Fréttablaðið - 22.06.2006, Side 94
22. júní 2006 FIMMTUDAGUR58
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
Nýr humar, grillpinnar
sólþurrkaður saltfiskur
opið alla laugardaga 11-14
www.sturta.is
allan sólarhringinn!
Sími: 565-5566R
e
yk
ja
ví
ku
rv
e
g
u
r
6
4
,
H
af
n
ar
fj
ö
rð
u
r.
B
la
u
tu
r
st
ú
tu
r
o
g
m
a
ll
a
k
ú
tu
r
HRÓSIÐ
... fær Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson
borgarstjóri fyrir að hefja
veiðitímabilið í Elliðaánum með
því að landa fjögurra punda
hrygnu.
Tónleikarnir
Hljómsveitin Í svörtum fötum
spilar á Nasa á laugardag en tón-
leikarnir hefjast klukkan 23.00.
Silfur
Hádegismatseðillinn á Silfri
er gómsætur og eflaust verður
staðurinn vinsæll um helgina
enda nýopnaður.
Útskriftarveisla
Brautskráning kandídata frá Háskóla Íslands fer
fram í Laugardalshöll á laugardaginn kl. 14.00
og eflaust verða mörg útskriftarpartí um kvöldið.
Verum nú góð við vini og kunningja sem hafa
lokið þessum áfanga og sendum þeim smá
kveðju.
Þjóðminjasafnið
Gaman er að rölta um safnið
og fá sér eitthvað gott á kaffi-
húsinu. Safnið er opið frá 10
til 17 um helgina.
Just my luck
Forvitnilegt verður að sjá
hvernig Lindsay Lohan stend-
ur sig í gamanmyndinni Just
my luck.
Fótboltinn
16 liða úrslit í HM hefjast á laug-
ardag. Spennan magnast, flestir í
fríi og því tilvalið að verja deginum í
smá HM dekur.
Góð helgi...
LÁRÉTT:
2 helminguð 6 utan 8 bæli 9 strit 11
hljóta 12 mest 14 lúkar 16 hvað 17
frostskemmd 18 einkar 20 klukkan
21 krafs.
LÓÐRÉTT:
1 hljóðfæri 3 í röð 4 klapp 5 ham-
fletta 7 heimting 10 rá 13 segi upp
15 samtals 16 merki 19 kusk.
LAUSN:
Framleiðendur heimildarmynd-
arinnar „Þetta er ekkert mál“ sem
fjallar um ævi Jóns Páls Sigmars-
sonar aflraunamanns leita nú
aðstoðar almennings við gerð
myndarinnar.
Framleiðendurna vantar nauð-
synlega kraftatæki sem voru vin-
sæl á mörgum heimilum á níunda
áratugnum, þar á meðal tæki sem
nefnist Bullworker. Einnig eru
þeir sem eiga ljósmyndir eða
myndbandsupptökur af Jóni Páli
hvattir til að hafa samband.
„Við ætlum að klára myndina í
þessum mánuði. Myndin gengur
rosalega vel og við erum að klippa
þetta saman núna,“ segir krafta-
karlinn Hjalti „Úrsus“ Árnason.
„Við finnum fyrir gífurlegri eftir-
væntingu fyrir myndinni í öllum
aldurshópum,“ segir Hjalti en Jón
Páll var einn dáðasti íþróttamað-
ur Íslendinga áður en hann lést
langt fyrir aldur fram.
Myndin verður frumsýnd í
hérlendum kvikmyndahúsum
þann 8. september og fyrir jól
verður hún síðan gefin út á DVD-
mynddiski.
Þeir sem vilja leggja Hjalta og
félögum lið við gerð myndarinnar
geta sent póst á hjaltiar@simnet.is.
- fb
Óska eftir kraftatækjum
JÓN PÁLL
Kraftakarlinn Hjalti „Úrsus“ Árnason er að
undirbúa heimildarmynd um Jón Pál Sig-
marsson og vantar aðstoð frá almenningi.
LÁRÉTT: 2 hálf, 6 út, 8 ból, 9 bis, 11 fá,
12 allra, 14 káeta, 16 ha, 17 kal, 18 all,
20 kl, 21 klór.
LÓÐRÉTT: 1 túba, 3 áb, 4 lófatak, 5
flá, 7 tilkall, 10 slá, 13 rek, 15 alls, 16
hak, 19 ló.
FRÉTTIR AF FÓLKI
Lítið hefur farið fyrir skáksnillingnum Bobby Fischer síðustu mánuði.
Bobby er þó hvergi nærri dauður úr
öllum æðum og sást meðal annars
til hans á taílenska veitingastaðnum
Krúa Thæ í Tryggvagötu á föstudaginn
var. Bobby hámaði þar í sig núðlur og
annað góðgæti og með
honum til borðs sat
traustur vinur, sjálfur
Sæmi Rokk.
Félagarnir virtust
njóta matarins
til hins ýtrasta en
Bobby var nú ekki
á því að blanda
geði við
aðra gesti
staðarins.
E iður Smári Guðjohnsen, knatt-spyrnumaður Barcelona, er staddur í
fríi hér á landi um þessar mundir. Eiður
Smári og Ragnhildur eiginkona hans
röltu um miðbæinn á laugardaginn var
og komu meðal annars við á Vegamót-
um. Og það var ekki að
sökum að spyrja,
þessi dáðasti
sonur Íslands var
umsetinn æstum
aðdáendum af
báðum kynjum
sem vildu spyrja
Smárann
spjörunum
úr.
Fleiri íþróttamenn sem búsettir eru á Spáni voru eftirsóttir á föstu-
dagskvöldið en Ólafur Stefánsson,
handknattleiksmaður Ciudad Real, var
vinsæll meðal gesta á Barnum á Lauga-
vegi 22. Ólafi og félögum í íslenska
landsliðinu tókst sem kunnugt er að
leggja sjálfa Svíagrýluna að velli í tveim-
ur leikjum í síðustu viku og tryggðu sér
þar með sæti í heimsmeistarakeppn-
inni. Gestir Barsins virtust æstir í
að ræða við Ólaf um
þennan frábæra árang-
ur landsliðsins og
ábyggilega þó nokkrir
sem eru þegar byrj-
aðir að fagna sjálfum
heimsmeistaratitlin-
um enda strákarnir
okkar þeir bestu í
heimi. -kh
Hundrað ára afmæli íslensku
símaskrárinnar var haldið einu ári
of seint. Fyrirtækið Já, sem gefur
út Símaskrána, fagnaði aldaraf-
mæli hennar í ár og miðaði við að
hún hefði komið út árið 1906.
Fyrsta símaskráin á Íslandi kom
hins vegar út árið 1905 hjá Tal-
símahlutafélagi Reykjavíkur.
„Vitneskja okkar náði bara ekki
lengra aftur,“ segir Guðrún María
Guðmundsdóttir, ritstjóri Síma-
skrárinnar. „Við héldum að við
ættum allar símaskrár sem komið
hafa út á Íslandi og sú elsta sem
við eigum er frá árinu 1906. Það
reyndist hins vegar ekki rétt ár.“
Ásgeir Svanbergsson, eftir-
launamaður, hefur sankað að sér
nokkrum af helstu símaskrám sem
komið hafa út á Íslandi, þar á
meðal þeirri fyrstu frá árinu 1905.
„Félagi minn sem vann alla sína
ævi hjá Landsímanum seldi mér
nokkrar af gömlu símaskránum og
þar á meðal þá elstu,“ segir Ásgeir,
sem notaði símaskrárnar í ætt-
fræðigrúsk. „Ég gat nýtt mér
símaskrána til að sjá hvar fólk átti
heima. Þessi aðferð dugði samt
skammt því það var ekki fyrr en
eftir 1950 sem almenningur fékk
síma. Símaskráin fyrir þann tíma
var frekar þunn og segir ekki
margt,“ segir Ásgeir.
Ásgeir segir þó að símaskráin sé
að mörgu leyti góð heimild: „Þar er
til dæmis hægt að finna heimildir
um fyrirtæki, verslanir og kaup-
menn. Þá er nokkuð af auglýsingum
í henni og þá sér maður hverjir voru
að versla hvar og þess háttar.“
Talsímahlutafélag Reykjavíkur
gaf út tvær fyrstu símaskrár
landsins, árið 1905 og 1906. Land-
síminn gaf sína fyrstu símaskrá
hins vegar út árið 1907 og nokkr-
um árum síðar keypti fyrirtækið
Talsímahlutafélagið.
Guðrún María ritstjóri segir að
ekki sé búið að taka ákvörðun um
hvernig verði brugðist við þessum
rangfærslum í Símaskránni.
kristjan@frettabladid.is
FYRIRTÆKIÐ JÁ: SÍMASKRÁIN ELDRI EN TALIÐ VAR
Röngu afmælisári fagnað
ÁSGEIR OG ELSTA SÍMASKRÁ LANDSINS Samkvæmt hátíðarútgáfu Símaskrárinnar, sem kom einnig út í ár, er birt mynd af símaskrá
Talsímahlutafélags Reykjavíkur með fyrirsögninni: Fyrsta símaskrá Íslands. Þetta reyndist hins vegar ekki rétt því fyrsta símaskráin á Íslandi
kom út árið 1905.
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI