Fréttablaðið - 07.06.2006, Page 25
MIÐVIKUDAGUR 7. júní 2006 5
Önnur kynslóð Santa Fe
borgarjeppa frá B&L verður
frumsýnd hér á landi um næstu
helgi í húsakynnum B&L.
Samkvæmt fréttatilkynningu
fyrirtækisins er nýja útgáfan
stærri, tæknilegri og betur
búin en fyrstu kynslóðar Santa
Fe jeppar.
Heiðar J. Sveinsson, forstöðu-
maður sölusviðs, segir að miklar
breytingar sé að finna í nýju
útgáfunni. „Þetta eru fyrstu kyn-
slóðaskipti Santa Fe og því var
bílsins beðið með mikilli eftir-
væntingu. Mesta breytingin er sú
að bæði aksturs- og jeppaeigin-
leikar Santa Fe hafa verið upp-
færðir frá grunni og tæknilega
séð stendur bílinn því fyrri kyn-
slóðinni mun framar. Nýja kyn-
slóðin er búin sívirku aldrifi, öfl-
ugri stöðugleikastýringu með
spólvörn og rafdrifinni læsingu
sem staðalbúnað.“
Fjöðrunarkerfi bílsins hefur
einnig verið yfirfarið og fyrir
vikið á bílinn að vera töluvert
stöðugri og rásfastari en fyrir-
rennari hans. Hægt er að fá bílinn
í venjulegri fimm sæta útgáfu og
einnig í stærri sjö sæta útgáfu.
„Vélakosturinn hefur einnig
verið uppfærður og í bílnum er
ný 2,2 lítra VGT túrbódíselvél
sem skilar 150 hestöflum við 4000
snúninga á mínútu,“ segir Heiðar
og bætir því jafnframt við að
einnig verði hægt að fá bílinn
með uppfærðri V6 2,7 lítra vél
sem skilar 189 hestöflum við
sama snúning.
Hönnun bílsins hefur tekið
verulegum breytingum og leggja
framleiðendur nú meiri áherslu á
fágað útlit hans. Heiðar kveðst
ánægður með afraksturinn.
„Árangurinn er glæsilegur og
hefur nýju kynslóðinni verið líkt
við Volkswagen Touareg í
umsögnum erlendra bílablaða.“
Santa Fe var upphaflega hann-
aður með það að leiðarljósi að
vera fjölnota og rúmgóður fjöl-
skyldubíll. Nýja kynslóðin tekur
þá stefnu áfram því hún er enn
rúmbetri en sú fyrri. „Önnur kyn-
slóðin byggir á sama grunni,
nema hvað hún er með enn meira
rými, staðalbúnað og þægindi í
boði. Auk þess býr bíllinn yfir
kröftugum jeppaeiginleikum.“
Frumsýningin verður sem fyrr
segir um næstu helgi og mun hún
standa frá 12 til 16 bæði á laugar-
dag og sunnudag. - vör
Kynslóðaskipti hjá
Santa Fe jeppanum
Bíllinn kemur í mismunandi útgáfum. Sjö
sæta útgáfa Santa Fe er einkar rúmgóð.
Ný kynslóð Santa Fe er fáguð í útliti.
Bíllinn verður frumsýndur á
opnu húsi vélasviðs Heklu 10.
júní næstkomandi.
Vélasvið Heklu hefur hafið inn-
flutning á Mitsubishi Canter
vinnubílum. Bílarnir verða fáan-
legir í nokkrum mismunandi
útfærslum, með vörukassa, föst-
um palli og einnig með sturtu-
palli. Bílarnir eru gerðir fyrir
heildarþyngd frá 3,5 tonnum upp
í 7,5 tonn og eru fáanlegir 3-7
manna með einföldu eða tvöföldu
farþegahúsi.
Mitsubishi Canter hefur þótt
hagkvæmur í rekstri en Hekla
hefur undanfarin ár boðið upp á
þessa bíla og eru þó nokkrir bílar í
umferð hér á landi. Nú er hins
vegar í fyrsta skipti boðið upp á til-
búna bíla með yfirbyggingu beint
frá framleiðanda og er afgreiðslu-
frestur á bílnum aðeins sex vikur.
Fyrstu bílarnir eru komnir til
landsins og verða frumsýndir
laugardaginn 10. júní næstkom-
andi hjá vélasviði Heklu í Kletta-
görðum 8-10 á opnu húsi sem hald-
ið verður þann dag.
Mitsubishi Canter hjá Heklu
Mitsubishi Canter vörubílarnir verða fáan-
legir í mismunandi útfærslum.
Tímaritið Bílar & Sport heldur stór-
sýningu í nýju íþrótta- og sýningar-
höllinni í Laugardal dagana 9. ¿ 11.
júní. Sýningin verður í anda stóru
bílasýninganna sem haldnar eru
erlendis.
Hugmyndabílar, sportbílar, breyttir
jeppar, nýir bílar sem og fornbílar
verður meðal þess sem fyrir augu
ber. Mótorhjól, vélsleðar, bátar og
flugvélar fá sinn skerf svo og önnur
tæki og tól, einnig verða á sýning-
unni þjónustuaðilar sem tengjast
bílum og mótorsporti.
sýning }
Bílar & Sport Jeppadekk
Vagnhöfða 6 • 110 Reykjavík • Sími 577 3080
Vortilboð!
31" heilsársdekk
kr. 11.900
(31x10.50R15)
Aðrar stærðir:
27" 215/75R15, kr. 7.900
28" 235/75R15, kr. 8.900
30" 245/75R16, kr. 10.900
32" 265/75R16, kr. 12.900
Sendum frítt um allt land!