Fréttablaðið - 22.06.2006, Blaðsíða 4
4 22. júní 2006 FIMMTUDAGUR
DÓMSMÁL Jón Ásgeir Jóhannesson,
forstjóri Baugs, hefur verið boðað-
ur til yfirheyrslu hjá ríkislögreglu-
stjóra 28. júlí næstkomandi vegna
meintra skattalagabrota. Boðunin
kom í kjölfar rannsóknar skatt-
rannsóknarstjóra en niðurstöður
hans voru sendar til ríkislögreglu-
stjóra sem boðaði Jón Ásgeir til
skýrslutöku vegna meintra skatta-
lagabrota Baugs, Gaums og Fjár-
fars, sem Jón Ásgeir er sagður
hafa verið í forsvari fyrir. „Útlit
er fyrir að skjólstæðingur minn
þurfi að verja
sumrinu hjá
skattstjóra og rík-
islögreglustjóra
við skýrslutöku,“
sagði Gestur
Jónsson, lögmað-
ur Jóns Ásgeirs,
fyrir dómi í gær
og ítrekaði þá
skoðun sína að
boðun Jóns
Ásgeirs til yfir-
heyrslu væri
„grafalvarlegt
mál fyrir réttar-
ríkið“.
Gestur krafð-
ist þess í mál-
flutningi fyrir
dómi að endur-
ákærum í Baugs-
málinu yrði vísað
frá dómi, vegna
mikilla annmarka. Gestur sagði
jafnframt ljóst að sú ákvörðun rík-
issaksóknara að endurákæra í mál-
inu á grundvelli sömu málsgagna
og lágu fyrir í málinu sem Hæsti-
réttur vísaði frá 10. október í fyrra,
stangaðist á við Mannréttindasátt-
mála Evrópu. Á þeim forsendum
krafðist hann frávísunar á málinu
og greiðslu málskostnaðar úr rík-
issjóði.
Sigurður Tómas Magnússon,
settur saksóknari í málinu, rakti af
nákvæmni efni fyrsta ákæruliðs-
ins af nítján en í honum, sem jafn-
framt er umfangsmesti ákærulið-
urinn, er Jón Ásgeir einn ákærður
fyrir fjársvik og umboðssvik.
Sigurður Tómas sagði ljóst að
um „umfangsmesta fjársvikamál
íslenskrar réttarsögu væri að
ræða“, og því ekki óeðlilegt þó
ákærurnar virtust flóknar og efn-
ismiklar.
Jón Ásgeir er ákærður fyrir
fjársvik, og umboðssvik, vegna
kaupa á verslunarkeðjunni 10-11.
Tjón Baugs er talið nema 325 millj-
ónum króna vegna brota er snerta
fyrsta ákæruliðinn, en í heildina
eru fjársvikin, sem nefnd eru í
ákæru, talin nema 358,6 milljónum
króna. Sigurður Tómas sagði Jón
Ásgeir hafa „vísvitandi beitt blekk-
ingum“, við kaupin á verslunar-
keðjunni sem gengið hefði verið
frá 5. nóvember 1998. Samkvæmt
ákæruliðnum er hagnaður Jóns
Ásgeirs og félaganna Gaums og
Fjárfars, sem hann var í forsvari
fyrir, sagður hafa numið 200 millj-
ónum króna vegna þessara við-
skipta.
Gestur sagði ákærurnar
meingallaðar. „Líklega hefur eng-
inn maður lesið endurútgefnar
ákærur í málinu jafn oft og ég, en
samt finnst mér þær óskiljanleg-
ar.
Í ákærunum eru viðamiklar
staðreyndavillur. Það er til að
mynda ekki að finna neina stoð
fyrir því, í þeim tugum þúsunda
blaðsíðna sem teljast til gagna
málsins, að gengið hafi verið frá
viðskiptum vegna 10-11 á þeim
tíma sem tiltekið er í ákæru.“
Sigurður Tómas mótmælti því
að ákærurnar væru gallaðar.
„Þetta er umfangsmikið og flókið
mál. Ákærurnar er skiljanlegar
öllum þeim, sem þær vilja að
skilja.“ magnush@frettabladid.is
����������������������������������������� ������������
�������������
������������
������� �����
�����������������������������������������������������������������
����
�����
�����
�
��� ��� ��
�������������� ���
��������������
�����
GENGIÐ
GENGI GJALDMIÐLA 21.06.2006
Bandaríkjadalur 74,43 74,79
Sterlingspund 137,08 137,41
Evra 93,94 94,46
Dönsk króna 12,61 12,64
Norsk króna 11,86 11,93
Sænsk króna 10,21 10,27
Japanskt jen 0,6471 0,6509
SDR 109,79 110,45
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
KAUP SALA
130,3053
Gengisvísitala krónunnar
Lögregla boðar Jón Ásgeir í
yfirheyrslur í nýju sakamáli
Forstjóra Baugs er gert að mæta í skýrslutöku 28. júlí næstkomandi. Persónulegar árásir á hendur Jóni
Ásgeiri, segir verjandi hans. Jón Ásgeir sakaður um stórfelld fjársvik vegna kaupa á verslunarkeðjunni 10-11.
SIGURÐUR TÓMAS
MAGNÚSSON
GESTUR JÓNSSON
LÖGMENN Í DÓMSSAL Settur saksóknari, Sigurður Tómas Magnússon, og verjendurnir Gest-
ur Jónsson og Jakob Möller tókust á um frávísunarkröfu verjenda í Baugsmálinu fyrir dómi
í gær. Hér sjást Brynjar Níelsson, verjandi Jóns Geralds Sullenberger og Jakob Möller skoða
málsgögn. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
DÓMSMÁL Stefán Eiríksson, skrif-
stofustjóri í dómsmálaráðuneyt-
inu, staðfesti við Fréttablaðið í
gær að sent hefði verið bréf til
bandarískra dómsmálayfirvalda,
með ósk um aðstoð við rannsókn á
tilteknum þáttum Baugsmálsins,
tveimur dögum eftir að héraðs-
dómur sýknaði sakborninga í mál-
inu af átta ákæruliðum, hinn 15.
mars.
„Ég tjái mig ekki um efnis-
atriði mála sem eru til meðferðar
hjá lögreglu eða dómstólum. Milli-
ganga dómsmálaráðuneytisins í
beiðnum eins og þessum, er ein-
göngu formsatriði. Það er alltaf
samkvæmt ákvörðun handhafa
ákæruvalds sem óskað
er eftir tilteknum upp-
lýsingum,“ sagði Stef-
án.
Jakob Möller, verj-
andi Tryggva Jónssonar,
hélt því fram fyrir dómi
í gær að Björn Bjarna-
son dómsmálaráðherra
hefði brotið gegn stjórn-
arskránni og Mannrétt-
indasáttmála Evrópu
með því að tjá sig um
Baugsmálið á heimasíðu
sinni hinn 15. mars. Þá
birtist á heimasíðu Björns texti
þar sem meðal annars sagði: „Þótt
sjálfur Sesar félli fyrir morð-
ingjahendi þennan dag,
lauk ekki sögu Róma-
veldis, hún hélt áfram.
Um héraðsdóm í Baugs-
máli í dag ætla ég ekki
að ræða, - jafnvel lýsing
mín á staðreyndum,
getur valdið uppnámi.“
Björn Bjarnason
svaraði ekki spurning-
um sem blaðamaður
sendi til hans í tölvu-
pósti seinni partinn í
gær. Þorsteinn Geirs-
son, ráðuneytisstjóri í
dóms- og kirkjumálaráðuneytinu,
beindi spurningum um bréfið til
Stefáns Eiríkssonar. - mh
Bréf sent til bandarískra dómsmálayfirvalda, með ósk um aðstoð, hinn 17. mars:
Leitaði til Bandaríkjamanna
BJÖRN BJARNASON
Björn var borinn þung-
um sökum í dómsal
í gær.
Yfirlýsing Jóns Ásgeirs:
Undrast boðun
til skýrslutöku
Jón Ásgeir
Jóhannesson
sendi í gær frá
sér yfirlýs-
ingu þar sem
hann segir
boðun sína
til yfirheyrslu
„vera tilraun til
þess að dreifa
athyglinni frá
þeirri stað-
reynd að málflutningurinn í málinu
hefði beinst nær allur að göllum á
rannsókn og meðferð málsins“.
Jón Ásgeir segir ljóst að „nýjasta
ákæran í Baugsmálinu beið hnekki
þegar dómari málsins óskaði eftir
skýringum saksóknara á fyrsta kafla
hennar“.
Þá ítrekaði Jón Ásgeir sakleysi sitt og
sagði að líklega ættu „einhverjir hjá
RLS erfitt með að horfast í augu við
mistök sín“. - mh
HOLLAND, AP Lögreglan í Amster-
dam ætlar að ráðast til atlögu við
glæpamenn í Rauða hverfinu í
borginni. Starfsemi Rauða hverf-
isins hefur verið áberandi í borg-
arlífi Amsterdam síðan á sautj-
ándu öld en aðalatvinnugrein
hverfisins varð fyrst lögleg árið
2000.
Tilgangur lögleiðingarinnar
var sá að hafa meiri stjórn á starf-
seminni og koma tekjum vændis-
húsanna inn í skattkerfið. Finnist
eigendur sem eru á sakaskrá
verða leyfi þeirra til „skemmtana-
halds” afturkölluð. - kóþ
Rauða hverfið í Amsterdam:
Lögregluátak
gegn mansali
VÆNDISGLUGGI Í AMSTERDAM 40 prósent
þessara glugga tæmdust þegar bannað var
með lögum að leigja þá konum utan ESB.
DÓMSMÁL Karlmaður var í gær
sýknaður í Héraðsdómi Norður-
lands eystra af ákæru um að hafa
stolið fjórum pakkningum af heil-
um humri, tveimur lambahryggj-
um og þremur lambabógum úr
frystigámi við verslunina Bónus í
Langholti 1 á Akureyri.
Dómurinn taldi ekki hægt að
fullyrða með hvaða hætti mat-
vælin hefðu komist í vörslu
mannsins og ósannað að þangað
hefðu þau komist með saknæm-
um hætti. Ósannað væri því að
hann hefði stolið þeim. Máls-
kostnaðúr upp á 130 þúsund krón-
ur dæmdist á ríkissjóð.
-jss
Héraðsdómur Norðurlands:
Sýknaður af
matvælastuldi
NOREGUR, AP Norski vísindamaður-
inn Jon Sudbø segist hafa verið
undir svo miklu álagi frá vísinda-
samfélaginu um að birta niðurstöð-
ur rannsókna sinna á krabbameini í
munni, að hann hafi ekki séð sér
annað fært en að falsa hluta gagn-
anna sem hann notaði.
Hann segist einnig þjást af geð-
rænum sjúkdómi, og vill að hluta til
kenna því um hvernig fór.
Niðurstöður Sudbøs voru birtar á
síðustu árum í virtum vísindatíma-
ritum á borð við The Lancet í Bret-
landi og The New England Journal
of Medicine í Bandaríkjunum.
Hann hafði áður viðurkennt þessi
afglöp, en tjáði sig í fyrsta sinn við
fjölmiðla í gær. - gb
Norskur vísindamaður:
Falsaði gögn
vegna álags