Fréttablaðið - 07.06.2006, Síða 53
MARKAÐURINN
S P Á K A U P M A Ð U R I N N
17MIÐVIKUDAGUR 7. JÚNÍ 2006
S K O Ð U N
Eins og fram kom í fréttaskýring-
arþættinum Kompás fyrir fáum
vikum hefur náðst augljós árang-
ur í því að sporna við innbrotum í
fyrirtæki á höfuðborgarsvæðinu.
Viðmælandi fréttamanns, sem
er kunnugur í undirheimunum,
upplýsir í þættinum að þeir sem
standa í innbrotum í fyrirtæki
séu farnir að leita út á lands-
byggðina, meðal annars vegna
þess að fyrirtækin hér séu mun
betur varin nú en áður og örygg-
isverðir og lögregla séu fljót á
staðinn ef kerfin fara í gang.
Það leiðir til þess að vinnufriður
í innbroti er enginn og líkurnar á
að innbrotsaðili náist á staðnum
eru mun meiri en ella.
Öryggisfyrirtæki bjóða nú
klæðskerasniðnar lausnir í
öryggiskerfum fyrir fyrirtæki
og stofnanir, sem skapa heild-
stæða vörn. Með öryggiskerfum
er hægt að ná góðri stjórnun
og yfirsýn yfir umgengni í við-
komandi fyritæki, brunahættu,
vatnslekahættu, innbrotahættu,
útslætti á rafmagni, hitasveifl-
um í viðkvæmum rýmum og svo
framvegis. Yfirsýn sú sem örygg-
iskerfin skapa ýmist kemur í veg
fyrir tjón eða minnkar líkur á
stórtjóni, þar sem strax er brugð-
ist við, ef kerfin fara í gang.
Öryggiskerfin eru þó almennt þjál
í allri umgengni fyrir starfsmenn
viðkomandi fyrirtækja, enda eiga
þau ekki að hafa nein heftandi
áhrif á möguleika starfsmanna
til umgengni utan hefðbundins
vinnutíma, hafi þeir heimild og
þörf fyrir það. Öryggiskerfin eru
tengd við stjórnstöðvar viðkom-
andi öryggisfyrirtækis, sem sér
um að bregðast við,
berist boð frá kerfinu.
Fyrirtækjum stend-
ur bæði til boða að
leigja búnaðinn sem
settur er upp á staðn-
um samkvæmt svo
kölluðum firmavarn-
arsamningi, vilji fyr-
irtæki losna við stofnkostnaðinn
eða þau geta keypt hann og þar
með tryggt sér lægri mánaðar-
gjöld.
Ábyrgir stjórnendur fyrir-
tækja telja að ráðstafanir til þess
að tryggja öryggi fyrirtækisins
utan almenns vinnutíma, séu
eðlileg og nauðsynleg ráðstöfun
í daglegum rekstri. Enginn vill
verða fyrir óvæntum og óæski-
legum uppákomum,
bara vegna þess að
ekki voru gerðar
sjálfsagðar ráðstaf-
anir til þess að koma
í veg fyrir þær.
Víða verðlauna
tryggingafélög fyrir-
tæki og einstaklinga
sem gera markvissar ráðstafan-
ir til þess að koma í veg fyrir
tjón, með öryggiskerfum, góðri
umgengni og frágangi. Það er að
sjálfsögðu bæði hvetjandi fyrir
þá sem fá slíka umbun, til dæmis
í formi lægri iðgjalda, og minnk-
ar líkur á að eitthvað beri út af í
öryggislegu tilliti.
Árni Guðmundsson, forstöðumaður
öryggisgæslusviðs Securitas
Öryggiskerfi stórauka öryggi í fyrir-
tækjum utan almenns vinnutíma
����������������������������������
����������������������������������
�� ����� ���� ����� ���������� ���
��������� �� ��������� ����� ����
����������� �����������������
���� ������������� �������� �� ���
������ ��� ������ ��������������
�
�
����� ��������� ��� ����� ���� ������
������������� ��� ��������������� ��������������� �� ������ �����
����� �������������� ����
���������������
Það er sama deyfðin yfir þessu
öllu ennþá. Ég hef ekkert getað
gert af viti undanfarna mánuði.
Fyrsti skammtur fór inn á mark-
aðinn þegar mér blöskraði lækk-
unin. Ég er svo sem ekki í miklu
tapi af því, en ég hef ekki séð
nýtt tækifæri til að koma inn á
markaðinn á ný.
Ég hef oft orðið var við þann
misskilning að við spákaupmenn
liggjum yfir hagtölum og tökum
ákvarðanir út frá því. Þetta er
alrangt. Til að ná árangri í mínu
starfi þarf, fyrir utan góðan heila
og afar öflugt taugakerfi, að hafa
djúpstæða þekkingu á mannlegu
eðli og þjóðfélaginu.
Mér hefur stundum fundist
skorta á þennan djúpa skilning
úti á markaðnum. Kannski vegna
þess að þar er mikið af ungu fólki
sem einhvern veginn hefur ekki
brennandi áhuga á neinu nema
peningum og sjálfu sér. Það er
ekki nóg.
Vegna þessa þá fylgist maður
vel með öllu þjóðlífinu og þar
eru ekki nægjanlega góðar
fréttir þessa dagana. Halldór
að hætta og enginn veit hver
tekur við. Þetta getur leitt til
ferlegra vandræða. Þess vegna
er mikilvægt fyrir altæka hugs-
uði eins og mig að skoða málin
vandlega áður en ég tek nýjar
fjárhagslegar ákvarðanir. Ég met
stöðuna þannig að ríkisstjórnin
sé nánast að deyja úr innan-
meinum Framsóknarflokksins.
Efnahagsástandið er tæpt og það
er engin orka eða þor í stjórn-
inni til að taka nauðsynlegar
ákvarðanir til að lenda hagkerf-
inu sæmilega. Ég er því ekkert
sérstaklega bjartsýnn á þetta og
sýnist að markaðurinn sé mér
sammála um stöðumatið.
Það er fullt af fínum hlut-
um að gerast í fyrirtækjunum,
en meðan almennur ótti er um
að hagkerfið geti lent illa, þá
fara menn ekkert í neinar rósir
á hlutabréfamarkaði. Nema ef
vera skyldi svona ískaldir gæjar
eins og Hannes Smárason sem
auðvitað kaupir þegar allir aðrir
eru að gera á sig. Ég stóðst ekki
freistinguna og keypti í Glitni og
svo er ég með stöðu í Straumi og
TM vegna komandi átaka. Þar
með er þetta eiginlega upptalið
og mikil sóun á greind og atorku
að hafa ekki fleiri akra að plægja.
En svona er það. Það sáir enginn
að hausti. Að minnsta kosti ekki
ef menn eru enn með fulla fimm.
Spákaupmaðurinn á horninu
Enginn sáir
að hausti
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI