Fréttablaðið - 08.07.2006, Qupperneq 2
2 8. júlí 2006 LAUGARDAGUR
SPURNING DAGSINS
Ólafur, er barnalegt að leyfa
17 ára börnum að keyra bíl?
„Já, það er það lögum samkvæmt og
ekki við hæfi þegar litið er á tölurnar
í umferðinni. Hins vegar er í lagi fyrir
fullorðna að vera barnalegir.“
Ólafur Helgi Kjartansson, sýslumaðurinn á
Selfossi, telur að hækka eigi bílprófsaldur
hér á landi upp í átján ár því sautján ára
einstaklingar séu skilgreindir sem börn
samkvæmt lögum. Hann telur jafnframt að
þetta komi til með að fækka slysum.
FJÖLMIÐLAR Sigurjón M. Egilsson,
fréttaritstjóri Fréttablaðsins,
hefur verið ráðinn ritstjóri Blaðs-
ins. Fyrstu lag-
færingar verða
á blaðinu í næstu
viku og svo mikl-
ar breytingar
síðar.
„Blaðið verð-
ur ekki í sam-
keppni um frétt-
ir við
Morgunblaðið
og Fréttablaðið.
Blaðið mun færa
sig frá þeim í efnisöflun og
áherslum og verða alþýðlegt
frétta-, neytenda- og upplýsinga-
blað,“ segir Sigurjón.
Fréttablaðið þakkar Sigurjóni
vel unnin störf og óskar honum
velfarnaðar á nýjum vettvangi.
Fréttaritstjóri Fréttablaðsins:
Ráðinn rit-
stjóri Blaðsins
TRYGGINGASTOFNUN Tveir einstakl-
ingar, sem hafa setið í gæsluvarð-
haldi vegna rannsóknar á fjár- og
bótasvikamálinu í Trygginga-
stofnun ríkisins, hafa verið
úrskurðaðir í áframhaldandi
gæsluvarðhald fram á miðviku-
dag. Þetta var gert að kröfu efna-
hagsbrotadeildar Ríkislögreglu-
stjórans.
Jón H. B. Snorrason, yfirmað-
ur efnahagsbrotadeildar, segir að
rannsóknarnauðsyn hafi kallað á
það að fólkinu væri haldið í ein-
angrun meðan rannsókn sé haldið
áfram. Með þessari framlengingu
fáist fimm dagar í viðbót í rann-
sóknarvinnuna. - ghs
Efnahagsbrotadeild:
Framlenging á
gæsluvarðhaldi
SIGURJÓN M.
EGILSSON.
EFNAHAGSMÁL Yfirlýsing Seðla-
bankans á fimmtudaginn bendir
til þess að stýrivextir bankans
muni hækka enn frekar um miðj-
an næsta mánuð. Bjarni Már
Gylfason, hagfræðingur Samtaka
iðnaðarins, telur að það komi niður
á trúverðugleika bankans verði
það ekki gert.
Aðilar vinnumarkaðarins telja
stýrivaxtahækkun Seðlabankans
of mikla. Bjarni Már tekur undir
þessa gagnrýni og segir að hækk-
unin hafi ekki full áhrif fyrr en
eftir eitt til eitt og hálft ár. „Um
leið og hægir á á næsta ári og
atvinnuleysi eykst þá koma full
stýrivaxtaáhrif inn í efnahagslíf-
ið. Það getur gert þessa aðlögun að
efnahagslífinu erfiðari en ella,“
segir hann.
Bjarni rifjar upp að Seðlabank-
inn hafi verið einn í glímunni við
verðbólguvanda sem hann í raun
geti í ekki gert mikið við. Það sé
fyrst nýlega sem ríkisstjórnin hafi
gripið til aðgerða. Bjarni telur að
eftirspurn eftir vöru og þjónustu
dragist saman á næsta ári, atvinnu-
leysi aukist,
sala á vörum
fyrirtækja
minnki um leið
og fjármagns-
kostnaður verði
í hámarki.
„Þetta þýðir
að fyrirtæki og
heimili geta
þurft að hægja
á sínum rekstri
og herða ólarn-
ar fastar en ella. Framleiðsla og
sala á vörum og þjónustu kann að
dragast saman hraðar og meira og
atvinna kann að dragast saman
meira en ella.“
Bjarni Már telur tímasetning-
una óheppilega hjá Seðlabankan-
um. Hækkunin sé of mikil og komi
of seint. Hann segir jafnframt að
Seðlabankinn glími við þann vanda
að peningamálastefnan hafi ekki
notið nægilegs trúverðugleika.
Menn virðist ekki hafa trú á að
Seðlabankinn nái markmiði sínu.
„Seðlabankinn hækkar stýri-
vexti svona hart til að reyna að
endurheimta trúverðugleikann.
Hann er nánast búinn að lýsa því
yfir að hann ætli að hækka vexti
enn frekar og reynir þannig að
skapa þá trú manna að honum
muni takast þetta ætlunarverk
sitt. Hann reynir að láta heimili,
fyrirtæki og banka taka mið af
þessari ákvörðun í dag að vextirn-
ir verði enn hærri til að fá fólk til
að hægja á neyslunni. En ef Seðla-
bankinn gerir ekki það sem hann
segist ætla að gera þá fyrst er
hann í vandræðum. Hann verður
að standa við yfirlýsingar sínar til
að viðhalda þó þeim trúverðug-
leika sem hann hefur.“
ghs@frettabladid.is
BJARNI MÁR
GYLFASON
Hækkar vexti fyrir
trúverðugleikann
Yfirlýsing Seðlabankans um endurskoðun stýrivaxta bendir til þess að stýrivext-
ir hækki enn frekar um miðjan næsta mánuð. Ef ekki þá kemur það niður á
trúverðugleika bankans. Þetta er mat hagfræðings Samtaka atvinnulífsins.
ÞRÍEYKIÐ ÚR SEÐLABANKANUM Seðlabankinn hækkaði stýrivexti í gær. Á myndinni sjást
Eiríkur Guðnason og Davíð Oddsson seðlabankastjórar og Arnór Sighvatsson, aðalhagfræð-
ingur Seðlabankans, á fundinum í gær þegar hækkunin var tilkynnt.
DÓMSMÁL Karlmaður á þrítugsaldri
hefur verið dæmdur í 60 daga fang-
elsi, skilorðsbundið til tveggja ára,
og greiðslu rúmlega 120 þúsund
króna fyrir árás á leigubílstjóra í
apríl í fyrra.
Maðurinn var farþegi í leigubíln-
um ásamt félögum sínum og munu
þeir félagar hafa verið að gantast í
aftursæti bílsins. Þegar bíllinn
stöðvaðist á rauðu ljósi tók maður-
inn leigubílstjórann hálstaki aftan
frá, að sögn í leik. Leigubílstjórinn
brást ókvæða við og vísaði mönnun-
um úr bílnum. Það líkaði manninum
ekki og sparkaði í bílstjórann og sló
hann við útgönguna. Hann hefur
hlotið dóm fyrir fíkniefnabrot. - sh
Karlmaður dæmdur í héraði:
Tók leigubíl-
stjóra hálstaki
VIÐSKIPTI Áfrýjunarnefnd sam-
keppnismála hefur staðfest
ákvörðun Samkeppniseftirlitsins
frá því í marslok þar sem Flug-
þjónustan á Keflavíkurflugvelli
(IGS) var sektuð fyrir að misnota
markaðsráðandi stöðu sína.
Áfrýjunarnefndin lækkaði þó
sekt fyrirtækisins um fjórðung,
úr 80 milljónum króna í 60 millj-
ónir.
Með úrskurði sínum staðfesti
áfrýjunarnefndin að Flugþjón-
ustan á Keflavíkurflugvelli (IGS)
hefði brotið gegn 11. grein sam-
keppnislaga, um misnotkun á
markaðsráðandi stöðu. Í fyrri
ákvörðun Samkeppniseftirlitsins
var fyrirtækið sakað um að hafa
hafa brotið gegn samkeppnislög
um þegar það gerði tíu einka-
kaupasamninga við flugfélög
sem lenda á Keflavíkurflugvelli
og með því að gera þýska flugfé-
laginu LTU samkeppnishamlandi
tilboð.
IGS er eitt dótturfélaga Ice-
landair Group og sér um þjón-
ustu við flugvélar sem lenda í
Keflavík, svo sem um lestun vél-
anna og meðhöndlun matvæla.
Úrskurð áfrýjunarnefndar
samkeppnismála og ákvörðun
Samkeppniseftirlitsins er að
finna á heimasíðu eftirlitsins,
www.samkeppni.is. - óká
Áfrýjunarnefnd samkeppnismála staðfestir ákvörðun Samkeppniseftirlitsins:
IGS sektað um 60 milljónir
WASHINGTON, AP Lögreglunni í New
York tókst að koma í veg fyrir
áform nokkurra herskárra
íslamista um sprengjuárásir á
samgöngukerfi borgarinnar. Utan
Bandaríkjanna hafa nokkrir menn
verið handteknir í tengslum við
málið, þar á meðal einn í Líbanon.
Að sögn dagblaðsins Daily
News ætluðu mennirnir meðal
annars að sprengja upp Holland-
umferðargöngin, sem liggja á
milli Manhattan og New Jersey, í
þeirri von að flóð yrði í fjármála-
hverfinu í New Jersey með skelfi-
legum afleiðingum.
Starfsmenn bandarísku alríkis-
lögreglunnar, FBI, komust á snoð-
ir um þessi áform í samstarfi við
lögreglu og leyniþjónustu í Líban-
on og fleiri löndum, með því að
fylgjast grannt með spjallrásum á
Netinu.
Fyrir mánuði var handtekinn í
Beirút í Líbanon líbanskur maður,
sem gengur undir nöfnunum Amir
Andalousli eða Assem Hammoud,
sem er sagður hafa játað aðild að
áformunum og í yfirlýsingu frá
FBI og bandaríska heimavarna-
ráðuneytingu segir að handtaka
hans hafi átt stóran þátt í því að
upp komst um þessi áform. - gb
Bandaríska lögreglan kom í veg fyrir áform nokkurra herskárra íslamista:
Lögðu á ráðin um árásir á
samgönguæðar í New York
STARFSMENN IGS HLAÐA VÉL ICELANDAIR
IGS, eða Flugþjónustan á Keflavíkurflug-
velli, þjónustar vélar sem um völlinn fara.
HOLLAND GÖNGIN Í NEW YORK Bandarískt dagblað fullyrti í gær að mennirnir hefðu meðal
annars ætlað að sprengja upp þessi göng milli Manhattan og New Jersey. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
VIÐSKIPTI Úrvalsvísitalan endaði
nú í vikunni í 5.342 stigum sem er
aðeins fimm stigum frá því hún
fór í lægsta gildi á árinu í byrjun
maí, og um 3,5 prósenta lækkun
frá áramótum.
Vísitalan lækkaði um rúmt pró-
sent í gær í litlum viðskiptum og
lækkaði gengi allra stóru félag-
anna í Kauphöllinni. Mest lækk-
uðu bréf í Actavis og Straumi eða
um 1,7 prósent. - eþa
Hlutabréf síga niður á við:
Vísitalan við
lægsta gildi
ALÞJÓÐAMÁL Japanar lögðu í gær
fram ný drög að ályktun Öryggis-
ráðs Sameinuðu þjóðanna varðandi
eldflaugaskot Norður-Kóreu. Þrátt
fyrir viðvaranir Rússlands og Kína
er enn hótað í drögunum að beita
refsiaðgerðum gegn Norður-Kóreu
haldi þeir eldflaugaæfingum sínum
áfram.
Væntanlega verður kosið um
ályktunina í dag, en henni er ætlað
að koma í veg fyrir að Norður-Kór-
eumenn geti útvegað sér efni sem
þeir þurfa í fleiri eldflaugar.
Ráðamenn Suður-Kóreu tilkynntu
jafnframt í gær að þeir myndu
stöðva matar- og áburðarsendingar
til Norður-Kóreu í bili. - smk
Eldflaugaskot Norður-Kóreu:
Japanar leggja
fram ný drög
HORFT YFIR LANDAMÆRI Suður-Kóreu-
menn röðuðu sér upp við sjónauka til að
horfa yfir til nágranna síns, Norður-Kóreu.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
VARSJÁ, AP Kazimierz Marcinki-
ewicz, forsætisráðherra Póllands,
sagði í gær af sér. Næsti forsætis-
ráðherra verður
Jaroslaw
Kaczinski, leið-
togi Laga- og
réttlætisflokks-
ins, sem fer með
stjórnarmeiri-
hlutann á þingi.
Hvorki var
skýrt frá því
hvenær ráð-
herraskiptin
verða né ástæðu uppsagnarinnar.
Verðandi forsætisráðherra er
tvíburabróðir forseta Póllands,
Lech Kaczinski. - gb
Forsætisráðherra Póllands:
Hefur sagt af
sér embættinu
MARCINKIEWICZ
Missti stjórn á bíl Lögreglan á Siglu-
firði fann bíl í Hólsá í fyrrinótt. Bíllinn
maraði hálfur í kafi þegar lögreglumenn
bar að. Haft var upp á eigandanum og
tekin af honum skýrsla. Honum var
síðan sleppt. Maðurinn er grunaður um
að hafa verið ölvaður undir stýri.
LÖGEGLUFRÉTTIR
FORNLEIFAR Komið var niður á
hornið á húsi númer 16 við Suður-
götu í Vestmannaeyjabæ í gær.
Þetta er annað húsið sem verður
grafið upp í verkefninu Pompei
norðursins, en fjölmörg heimili
fóru undir hraun í eldgosinu í
Heimaey árið 1973.
Verkefnið hefur vakið athygli
ferðamanna og áhugavert þykir
að skoða minjarnar þótt þær séu
aðeins 33 ára gamlar. -sgj
Pompei norðursins:
Tvö hús grafin
upp á Heimaey
UPPGRÖFTUR Í EYJUM Glitta sést í húshorn-
ið á húsi númer 16 og rauða bárujárnið
sem klæðir þakið. FRÉTTABLAÐIÐ/JÓHANN