þar sem íþróttin var kynnt gestum og gangandi og þjálfarar kenndu fólki réttu hand- tökin við stafina. Í ár var leikurinn endurtekinn og sveifluðu 450 manns stöfunum á laugardaginn í blíðskaparveðri. Myndirnar hér á síðunni eru allar teknar í Laugar- dalnum en eins og áður segir fór kennslan fram á fjórtán stöðum á landinu, meðal annars í Neskaup- stað, á Þórshöfn, Akranesi, Laug- arvatni, Akureyri og Selfossi. ...og svo sveiflast st afurinn og stafurinn sveifl ast svo... RJÓMABLÍÐA Stafagöngumenn fengu blíðskaparve ður og skrefamæli að gjöf frá Kelloggs. SVONA Á AÐ GERA ÞETTA Stafagönguleiðbeinandinn Halldór Hreinsson segir áhugasömum til á stafagöngudaginn. FRÉTTABLAÐIÐ/TEITUR VINSÆL ÍÞRÓTT Stafaganga hefur verið að sækja í sig veðrið undanfarið en íþróttin er upprunnin í Finnlandi. Þar voru gönguskíðamenn látnir arka um með stafi að sumarlagi til að halda efri hluta líkamans í þjálfun. [UMFJÖLLUN] TÓNLIST Hvernig á ég að lýsa þessu fyrir ykkur? Það er vissulega eitthvað heillandi við þá staðreynd að Pearl Jam sé enn að. Þeir eru búnir að vera gefa út plötur núna í um 15 ár og ekkert virðist stoppa sameiginlegan sköpunarkraft þeirra. Það er erfiðara verk en marga grunar að halda hljóm- sveit saman í svo langan tíma. Pearl Jam hafa alla tíð verið frekar tregir við að spila sig sem rokkstjörnur. Vilja bara búa til plötur og fara svo á löng tónleika- ferðalög um heiminn til að spila nýju lögin. Þeir hafa aldrei látið plata sig út í óþarfa glys og glam- úr sem oft fylgir slíkri frægð. Þeir eru frekar andlitslaus hljóm- sveit sem er greinilega ekki vel við allar hliðar sviðsljóssins. Þeir halda sig því út af fyrir sig. Vegna þessa efast ég meira að segja um að margir geti nefnt fleiri liðs- menn Pearl Jam en Eddie Vedder söngvara. Hann er líka mjög fyrirferðarmikill í öllu sem hann gerir. Leikrænn söngstíll hans hefur lengi ónáðað mig en ég myndi þó aldrei láta hafa það eftir mér að hann væri lélegur söngv- ari, bæði raddsvið hans og kraft- ur eru vissulega aðdáunarverð. Pearl Jam er góð hljómsveit. Stundum finnst mér þeir þó ein- beita sér örlítið of mikið að því að sýna að það sé enn rokkneisti í þessum gömlu beinum. Þeir rokka vissulega á þessari nýju plötu, á því leikur enginn vafi. Ég hefði vilja heyra þá einbeita sér betur að laglínum og textum, það er án efa veikasti hlekkur þessarar plötu. Ég hefði viljað heyra fleiri lög eins og næstsíð- asta lagið Come Back og færri eins og smáskífuna World Wide Suicide. Það lag gefur hárrétta mynd af plötunni. Frekar hefð- bundin og óspennandi lagasmíð sem sýnir þó kraft sveitarinnar. Rokk snýst ekki um hversu mikinn kraft þú getur skapað, heldur hversu djúpt tónlistin sekkur inn í eyru hlustandans. Rokk hófst sem uppreisn, þó það sé að mestu orðið að lamaðri sölu- vöru í dag. Pearl Jam á eflaust eftir að halda áfram að gera plötur eins og þessa sem er í rauninni ekki mikið hægt að setja út á heldur. En að sama skapi, eftir tíu ár, þegar við lítum aftur yfir feril Pearl Jam, mun þessi plata ekki skipta neinu máli. Hvorki í sam- hengi sveitarinnar eða tónlistar- sögunni. Til þess er hún bara ekki nægilega góð né merkileg. Sveit- in er líklegast bara orðinn sauma- klúbbur fyrir liðsmenn sem njóta þess að vera komnir á fimmtugs- aldurinn. Hér er enginn uppreisn, gegn einu eða neinu. Bara tilfinn- ingaríkt gól, fítonskraftur, hávær- ir gítarar og keyrsla. Sú stað- reynd að þeir hafi ekki getað fundið betra nafn á plötuna en nafn sveitarinnar er líka ágætis vísbending um hugmyndaleysið sem virðist ríkjandi. Já, og kóver- ið er hræðilegt. Birgir Örn Steinarsson Sviðasulta yrði meira spennandi PEARL JAM: PEARL JAM NIÐURSTAÐA: Nýasta afurð Pearl Jam á eftir að halda aðdáendum sáttum. Allir hinir eiga þó líklegast bara eftir að halda það áfram að sveitin hafi hætt fyrir áratug.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.