Fréttablaðið - 07.06.2006, Síða 86
7. júní 2006 MIÐVIKUDAGUR30
Kira Kira, Original Melody og
Siggi úr Hjálmum eru á meðal
þeirra sem hafa bæst við dans- og
raftónlistarhátíðina Bright Nights
sem verður haldin í Árnesi um
næstu helgi.
Einnig hafa bæst við Yagya,
Tonik, Lay Low, Biggi veira og
Maggi lego úr Gusgus. Áður höfðu
meðal annarra skráð sig til leiks
Judith Juillerat, Sebestian Tellier,
Biogen, Hermigervill og Worm is
Green.
Alls verða í boði 47 tónleikar á
37 klukkutímum auk þess sem um
tugur listasýninga verður haldinn.
Forsala aðgöngumiða fer fram
í 12 Tónum, Smekkleysubúðinni,
Hljóðhúsinu á Selfossi og á bright-
nights.com. Miðaverð er 7.500
krónur og er tjaldstæði innifalið.
Nánari upplýsingar má finna á
www.bright-nights.com.
47 tónleikar
á 37 tímum
KIRA KIRA Tónlistarkonan Kira Kira mun
troða upp á tónlistarhátíðinni Bright Nights
í Árnesi.
Angelina Jolie og Brad Pitt hafa
ákveðið að selja myndir af
nýfæddri dóttur sinni Shiloh
Nouvel og láta
ágóðann
renna til góð-
gerðarmála.
en það er
Getty Images
myndabank-
inn sem fær
einkaréttinn á
að dreifa
myndunum en
kaupverðið er
trúnaðarmál.
Shiloh seld
ANGELINA JOLIE
Það má segja að Íslendingar
búsettir í Kaupmannahöfn hafi
tekið forskot á sjómannadagshá-
tíðarhöldin seinnipart fimmtudags
þegar Mugison tróð upp við
íslenska sendiráðið í borginni.
Flaut Mugison og hljómsveit á sér-
útbúnum pramma við kajann þar
sem hundruðir tónleikagesta stóðu
með regnhlíf í annarri og bjór í
hinni. Aðstæður minntu því um
margt á hátíðarhöld úti á landi á
degi sjómanna og þær virtust slá
Mugison og félaga svolítið út af
laginu. Alla vega tók það bandið
nokkra stund að finna taktinn á
prammanum og gerðu áhorfendur
þeim verkefnið ekki auðveldara
enda erfitt að klappa með fangið
fullt.
Mugison og félagar voru komn-
ir til að rokka og hljómuðu sum
lögin næstum óþekkjanleg í þess-
um nýja búningi. Þannig var opn-
unarlagið, Sad as a truck flutt
næstum án söngs en best fór rokk-
ið í Poke a pal sem hljómaði þrusu
vel í nýrri útfærslu. Mugison er
greinilega í leit að nýjum hljómi
og það var áhugavert fyrir tónlist-
argesti að fá fylgjast með tónlist-
armanninum í leit að rokktaktin-
um sem sennilega verður áberandi
á næstu plötu.
En það voru ekki bara Íslend-
ingar sem sóttu tónleikana því
Mugison á sér hóp áhangenda í
Danmörku enda verið duglegur
við tónleikahald í landinu síðasta
árið. Fréttablaðið náði tali af
tveimur þeirra. „Ég sá hann í
fyrra á Hróarskeldu og fannst
hann betri þá. Tónlistin hans er
ótrúlega fjölbreytt og hann er
mikill húmoristi“, sagði Anne og í
sama streng tók Johan sem sagði
að aðstæður væru ekki nógu góðar
á svæðinu. „Ég hefði frekar vilja
sjá hann spila í litlum sal eins og
hann gerði hér í haust. Það voru
frábærir tónleikar.“ Það er því
vonandi að Mugison fáist um borð
í prammann á nýjan leik við ögn
breyttar aðstæður og þá yrði
stemmingin vafalaust eins og á
besta sjómannaballi. -ks
Mugison rokkaði á pramma
ROKKIÐ LIFIR Mugison og Guðni Finnsson voru þéttir en nokkur af vel þekktum lögum
kappans voru nánast óþekkjanleg í nýjum búningi.
Reykvískir rokkarar og
aðrir áhugamenn um tónlist
létu veðurguðina ekki aftra
sér í að hlýða á íslenska og
erlenda tónlistamenn.
Tónlistarhátíðin Reykjavík Trópík
var haldin á lóð Háskóla Íslands
og á Nasa um helgina. Fjölmargar
frambærilegar hljómsveitir, bæði
innlendar og erlendar, mættu til
leiks og ber þar hæst að nefna
bresku rokkarana í Supergrass.
Einnig komu þar fram vinsælar
sveitir á borð við Trabant, Appar-
at Organ Quartet og Benna Hemm
Hemm. Góður rómur var gerður
að hátíðinni og þótti skipulagning-
in vel af hendi leyst.
Forsvarsmenn Reykjavík Trópík
vonast til að halda hana aftur að ári
og vonandi verður sú raunin, enda
ekki á hverjum degi sem tónlistar-
hátíð er haldin hér á landi í stóru og
litríku sirkustjaldi.
Velheppnuð Reykjavík Trópik
Í GÓÐUM GÍR Þessir krakkar voru í góðum
gír inni í tjaldinu stóra.
TRABANT Sviðsframkoma Ragnars Kjart-
anssonar og félaga í Trabant var í hæsta
gæðaflokki.
STEMNING Hörkustemning myndaðist á
tónlistarhátíðinni og skemmti fólk sér hið
besta.
APPARAT Hljómsveitin sérstæða Apparat
Organ Quartet tróð upp á Reykjavík Trópík
eftir nokkurt hlé.
SUPERGRASS Hljómsveitin Supergrass, með söngvarann og gítarleikarann Gaz Coombes
í fararbroddi, stóð sig að vonum með mikilli prýði og tók hún flest af sínum vinsælustu
lögum. FRÉTTABLAÐIÐI/HÖRÐUR