Fréttablaðið - 18.05.2006, Qupperneq 94
18. maí 2006 FIMMTUDAGUR62
NÝR STÓR
HUMAR
GRILLPINNAR
SIGIN GRÁSLEPPA
Morgunverðurinn: Café Roma við Rauðarárstíg er
opnað snemma dags alla daga vikunnar. Þetta er
sætt bakaríiskaffihús þar sem þú getur notið nýjustu
dagblaðanna yfir kaffi og bakkelsi og svo geturðu kippt
brauði með þér heim til að eiga með síðdegiskaffinu.
Þráðlaust net á staðnum.
Tónlistin: Ástral-
inn Jack Johnson
er að gera afar
góða hluti.
Nýjasti diskurinn
hans er algjör
snilld en hann
heitir In Between
Dreams. Drengur
þessi býr á
Hawaii þar sem
hann stundar brimbretti á milli þess sem hann semur
þessa ljúfu tónlist sem kemur öllum í gott skap.
Hreyfingin: Sumarið er tíminn til þess að prófa
eitthvað nýtt svo Fréttablaðið stingur upp á því að fólk
prófi svifvængjaflug í sumar. Fisfélag Reykjavíkur stend-
ur fyrir námskeiði í íþróttinni. Sjá nánar inni á www.
fisflug.is
Dekrið: Franska
verslunin L´Occitane á
Laugavegi var að taka
inn nýja líkamsvörulínu
sem er samsett úr
grænu te og jasmínu
og ilmar guðdómlega.
Í línunni er að finna
ilmvatn, líkamskrem,
baðtöflur, líkamsúða,
sápu og fljótandi ilmkerti. Umbúðirnar eru í seiðandi
austurlenskum stíl og afar fallegar. Ferskleiki franska
sumarins skilar sér hér beint í æð í gegnum jasmínu-
ilminn.
Heimasíðan: Kíkið inn á www.ikea.com en þar er að
finna hana Önnu sem er sérlegur ráðgjafi fyrirtækis-
ins. Anna svarar hvaða spurningum sem er þótt hún
sé reyndar hrifnust af spurningum sem tengjast Ikea.
Spurningarnar eru einfaldlegar slegnar inn í þar til gert
box og netstúlkan Anna svarar manni um leið.
Viðburðurinn:
Stærsti kvenna-
kór landsins,
Léttsveit
Reykjavíkur,
blæs til tónleika
í Langholtskirkju
á föstudags-
kvöld. Kórinn
er nýkominn frá Kúbu og verður tónlistarprógrammið
eitthvað litað af þeirri ferð. Einnig er tilvalið að kíkja
við í Eurovisonpartíi Páls Óskars og Rásar 2 á Nasa á
laugardagskvöld.
Helgin okkar...
FRÉTTIR AF FÓLKI
Ófarir Eyþórs Arnalds eru mörgum netverjum
hugðarefni þessa dagana.
Bloggarinn dr. Gunni skrifar
á heimasíðu sína, this.
is/drgunni, að bæði
Eyþór og morfínfíkl-
arnir Jói og Gugga
í Kompásþáttunum afsaki „aumingja-
skapinn“ í sér á einfaldan hátt, Jói og
Gugga kenni „fíklinum í sér“ um en
Eyþór kenni „dómgreindarleysi“ um það
að hann ók ölvaður á ljósastaur. „Það
er alltaf best að kenna öðrum um, sér-
staklega er gott að finna upp „sjúkdóm“
til að klína öllu á. Þegar leti verður skil-
greind sem sjúkdómur verð ég fyrstur í
röðinni með resept,“ skrifar Dr. Gunni,
sem situr reyndar ekki auðum höndum
þessa dagana því hann er að semja
söngleik sem áformað er að frumsýna í
byrjun næsta árs.
Sögusagnir hafa verið í gangi um það að sjónvarpsþulan Ellý Ármanns-
dóttir áformi að gefa út nýtt helgarblað
innan tíðar. Í samtali við Fréttablaðið
staðfesti Ellý að hún hefði undanfarið
kannað landslagið og rætt við fjárfesta
um að koma að verkinu. Ellý
segir þó að engra tíðinda
sé að vænta af málinu
fyrr en í haust í fyrsta
lagi. Þangað til einbeitir
hún sér að fyrirtæki sínu,
Spámaður.is, og
þulustörfum hjá
Sjónvarpinu.
Íslendingar í Kaupmannahöfn bíða nú spenntir eftir að nýtt kaffihús Friðriks
Weisshappel og félaga verði opnað á
Austurbrú. Eins og kom fram í Frétta-
blaðinu fyrir skemmstu er þar um að
ræða annað útibú frá The Laundromat
Café, en hið fyrra hefur
notið mikilla vinsælda.
Friðrik segir að lítilshátt-
ar tafir hafi orðið á fram-
kvæmdunum undanfarið.
Stefnt er að því að
kaffihúsið verði
opnað eftir rétt
rúman mánuð.
Vinsældir Andra Snæs Magnússonar og Draumalands hans þykja með
ólíkindum. Andri hefur ferðast víða
undanfarið og haldið fyrirlestra um
efni bókarinnar. Þannig var hann á
Húsavík á þriðjudag og
mættu um 90 manns til
að hlýða á rithöfundinn.
Það þykir þó nokkuð þar
á bæ og segja heima-
menn að helmingi færri
hafi sótt fund Halldórs
Ásgrímssonar á sama
tíma í bænum. - hdm
HRÓSIÐ
...fær dansparið Karen Björk
Björgvinsdóttir og Adam Reeve
sem hafa unnið til fjölda verð-
launa í samkvæmisdönsum fyrir
hönd Íslands. Þau hafa nú
ákveðið að hætta keppni og
einbeita sér að dansþjálfun og
sýningum.
www.sturta.is
allan sólarhringinn!
Sími: 565-5566R
e
yk
ja
ví
k
u
rv
e
g
u
r
6
4
,
H
a
fn
a
rf
jö
rð
u
r.
Fyrir
hornið…
Aldrei hef ég notið eins mikillar fjöl-
miðlaathygli og hér í Grikklandi. Hinar
ýmsu sjónvarpsstöðvar hafa beðið
mig að gefa álit á keppanda sínum og
aðbúnaðinum hér í Grikklandi.
Ung grísk sjónvarpskona frá sjálfstæðu
sjónvarpsstöðinni Antenna 1 vatt sér að
mér þar sem ég drakk pepsí af stút og
horði á Önnu Vissi, gríska keppandann,
æfa á sviði. Ég rétt náði að kyngja áður
en ég var beðin um að syngja íslenska
Eurovision-lagið. Var þjóðinni ekki til
sóma þar sem ég gaulaði Congratulat-
ions í tóntegund sem lagið hefur aldrei
heyrst í áður. Var síðan beðin um að
dæma frammistöðu Önnu Vissi. Frábær,
svaraði ég. Hvað gat ég annað sagt eftir
endalausan misskilning grískra fjölmiðla
á orðum Silvíu Nætur. Var beðin að
syngja lag Önnu. Sá mér vænstan leik
að koma mér undan því. Hældi Önnu
fyrir frábæra hæfileika og sagðist alls
ekki geta fetað í fótspor hennar.
Stoppuð af fréttamanni Andorra.
Hann vildi vita hvernig ég taldi að
öskubuskunni Jenny myndi ganga í
keppninni. ,,Rosalega vel,” sagði ég,
þrátt fyrir að muna ekkert sérstaklega
eftir laginu. Sagði þó að ég teldi tæpt að
hún næði úr undanúrslitunum en bætti
henni þar snögglega í hóp Silvíu Nætur
og sagði svo erfitt að segja. ,,Ævintýrin
gerast enn,” aulaði ég út úr mér. Beðin
að segja hvernig mér líkaði aðstaðan
hjá Grikkjunum. ,,Aldrei verið betri,”
svaraði ég svellköld, þrátt fyrir að vera í
fyrsta sinn í keppninni. Það er engin lygi.
Aldrei séð það verra.
EUROVISION GUNNHILDUR GUNNARSDÓTTIR SKRIFAR FRÁ GRIKKLANDI
Söng Congratulations í grísku sjónvarpi
SILVÍA NÓTT Hefur verið á fullu síðastliðna
daga við að fínpússa atriðið.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
„Dropinn sem fyllti mælinn var
fjarvera Silvíu Nætur á bensín-
stöð Esso við Ártúnshöfða nú á
dögunum, þar sem aðdáendur
hennar voru samankomnir í þeim
tilgangi að fá nýja geisladiskinn
hennar áritaðan. Þarna var fjöldi
manns samankominn, en sorgleg-
ast var að sjá yngstu kynslóðina
standandi þarna eins og stranda-
glópar með tárin í augunum og
reiðar mæður að róa þau. Þetta
fólk beið klukkutímunum saman
til að berja hana augum,“ segir
Ástrós Lilja Einardóttir, stofnandi
og eigandi einnar stærstu aðdá-
endasíðu Silvíu Nætur, www.
silvianott.com, sem nú hefur verið
lokað fyrir fullt og allt. „Við vorum
búin að fá nóg af látalátunum og
stjörnustælunum svo ákveðið var
að leggja síðuna niður.“ Í tilefni af
lokun síðunnar sendu aðstandend-
ur hennar frá sér yfirlýsingu þar
sem fram komu ástæður lokunar-
innar. „Til að byrja með voru
stjörnustælarnir skemmtilegir
enda tilgangurinn með gríninu en
hún fór langt yfir strikið. Grínið
hefur súrnað og er langt frá því að
vera fyndið lengur. Silvía var í
okkar huga ein bjartasta von land-
ins og frægðarsól hennar reis
óvenju hratt en við áttum ekki von
á því að þetta færi út í einhverja
vitleysu,“ undirstrikar Ástrós. „Þá
hefur hegðun hennar í Grikklandi
valdið okkur miklum áhyggjum.
Þarna á hún að vera landi sínu og
þjóð til fyrirmyndar en er okkur
til háborinnar skammar í raun.
Fólk er almennt hneykslað og skil-
ur ekkert í framkomu hennar. Ég
fékk tölvupóst síðast í dag frá fok-
illum Grikkjum sem sögðust sár-
móðgaðir yfir dónaskapnum í
henni. Rétt áður en við lokuðum
síðunni hafði fjöldi manns sam-
band við okkur, foreldrar og aðrir,
og tjáðu okkur vonbrigði sín með
hátterni hennar sem væri komið
yfir öll velsæmismörk. Ungar
stúlkur fylkjast um stjörnuna og
herma eftir öllu sem hún gerir.
Þegar fúkyrði fjúka af vörum
stjörnunnar í sífellu, taka þær
þetta auðvitað upp. Það þykir for-
eldrum að vonum slæmt. Og nú
segist hún aðeins tala ensku jafn-
vel þótt hún sé að tala við Íslend-
inga. Ætli ungir íslenskir aðdáend-
ur taki ekki líka upp þessa vitleysu
og leggi móðurmálið á hilluna,“
spyr Ástrós alvarleg í bragði. „Við
tökum ekki lengur þátt í þessum
sirkus. Vefsíðan okkar hefur verið
mikið ævintýri. Hún varð stærri
en okkur óraði fyrir og óx mun
hraðar en við gerðum nokkri sinni
ráð fyrir. Á þeim þremur mánuð-
um sem síðan hefur verið opin
hafa nánast 20.000 manns lagt leið
sína hingað. Þetta hefur verið ein-
staklega skemmtilegt og ég vil
nota tækifærið og þakka þeim
þúsundum aðdáenda Sivíu Nóttar
sem hafa stutt okkur og eins þeim
fyrirtækjum sem hafa sýnt okkur
stuðning. Að reka aðdáendasíðu
kostar bæði mikla fyrirhöfn og
pening og þar er ekki auðvelt að
loka henni. En fyrir okkur er þetta
ævintýri á enda. Við vonum að
karakterinn Silvía Nótt, sem
Ágústa Eva leikur, taki sig saman í
andlitinu,“ segir Ástrós að lokum
og leggur áherslu á orð sín. Í til-
efni af undankeppni í Söngva-
keppni evrópskra sjónvarpsstöðva
sem sjónvarpað verður í kvöld, er
rétt er að vekja athygli á því að
samkvæmt könnun á vegum Neyt-
endasamtakanna er Ísland í fjórða
sæti af þeim 26 löndum sem skoð-
uð voru, hvað varðar hæsta verð á
SMS-skeytum og símaatkvæðum í
þátttökulöndunum. Aðeins Grikk-
ir, Rúmenar og Spánverjar greiða
hærra verð.
ÁSTRÓS LILJA EINARSDÓTTIR: KOMIN MEÐ NÓG AF STJÖRNUSTÆLUM
Snýr baki við Silvíu Nótt
ÁSTRÓS LILJA EINARSDÓTTIR Síðan hefur nú verið lögð niður vegna þess að Silvía Nótt
hefur að hennar mati farið yfir strikið. FRÉTTABLAÐIÐ/HÖRÐUR
LÁRÉTT
2 óskiptu 6 hæð 8 sægur 9 yfir rúm
11 frú 12 flott 14 smápeningar 16
nafnorð 17 fjór 18 tunnu 20 golf
áhald 21 gort.
LÓÐRÉTT
1 líkamshluti 3 í röð 4 sendir 5 dýra-
hljóð 7 skemmtun 10 frostskemmdir
13 bein 15 eyja 16 lík 19 tveir eins.
LAUSN
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
LÁRÉTT: 2 öllu, 6 ás, 8 mor, 9 lak, 11
fr, 12 smart, 14 klink, 16 no, 17 fer, 18
ámu, 20 tí, 21 raup.
LÓÐRÉTT: 1 háls, 3 lm, 4 loftnet, 5 urr,
7 samkoma, 10 kal, 13 rif, 15 krít, 16
nár, 19 uu.
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI