Fréttablaðið - 18.05.2006, Qupperneq 78
18. maí 2006 FIMMTUDAGUR46
bio@frettabladid.is
SMS LEIKUR!
Sendu
JA FVC
á númerið 1900
og við sendum
þér spurningu!
Þú svara með því
að senda A, B eða C.
4S 3MS B A 463L 3ei K 11URñ
Aðalvinningur er stórkostleg ferð til London á slóðir DaVinci lykilsins í boði
Iceland Express. Innifalið í ferðinni er flug, gisting og "DaVinci Tour" um borgina.
Að auki fær vinninghafi DaVinci síma frá Sony Ericsson.
Aðrir vinningar:Sony Ericsson gsm símar • Bíómiðar fyrir tvo á DaVinci • DVD myndir • Tónlistin úr myndinni
• DaVinci tölvuleikir • Varningur tengdur myndinni • Fullt af Pepsi og enn meira af DVD og tölvuleikjum.
99 ksr skeytið. Vinningar afhendir í bT Smáralind
Kvikmyndahátíðin í Cannes
hófst í gær með frumsýn-
ingu The Da Vinci Code.
Aðstandendur myndarinnar
fylgdu myndinni vitaskuld
úr hlaði og héldu blaða-
mannafund í hátíðarhöllinni
í gær með leikstjórann Ron
Howard og aðalstjörnuna
Tom Hanks í broddi fylk-
ingar. Þórarinn Þórarinsson
sat fundinn þar sem Hanks
sló á létta strengi og Ian
McKellen stal senunni.
Þeir voru glaðhlakkalegir félag-
arnir Ron Howard og Tom Hanks
(Robert Langdon) þegar þeir gengu
í salinn en með þeim í för voru
Frakkarnir Jean Reno (Bezu
Fache) og Audrey Tautou (Sophie
Neveu) og bresku úrvalsleikararn-
ir Paul Bettany (Silas), Ian
McKellen (Leigh Teabing) og
Alfred Molina (Aringarosa bisk-
up). Þetta ágæta fólk fékk þó ekki
mikið til málanna að leggja þar
athyglin var öll á Howard og
Hanks.
Það þarf ekki að fara mörgum
orðum um Da Vinci lykilinn enda
hefur söguþráður hennar verið
milli tannanna á fólki um árabil og
skáldsagan sem hún byggir á hefur
selst í fjörutíu milljón eintökum úti
um allan heim. Eftirvæntingin
eftir kvikmyndinni er því að vonum
mikil og rétt eins og enginn þykir
maður með mönnum nema að hafa
lesið bókina munu fáir komast hjá
því að sjá myndina. Þrátt fyrir
útbreiðslu og vinsældir skáldsög-
unnar hvíldi mikil leynd yfir kvik-
myndinni allt fram að frumsýning-
unni í gær. Howard sagði að þessi
ákvörðun hefði ekki síst verið tekin
þar sem hann vildi að þeir sem ekki
hefðu lesið bókina geti notið mynd-
arinnar og spennunnar í botn.
Spurningarnar sem Tom Hanks
fékk voru margar hverjar undar-
legar en leikarinn svaraði þeim
öllum og gerði óspart að gamni
sínu. Einhverjum blaðamanninum
datt til dæmis í hug að bera leikar-
ann saman við sjálfan Leonardo Da
Vinci og benti á að sá síðarnefndi
hefði gert sitt meistarastykki 51
árs og spurði í framhaldinu hvort
Hanks teldi sig enn eiga sitt meist-
araverk ógert. „Ja, ég hef þá eitt ár
til að bæta úr því. Ég eignaðist
nýlega réttinn á Scooby Doo 3 og
takist mér að gera þá mynd fyrir
árslok er þetta komið.“
Syndlausar en hugsandi verur
Eiginkona Hanks er kaþólsk og
hann var inntur eftir því hvort
ákvörðun hans um að leika í The
Da Vinci Code hefði valdið þeim
óþægindum og hvort hann hefði
fundið fyrir þrýstingi fólks í söfn-
uðinum heima. „Nei, alls ekki. Sam-
kvæmt þeim trúarskilningi sem
við hjónin höfum og hún ólst upp
við hefur syndinni verið létt af
okkur en ekki hæfileikanum til að
hugsa. Ég tel að þessi mynd, eins
og svo margar aðrar, geti gefið
fólki tilefni til þess að skoða hug
sinn og afstöðu þess til lífsins og
alheimsins. Þetta er ekki heimild-
armynd og ég held að engin kvik-
mynd, sérstaklega ekki ef hún er
hugsuð sem afþreying, sé líkleg til
þess að rugla fólk í ríminu.“ Ron
Howard tók þráðinn upp þarna og
sagði söguna vera þess eðlis að
myndin myndi koma illa við ein-
hverja. „Það er ekki spurning en
mitt ráð til þeirra er einfaldlega
þetta: Ekki fara á myndina ef þið
teljið ykkur stafa ógn af henni.
Bíðið aðeins og ræðið svo við aðra
sem hafa séð myndina og takið svo
yfirvegaða ákvörðun. Myndin á að
vera afþreying og hún er ekki guð-
fræði. Hún vekur samt upp spurn-
ingar og ætti að fá fólk til að ræða
þessi mál og þegar upp er staðið
held ég að það sé alltaf jákvætt ef
myndir hafa slík áhrif.“
Fundurinn hverfðist að mestu
um mótmæli kaþólikka gegn mynd-
inni og og þau óljósu mörk sem virð-
ast vera í hugum fólks um hvað sé
skáldskapur og hvað sögulegar
staðreyndir þegar Da Vinci lykill-
inn er annars vegar. Howard og
Hanks voru því beðnir um að svara
því hvort þeir sjálfir tryðu því að
Jesús Kristur hefði átt eiginkonu.
„Ég var ekki á staðnum,“ svaraði
Hanks að bragði, uppskar hlátur og
þar með var málið afgreitt af hans
hálfu. „Hver og einn verður að kom-
ast að sinni niðurstöðu og ég ætla
ekki að deila minni með ykkur.
Áhorfandinn verður að upplifa
myndina, hugsa um hana og tala um
hana. Áhorfendur eru gáfaðir og
mér finnst þeir oft vanmetnir vegna
þess að þeir geta mjög auðveldlega
komist að sjálfstæðri niðurstöðu.
Eitt af því sem bókin undirstrikar
og ég vona að myndin geri líka er að
lífið er endalaus ráðgáta. Hugur
okkar er eitt það mikilvægasta og
merkilegasta sem okkur hefur verið
gefið ásamt forvitni og þránni til
þess að rannsaka og skilja hluti. Ég
held að það stríði gegn náttúrunni
að reyna að halda aftur af huganum
og að mínu mati eru allir hlutir sem
kynda undir samræður og eflir
ímyndunaraflið sé af hinu góða.“
Jesús var ekki hommi
Ian McKellen, Alfred Molina og
Paul Bettany sátu lengst af þöglir
en fengu að láta ljós sín skína þegar
þeir voru beðnir að lýsa því hvern-
ig þessir árekstrar staðreynda og
skáldskapar blasa við þeim. Molina
reið á vaðið og sagði þá Howard og
Hanks í raun vera búna að svara
þessu. „Allir sem hafa keypt bók-
ina gerðu það í skáldsagnadeild-
inni og allir sem sjá myndina munu
horfa á skáldskap en ef myndin
fær fólk til að kafa dýpra ofan í
viðfangsefni myndarinnar þá er
það hið besta mál. Ég held líka að
allar þessar deilur og mótmæli séu
stormur í vatnsglasi, eitthvað sem
fjölmiðlar hafa magnað upp til þess
að búa til safaríkar og spennandi
fréttir. Það hefur eiginlega ekkert
orðið úr þessu og fátt sem hægt er
að festa hendur á. Einhverjar yfir-
lýsingar hafa verið gefnar út en
það sem stendur eftir er að ein-
hverjum mun mögulega ekki líka
myndin. Lífið er bara þannig að
það er slökkvari á öllu og hver og
einn getur ákveðið það að fara ekki
og sjá þessa mynd.“
Ian McKellen var öllu beittari
og vakti mikla kátínu þegar hann
notaði tækifærið og skaut á
kaþólsku kirkjuna fyrir viðhorf
hennar til samkynhneigðra en
Kellen er sjálfur hommi og hikar
ekki við að beita sér fyrir auknum
réttindum samkynhneigðra. „Þegar
ég las bókina trúði ég henni alveg
og kann Dan Brown bestu þakkir
fyrir að rugla svona í kollinum á
mér. Ég vil líka endilega trúa því
að Jesús hafi verið mannlegur. Ég
veit að kaþólska kirkjan hefur átt í
vandræðum með samkynhneigð og
mér fannst þetta svo frábært þar
sem þetta staðfestir að Jesús hafi
ekki verið hommi.“ Kellen dró svo
þá ályktun að æsingurinn í kring-
um myndina tengdist fyrst og
fremst snobbi. „Þegar bókin kom
út var enginn með þessi læti. Er
það vegna þess að lesendum er
treyst til þess að hugsa en fólk sem
fer í bíó er heilalaust lið sem þarn-
ast verndar? Mér finnst vera svo-
lítið snobb í gangi í kringum þetta
og ég trúi því að bíógestir séu alveg
jafn gáfaðir og lesendur og geti því
vel gert upp hug sinn og á meðan
þeir gera það geta þeir skemmt sér
konunglega.“
Paul Bettany var í takt við landa
sína tvo en hann hefur aldrei efast
um að Da Vinci lykillinn sé skáld-
skapur. „Þegar Ron hringdi í mig
og bað mig um að vera í myndinni
notaði hann orðin „munkur“,
„morðingi“ og „Da Vinci Code“ og
ég sagði strax „já“. Þá spurði hann
hvort ég hefði lesið bókina sagði ég
„Já, auðvitað“ þó ég hefði ekki gert
það. Ég rauk svo til og náði mér í
bókina, ekki í guðfræðideildinni
heldur skáldskapardeildinni, og las
hana í tveimur lotum. Þetta er
þannig bók að maður flettir henni
hratt og getur ekki hætt. Í fram-
haldinu las ég ýmis guðfræðirit á
meðan ég bjó mig undir hlutverkið
og ég get sagt ykkur það að þau fá
mann ekki til að fletta hratt. Þannig
að það ætti að vera öllum ljóst að
þetta er skáldskapur.“
Spáir ekki í vinsældir
Gagnrýnendum og blaðamönnum
gafst kostur á að sjá The Da Vinci
Code í Cannes á þriðjudag og mið-
vikudag. Fyrstu dómar eru blendn-
ir og Howard hefur meðal annars
verið sakaður um að drepa niður
það líf sem var í bókinni.
Howard segist þó ekki hafa
áhyggjur af því hvernig myndini
reiði af í miðasölunni og kippir sér
ekki upp við dómana. „Ég hef ekki
lesið neina dóma ennþá en sjálfsagt
eru einhver lýsingarorð í einhverj-
um þeirra sem maður vildi skipta
út. Ég hef gert margar vinsælar
myndir og er löngu hættur að reyna
að spá í það fyrirfram hvernig
myndirnar mínar eiga eftir að
ganga. Ég vel verkefni vegna þess
að efniviðurinn heillar mig og ég
get hugsað mér að eyða einu og
hálfu til tveimur árum í að segja þá
sögu. Bókin er áberandi og margir
hafa áhuga á henni þannig að ég
vona svo sannarlega að hún muni
ganga vel en ég vel mér ekki mynd-
ir með hliðsjón af því.“
Lífið er endalaus ráðgáta
TOM HANKS, DAN BROWN OG AUDREY TAUTOU Myndin hefur þegar verið bönnuð á
nokkrum stöðum í heiminum en kristnir menn telja innihald hennar vera guðlast.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
LEIKHÓPURINN Þau voru nokkuð upplitsdjörf í leikhópnum úr Da Vinci lyklinum sem frum-
sýnd var á Cannes í gær. Dómar í erlendum miðlum voru á einu máli um að myndinni
hefði mistekist að fanga spennuna sem einkennir bókina. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Jæja, nú er maður farinn að kannast við
sig í Cannes. Búið að loka götum, allt
troðið af fólki fyrir framan hátíðarhöllina
og allir barir orðnir kjaftfullir. Barinn
og veitingastaðurinn Le Petit Majestic
er einn af föstu punktunum í Cannes.
Þetta er hálfgerð hliðstæða Ölstofunn-
ar í Reykjavík en þarna sitja blaða-
menn saman í lok dags og pústa eftir
endalaust bíógláp og eltingarleiki við
stórstjörnur. Englendingar eru áberandi
þarna en samkvæmt hefðinni fór vita-
skuld mest fyrir liðinu við íslenska borð-
ið í gær. Da Vinci lykillinn var sýndur
blaðamönnum fyrr um kvöldið. Spenn-
an í kringum myndina var slík að auk
bókaðrar fjölmiðlasýningar á miðviku-
dagsmorgni var bætt við aukasýningu á
þriðjudagskvöldinu. Þetta þótti nokkuð
djarft útspil hjá dreifingaraðilunum þar
sem þeir sýndu myndina fyrir troð-
fullum sal af flugþreyttum og sjúsk-
uðum gagnrýnendum. Þetta gæti að
einhverju leyti skýrt þá blendnu dóma
sem myndin var að fá í gær en það
var töluvert hrotið í Palais de Festival á
meðan myndin rúllaði yfir tjaldið. Sam-
ræðurnar þróuðust hins vegar út á slíkar
brautir að þær eru ekki eftirhafandi og
óprenthæfar með öllu. Þær voru samt
skemmtilegar enda varla við öðru að
búast þegar saman koma blaðamenn
frá Morgunblaðinu, Fréttablaðinu,
margreyndir Cannes-farar og Strákarnir
Auðunn Blöndal og Ofur Hugi. Þetta
var gott partí og ég á einhvern veginn
bágt með að sjá það fyrir mér gerast hjá
öðrum en Íslendingum að útsendarar
tveggja stærstu dagblaða þjóðarinnar
og harðra samkeppnisaðila geti setið
í mesta bróðerni yfir rósavíni og
skipst á gamansögum. Það ber
þó að hafa það í huga að það
eru allir vinir í Cannes. Skammd-
egisþunglyndi er ekki til í orða-
bókinni á Cannesjum og
hvergi er betra að vera.
Þessi lífsgæði hafa þó
þann ókost að villurnar
eru að seljast á vel yfir
100 milljónir. Hátíðin
sjálf virðist ætla að vera
með rólegra móti í ár
og myndirnar í keppninni
um Gullpálmann eru fæstar
að vekja mikla athygli, í það
minnsta enn sem komið er.
Pedro Almodovar lofar samt góðu með
Volver og Ken Loach er alltaf vel þess
virði að skoða. Da Vinci Code og
X-Men 3 eru plássfrekar en inni
á milli leynast spennandi myndir
sem maður verður einhvern
veginn að finna sér tíma til
þess að sjá. Stjörnurnar
eru byrjaðar að streyma á
staðinn. Samuel Jackson
og Cillian Murphy spóka
sig á götunum og
Monica Bellucci, sem
á sæti í dómnefndinni
ásamt Jackson, er búin
að stilla sér upp fyrir
myndavélarnar þannig
að þetta er allt að
koma.
CANNES ÞÓRARINN ÞÓRARINSSON BLOGGAR FRÁ FRAKKLANDI
Ölstofan í Cannes
We might just make it. Did
that thought ever cross your
brain? Well, regardless I would
rather take my chance out
there on the ocean, that to stay
here and die on this shithole
island spending the rest of
my life talking to a god damn
VOLLEYBALL!
Chuck Nolan er staðráðin í að komast heim í hinni
mögnuðu kvikmynd Cast Away þar sem Tom Hanks
fór hamförum.