Fréttablaðið - 07.06.2006, Side 12
12 7. júní 2006 MIÐVIKUDAGUR
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
2
19
6
4
Krabbameinsfélagsins
Glæsilegir vinningar:
www.krabb.is
Dregi› 17. júní 2006
Vertu með og
styrktu gott málefni!
ATVINNUMÁL Ljósmyndarar eru
ósáttir við þá breytingu sem felst í
útgáfu nýrra vegabréfa. Breyting-
in er sú að umsækjendur vega-
bréfa geta núna látið taka mynd af
sér þar sem vegabréfið er sótt sér
að kostnaðarlausu. Ástæða breyt-
ingarinnar er sú að íslensk yfir-
völd þurfa að uppfylla alþjóðlega
staðla.
Guðmundur Jóhannesson ljós-
myndari segist missa um þrjátíu
prósent af veltu sinni við þessa
breytingu. Hann spyr hvort það
geti talist eðlilegt að hið opinbera
eigi í samkeppni við ljósmyndara.
Hann bendir á að ljósmyndun sé
lögvernduð iðngrein og þeir sem
séu að taka passamyndirnar núna
séu ekki lærðir. Hann spyr einnig
hvernig stjórnarskrárákvæðið um
réttindi til atvinnu rími við þessa
breytingu.
Gunnar Jónasson, formaður
Ljósmyndarafélags Íslands, segir
málið mjög alvarlegt og að félagið
muni leita réttar síns en það hefur
þegar ráðið lögmann til þess að
fara yfir málið.
Fólk getur komið með eigin
ljósmynd óski það þess en það er
gert til þess að koma til móts við
ljósmyndara. „Ég treysti mér ekki
til þess að réttlæta þá stefnu að
senda fólk að óþörfu í einhvern
aukatúr út í bæ til þess að ná sér í
myndir og borga fyrir það tals-
verða fjármuni þegar þess þarf
ekki,“ segir Haukur Guðmunds-
son, formaður verkefnisstjórnar
um ný vegabréf. - gþg
Ljósmyndarar eru ósáttir við fyrirkomulag við útgáfu nýrra vegabréfa:
Ljósmyndarar missa tekjur
GUÐMUNDUR KR. JÓHANNESSON LJÓS-
MYNDARI Spyr hvort nýtt fyrirkomulag
passamynda standist samkeppnislög.
UMHVERFISMÁL Sigríður Anna Þórð-
ardóttir umhverfisráðherra hefur
sett af stað rannsókn á áhrifum
sinueldanna á Mýrum á náttúru og
lífríki, sem Náttúrufræðistofnun
Íslands hefur unnið að. Rannsókn-
aráætlunin er til fimm ára og mun
kostnaðurinn við hana nema sex-
tíu milljónum króna, þar af 20-25
milljónum frá ríkinu.
Ætlunin með rannsókninni er
að fylgjast með hvernig náttúran
hagar sér í kjölfar eldanna og mun
þá fuglalíf, gróður og annað lífríki
á svæðinu verða tekið til athugun-
ar. Hins vegar hefur verið hætt
við rannsókn á hagamúsum vegna
sparnaðar. - sgj
Umhverfisráðherra:
Lætur rann-
saka sinuelda
SINUELDUR Á MÝRUM Eldarnir sviðu allt
sem á vegi þeirra varð.
GYÐJA MEÐ ÞÚSUND HENDUR Tai Lihua
heitir hún og dansar með dansflokki
fatlaðra í Kína. Hér er hún að túlka gyðju
náðarinnar, sem hefur þúsund hendur, en
henni til stuðnings eru tuttugu daufdumbir
dansarar. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
UMFERÐ Umferðarstofu hefur sett
af stað auglýsingaherferð þar sem
fólk er sérstaklega hvatt til að
spenna bílbeltin. Auglýsingarnar
eru byggðar á norskri herferð sem
heitir „Heaven can wait“ og fékk
Umferðarstofa leyfi til að laga
þær að íslenskum aðstæðum, en
Hvíta húsið og Spark ehf. önnuð-
ust gerð þeirra.
Fjórðungur þeirra ökumanna og
farþega sem létust í bílslysum árið
2005 voru án beltis, en samkvæmt
rannsóknum eru átta prósent öku-
manna og sextán prósent farþega
beltislaus í umferðinni. Á þessu má
sjá að líkurnar á banaslysi aukast
verulega séu bílbelti ekki notuð. - sgj
Nýtt átak Umferðarstofu:
Bílbelti bráð-
nauðsynleg
AUGLÝSINGAR UMFERÐARSTOFU
Fjórðungur ökumanna og farþega sem
létust í umferðinni 2005 var án beltis.
Bensínlaus bátur Tveir menn og
tvö börn voru hætt komin þegar lítill
skemmtibátur sem þau voru á varð
eldsneytislaus skammt úti af Kjalarnesi.
Elding dró bátinn í land að beiðni Land-
helgisgæslu og enginn hlaut skaða af.
LÖGREGLUFRÉTTIR
ÍRAK, AP Næstæðsti herforingi
bandaríska hersins í Írak mun á
næstunni skoða bráðabirgða-
skýrslu um fjöldamorðin í Had-
itha, segir bandarískur þingmað-
ur sem er nýkominn frá landinu.
Heimildir benda til tilefnis-
lausra morða bandarískra her-
manna á 24 óbreyttum borgurum í
nóvember og hefur forsætisráð-
herra Íraks, Nouri al-Maliki, kvart-
að yfir virðingarleysi hermanna
gagnvart íröskum borgurum.
Forsætisráðherrann stendur
nú í ströngu við að koma saman
ríkisstjórn en enn hefur engin sátt
náðst um tvö lykilembætti, innan-
ríkis- og varnarmálaráðherra,
þótt frestur sem gefinn var til
þess sé liðinn. - sgj
Fjöldamorðin í Haditha:
Skýrslu vænst
HEILBRIGÐISMÁL Alls er 621 eldri
borgari á biðlista eftir búsetu-
úrræði í Reykjavík, samkvæmt
upplýsingum velferðarráðs borg-
arinnar. Þetta var staðan 1. júní
2006, en tölurnar voru teknar
saman fyrir Fréttablaðið.
Í síðustu viku greindi blaðið frá
stöðu mála aldraðra á Landspítal-
anum, en þar bíða 97 aldraðir eftir
öðrum dvalarúrræðum. Sú bið
kostar samtals 2,6 milljónum
meira á dag heldur en ef fólkið
dveldi á hjúkrunarheimilinu Eir.
„Þetta ástand
er þjóðinni til
skammar og alger-
lega óviðunandi,“
segir Vilhjámur Þ.
Vilhjálmsson,
verðandi borgar-
stjóri og stjórnar-
formaður hjúkr-
unarheimilisins
Eirar, um ofan-
greinda stöðu. „Ég hef verið að
vinna að uppbyggingu búsetu-
úrræða fyrir eldri borgara alla
mína tíð í borgarstjórn. Ég ætla að
setja aukinn kraft í þennan mála-
flokk, því það hefur engin þjón-
ustuíbúð verið byggð síðustu tólf
árin og þetta eru afleiðingarnar.
Þessi málaflokkur verður í for-
gangi hjá mér.“
Vilhjálmur segist vilja sjá fleiri
öryggisíbúðir, á borð við þær sem
reknar eru hjá Eir, í Reykjavík.
Fólkið sem sé í þeim fái þjónustu
frá hjúkrunarheimilinu. Það sé að
stórum hluta á biðlistum eftir
hjúkrunarrými eða þjónustuíbúð-
um. Ríkið komi að uppbyggingu
hjúkrunarheimila í samvinnu við
sveitarfélögin. Uppbygging þjón-
ustuíbúða og öryggisíbúða sé á
hendi sveitarfélaganna og ein-
hverra sjálfseignarstofnana eftir
atvikum.
„Bygging öryggisíbúða er
úrræði sem borgin getur gripið til
án þess að þurfa að eiga samráð
um það við ríkið. Til þess úrræðis
ætlum við að grípa í nýjum meiri-
hluta borgarstjórnar. Þá stendur
til að hefja uppbyggingu hjúkrun-
arheimilis fyrir hundrað manns í
Mörkinni. Það hefur dregist úr
hömlu að koma því verkefni af
stað. Það verður eitt af mínum
fyrstu verkum að ræða við heil-
brigðisráðherra um að þeirri
framkvæmd verði flýtt eins og
kostur er. Þá stendur til að byggja
annað hjúkrunarheimili, einnig
fyrir hundrað manns, á Lýsislóð-
inni. Bygging þessara tveggja
hjúkrunarheimila kostar um þrjá
milljarða.“
jss@frettabladid.is
Á sjöunda hundrað
aldraðra á biðlista
Ríflega 620 eldri borgarar eru á biðlista eftir búsetuúrræði í Reykjavík. Þar af
eru 237 í mjög brýnni þörf. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson segir þessa stöðu vera
„þjóðinni til skammar og algerlega óviðunandi“. Málið sé í forgangi.
VILHJÁLMUR Þ.
VILHJÁLMSSON
ALDRAÐIR Í BRÝNNI ÞÖRF Á biðlista eftir hjúkrunarrými eru 278 einstaklingar. Þar af eru
237 aldraðir einstaklingar í mjög brýnni þörf. 343 eru á biðlista eftir þjónustuíbúð.
DÝRAHALD Hrossaeigandi í Svarf-
aðardal sem var kærður til hér-
aðsdýralæknis fyrir aðbúnað
hrossa og óþrifnað í hesthúsum
hefur gert hreint fyrir sínum
dyrum.
Hafði ekki verið mokað undan
fjórum graðfolum og tveimur gelt-
um hrossum í lengri tíma auk þess
sem þeim hafði ekki verið hleypt
út. Eftir að hafa fengið bréf frá
héraðsdýralækni tók eigandinn
sig svo til og fór að vinna í mál-
inu.
Héraðsdýralæknir sagði í sam-
tali við Fréttablaðið að hrossunum
hefði í raun liðið ágætlega og feng-
ið að hreyfa sig inni í reiðhöll í
stað þess að vera hleypt út. Einnig
hefði verið borið sag í skít sem
safnaðist upp svo hrossin hefðu
verið þurr. - at
Kæra aðbúnað hrossa:
Hrossin laus
úr drullunni
FJÖLMIÐLAR DV hefur verið úrskurð-
að brotlegt gegn þriðju grein siða-
reglna Blaðamannafélags Íslands.
Ástæðan er fréttaflutningur DV af
ræstingakonu fyrirtækis í Reykja-
vík sem grunuð var um þjófnað á
tveim milljónum af starfsmanni
sama fyrirtækis.
„Umfjöllunin jaðraði við nafn-
birtingu og þó liggur ekkert fyrir
um að lögregla hafi grunað kær-
anda um þjófnaðinn,“ segir í
umfjöllun siðanefndar. - gþg
Siðanefnd BÍ úrskurðar:
DV brotlegt
Hjóla fyrir gott málefni Tveir
lögreglumenn og tveir slökkviliðsmenn
hjóla nú í kringum landið til styrktar
Umhyggju, félags til stuðnings langveik-
um börnum. Gengur ferðin vel að sögn
og munu þeir líklega komast til Hafnar
í dag.
LÖGREGLUFRÉTTIR