Fréttablaðið - 22.06.2006, Síða 77

Fréttablaðið - 22.06.2006, Síða 77
FIMMTUDAGUR 22. júní 2006 41 PLAYERS Laugardagskvöld: Stuðhljómsveitin KARMA gerir allt vitlaust CAFÉ ROSENBERG Fimmtudagskvöld: Ameríski dúettinn CLAUDIA & RANDALL Föstudags- og laugardagskvöld: Jazzbandið KRUMMAFÓTUR DJAMMIÐ UM HELGINA: Allt um djammið 29. júní Frumsýning – Uppselt 30. júní – Örfá sæti laus 1. júlí – Uppselt 6. júlí – laus sæti 7. júlí – laus sæti 8. júlí – laus sæti Miðasalan er í síma 568 8000 www.borgarleikhus.is www.minnsirkus.is/footloose Á ÞAKINU 9 . H V E R V I N N U R ! S E N D U S M S S K E Y T I Ð J A S A F Á N Ú M E R I Ð 1 9 0 0 O G Þ Ú G Æ T I R U N N I Ð M I Ð A F Y R I R T V O . V I N N I N G A R E R U • B Í Ó M I Ð A R F Y R I R T V O • D V D M Y N D I R • T Ö L V U L E I K I R V A R N I N G U R T E N G D U R M Y N D I N N I O G M A R G T F L E I R A F R U M S Ý N D 2 2 . J Ú N Í Vi nn in g ar v er Ð a af he nd ir h já B T Sm ár al in d. K óp av og i. M eÐ þ ví a Ð ta ka þ át t e rt u ko m in n í S M S kl úa b b. 9 9 kr /s ke yt iÐ . [KVIKMYNDIR] UMFJÖLLUN Lífið gengur sinn vanagang í ónefndu krummaskuði í miðvest- urríkjum Bandaríkjanna þegar loftsteinn fellur til jarðar. Hann ber með sér óværu úr geimnum; eins konar snigil sem tekur sér bólfestu í mönnum og málleysingj- um, sem fyrir vikið breytast í ban- hungraða uppvakninga, sem éta allt kvikt svo lengi sem á því er kjöt. Starla (Banks) heitir ung og fal- leg kennslukona sem giftist durt- inum Grant Grant (Rooker) til fjár. Hjónabandið er ástlaust auk þess sem Starla rennir hýru auga til lögregluþjónsins og æskuvinar síns, Bills Pardy (Fillion). Grant er svo óheppinn að verða fyrsti hýsill geimsnigilsins á jörðinni. Hann byrjar smám saman að ummyndast og verður miðstýrð samvitund sniglanna og uppvakn- inganna þegar þeir fjölga sér. Þótt hann sé fyrst og fremst keyrður áfram af hungri í kjöt, skipar ástin á Störlu ennþá stóran sess í lífi Grants svo hann sendir uppvakn- ingaher sinn í leit að henni. Slither sver sig í ætt við aðrar gamanhrollvekjur á borð við Trem- ors (1990) og Eight Legged Freaks (2002), sem eiga það allar sameig- inglegt að vera óður til gömlu B- og splatter-myndanna. Í Slither eru til dæmis áhrifin frá The Blob (1958), The Fly (1986) og uppvakninga- myndum George Romero greinileg. James Gunn á að baki tilþrifalítinn feril í leikstjórastól en hefur helst unnið sér það til frægðar að hafa leikstýrt tveimur myndum um Scooby-Doo. Slithers kemur þó skemmtilega á óvart, er ágæt afþreying og sjálfsagt hrollvekj- andi fyrir þá sem eru hóflega klígu- gjarnir. Söguþráðurinn er svo sem ekki beysinn, enda lítil þörf á því þegar uppistaða myndarinnar er mannát og iðradreifing. Samfélags- lýsingin, þar sem úrkynjunin er í fyrirrúmi, er bráðfyndin (Holly- wood verður seint sögð snobba fyrir dreifbýlinu) og hálfkærings- leg samfélagsádeilan ágætlega heppnuð; sérstaklega atriði þar sem Starla áttar sig á að sami hugur stjórnar öllum uppvakningunum og segir með þunga: „Guð minn góður, þetta er vitundarsjúkdómur.“ Slither er sannarlega yfir með- allagi og fellur aldrei í þá gryfju að taka sig alvarlega. Ógeðið er sæmilegt og persónurnar skemmtilegar svo ekki er annað hægt en að brosa út í annað allan tímann. Nokkrum sinnum má skella upp úr, en það vantar herslu- muninn til að myndin heppnist virkilega vel. Geimsniglaveislan SLITHER LEIKSTJÓRI: JAMES GUNN AÐALHLUTVERK: ELIZABETH BANKS, NATHAN FILLION OG MICHAEL ROOKER. Niðurstaða: Ágæt og á köflum meinfyndin afþreying. Sjálfsagt hrollvekjandi fyrir klígju- gjarna en vantar herslumuninn til að fara alla leið. Þingblót Ásatrúarfélagsins fer fram á Þingvöllum í kvöld, Þórs- dag í tíundu viku sumars, og verða tveir nýir goðar vígðir. Vígðum goðum mun því fjölga úr sex í átta en þeir sem vígðir verða, Baldur Pálsson og Haukur Halldórsson, hafa þó verið goðar í alllangan tíma en ekki fengið formlega vígslu. „Svo hefur eitt bæst við á þessu blóti því tvær nafngiftir fara fram á þingblótinu. Það var nú kallað knésetning áður fyrr en það er eiginlega ónothæft í dag því það hefur andstæða merkingu, þýðir ekki lengur að hefja eitthvað til vegs og virðingar,“ segir Óttar Ottósson lögsögumaður Ásatrúar- félagsins, en hann mun einmitt hefja blótið með lestri úr lögum félagsins að fornum hætti. Dansk-íslenska þjóðlagatríóið Krauka frá Jótlandi mun koma fram en þar er fremstur í flokki Guðjón Rúdolf Guðmundsson sem þekktur er fyrir húfu-lagið. Að blótinu og vígslum loknum verður matast og drukkið, en á boðstólum er hvorki meira né minna en reykt hrossakjöt með uppstúfi. „Við heiðingjar erum mjög gjarnir á hrossakjöt og svínakjötsát. En svo höfum við kjúklingapottrétt með. Við lifum fyrst og fremst í nútím- anum en skírskotum til gamalla hefða,“ segir Óttar. Hann bendir á að margt tölvufólk sé á meðal heiðingja svo ljóst er að nýjasta tækni og hin forna trú eiga vel saman. Nýju goðarnir hafa þó lítið með tölvunarfræði að gera, því Baldur, sem verður vígður Freys- goði, er slökkviliðsmaður og í bæj- arstjórn Fljótsdalshéraðs og Haukur, tilvonandi Reykjanes- goði, er myndlistarmaður sem hefur nánast eingöngu fengist við myndefni úr goðafræði. „Allar samkomur Ásatrúarfé- lagsins eru öllum opnar fyrir utan allsherjarþingið í október, og við eigum von á að margir komi við á Þingvöllum. Við höfum reiknað með 50 manns í mat en eflaust verða fleiri við vígsluna,“ segir Óttar. Safnast verður saman við Lögberg kl. 18.00 og svo verður gengið í gjána þar sem blótið fer fram. Blótað á Þingvöllum í kvöld BLÓTAÐ EN EKKI BÖLVAÐ Goðarnir klæðast gjarnan glæsilegum víkingafötum. ÓTTAR OTTÓSSON Óttar er lögsögumaður Ásatrúarfélagsins en er kerfisfræðingur að mennt.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.