Fréttablaðið - 08.07.2006, Side 4
4 8. júlí 2006 LAUGARDAGUR
GENGIÐ
GENGI GJALDMIÐLA 7.7 .2006
Bandaríkjadalur 75,54 75,9
Sterlingspund 139,06 139,74
Evra 96,47 97,01
Dönsk króna 12,931 13,007
Norsk króna 12,128 12,2
Sænsk króna 10,533 10,595
Japanskt jen 0,6578 0,6616
SDR 111,91 112,57
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
KAUP SALA
133,1667
Gengisvísitala krónunnar
DÓMSMÁL Maður var í fyrradag
dæmdur í Héraðsdómi Norður-
lands eystra fyrir eignaspjöll, að
aka án ökuleyfis og fyrir líkams-
árás á fyrrverandi sambýliskonu
sína á Akureyri.
Maðurinn skemmdi bifreið
konunnar við leikskóla í bænum
og ruddist inn til hennar sama dag
og hafði á brott þaðan muni. Mað-
urinn var einnig dæmdur fyrir að
hafa þrifið í fyrrverandi konu sína
og fleygt henni í vegg svo hún
meiddist.
Maðurinn játaði tveimur hlut-
um ákærunnar en var dæmdur
fyrir þrjá og hlaut fjögurra mán-
aða skilorðsbundið fangelsi. - æþe
Maður dæmdur fyrir norðan:
Þreif í konu og
fleygði í vegg
FÍKNIEFNI Tólf kíló af amfetamíni
fundust í bíl sem var um borð í
Norrænu þegar hún kom til Seyð-
isfjarðar í fyrrakvöld. Efnin fund-
ust við leit tollvarða, en bíllinn er
í eigu tveggja Litháa sem eru nú í
haldi lögreglu. Ekki hafa fleiri
verið handteknir vegna málsins
sem er í rannsókn hjá lögreglunni
á Seyðisfirði.
Þetta er mesta magn amfetam-
íns sem nokkurn tímann hefur
verið tekið í Norrænu á hér á landi
og með því mesta sem fundist
hefur yfir höfuð á Íslandi. Styrk-
leiki efnisins sem fannst hefur
ekki verið gefinn upp, en ljóst er
að verðmæti þess skiptir tugum
milljóna króna.
Óskar Bjartmars, yfirlögreglu-
þjónn við embætti sýslumannsins
á Seyðisfirði, segir efnin hafa
fundist við reglubundið tolleftir-
lit. Hann vill ekki staðfesta að
ábending erlendis frá hafi orðið
til þess að efnin fundust, og vill
ekki tjá sig um hvort grunur leiki
á að fleiri tengist málinu.
Mennirnir handteknu voru
dæmdir í fjögurra vikna gæslu-
varðhald í gær. Auk lögreglu og
tollvarða heimamanna komu
menn frá ríkislögreglustjóra, lög-
reglunni á Keflavíkurflugvelli og
tollgæslunni í Reykjavík til
aðstoðar, en þeir voru staddir
eystra vegna skipakomunnar.
Þetta er ekki í fyrsta skipti
sem Litháar eru gómaðir við
smygl á amfetamíni til
landsins, en í febrúar
var Lithái handtek-
inn í Leifsstöð
með sex flösk-
ur af amfet-
amínbasa og
brennisteins-
sýru. Auk þess
staðfesti Hæsti-
réttur á dögunum
þriggja ára fangelsis-
dóm yfir karlmanni á sextugs-
aldri frá Litháen sem hafði
smyglað tæpum fjórum kílóum af
amfetamíni ásamt félaga sínum
með Norrænu seinasta sumar.
Umsvif Litháa í fíkniefnaheim-
inum á Norðurlöndunum hafa auk-
ist að undanförnu en Litháen, Eist-
land, Lettland og Pólland eru
þekkt sem framleiðslustaðir
amfetamíns. Í mars síðastliðnum
voru tólf manns handteknir í
Gautaborg í aðgerð sem átti að
uppræta litháískan fíkniefna-
hring þar í landi.
Ómar Smári
Ármannson,
aðstoðaryfirlög-
regluþjónn lög-
reglunnar í
Reykjavík,
segir að menn
séu mjög vak-
andi fyrir
öllum vís-
bendingum
um hvað sé
að gerast á
þessum
markaði hér á landi, hvort sem
um er að ræða lögreglu, tollgæsl-
una eða aðra sem með þessi mál
fara. salvar@frettabladid.is
Aldrei fundist jafn
mikið amfetamín
Tollverðir á Seyðisfirði lögðu hald á tólf kíló af amfetamíni sem falið var í bíl
tveggja Litháa. Þetta er langmesta magn amfetamíns sem fundist hefur í
Norrænu. Lögreglan gefur ekkert upp um mögulega íslenska vitorðsmenn.
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
2
17
15
VINNUMARKAÐUR Samningafundur
BHM og Svæðisskrifstofa mál-
efna fatlaðra í Reykjavík og á
Reykjanesi var óvenjulangur í
fyrradag, stóð í þrjá tíma, og þok-
aðist í samkomulagsátt. Félags-
menn BHM eru ósáttir við töfina.
Þóroddur Þórarinsson, sem er í
samninganefnd BHM, segir að
unnið sé að útfærslu á hugmynd-
um sem hafi komið fram á samn-
ingafundi á miðvikudag en ekki
verið kynntar félagsmönnum.
Ekki sé því hægt að greina frá
þeim. Hann telur að viku þurfi í
viðbót til að ná samkomulagi.
Félagsmenn BHM stóðu fyrir
hljóðgjörningi fyrir utan félags-
málaráðuneytið þegar nýr samn-
ingafundur hófst í Hafnarhúsinu
klukkan eitt í gær. Félagsmenn
spiluðu á ýmis hljóðfæri með mis-
jöfnum árangri og báru skilti sem
á stóð „Þroskaþjálfar eru líka fyr-
irvinnur“. Einnig sungu þau lagið
„Traustur vinur“, sem Upplyfting,
hljómsveit Magnúsar Stefánsson-
ar félagsmálaráðherra, gerði
frægt á sínum tíma.
„Ákveðið var að samningur
yrði tilbúinn 1. maí, en þolinmæði
okkar er á þrotum,“ segir Guðný
Jónsdóttir þroskaþjálfi. „Við
höfum mótmælt fyrir utan þrjá
samningafundi og höldum að
málið sé kannski frosið í félags-
málaráðuneytinu. Við viljum að
það verði samið strax.“ - ghs/sgj
Viðræður BHM og Svæðisskrifstofa dragast á langinn og félagsmenn mótmæla:
Þroskaþjálfar fremja gjörning
ÞROSKAÞJÁLFAR MEÐ LÆTI Mótmælendur
báru meðal annars spjöld með slagorðinu
„Eru laun þroskaþjálfa hugsuð sem vasa-
peningar?“ FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Ók út í á og brotnaði Karlmaður
um fertugt fótbrotnaði illa þegar hann
ók mótorhjóli sínu út í á í Nýjadal á
Sprengisandi á fimmta tímanum í
gær. Þyrla Landhelgisgæslunnar sótti
manninn og flutti hann á Landspítalann
í Fossvogi til aðhlynningar.
LÖGREGLUFRÉTTIR
UNDIRSKRIFT Skrifað var undir
samning um afnám tvísköttunar
milli Íslands og Grikklands í Þjóð-
menningarhúsinu í gær. Valgerður
Sverrisdóttir utanríkisráðherra og
Theodore Kassimis, aðstoðarutan-
ríkisráðherra Grikklands, skrifuðu
undir samninginn í viðurvist Ólafs
Ragnars Grímssonar forseta og
Karolos Papoulias, forseta Grikk-
lands.
Markmið tvísköttunarsamninga
er að koma í veg fyrir tvísköttun
og undanskot frá skattlagningu á
tekjur og eignir. Með tvísköttun er
átt við álagningu sambærilegra
skatta í tveimur ríkjum, á sama
skattstofn og á sama tímabili. - sþs
Grikkland og Ísland:
Sátt um afnám
tvísköttunar
VIÐ UNDIRRITUN SAMNINGSINS Í GÆR
Markmið tvísköttunarsamninga er að koma
í veg fyrir tvísköttun og undanskot.
DEILA Læknafélag Íslands fordæm-
ir aðferð spítalans við uppsögn
Stefáns E. Matthíassonar, þegar
honum var gert að víkja sam-
stundis af vinnustað sínum, því
það hafi ekki verið gert með hags-
muni sjúklinga hans að leiðarljósi.
Sjúklingar hafi verið skildir eftir í
lausu lofti því tíma taki að koma
nýjum manni inn í málin.
Í yfirlýsingu frá Læknafélagi
Íslands er skorað á Landspítalann
að rétta hlut Stefáns og Tómasar
Zoëga og ráða þá aftur. Stjórnar-
nefnd spítalans er jafnframt sökuð
um að hafa virt tilmæli félagsins
um sættir að vettugi. - æþe
Óánægja hjá Læknafélaginu:
Sjúklingum
stefnt í hættu
NEYTENDAMÁL Viðskiptaráðherra
hefur skipað kærunefnd lausafjár-
og þjónustukaupa sem verður vist-
uð hjá Neytendastofu sem tekur
við kvörtunum til nefndarinnar.
Greini aðila að þjónustukaup-
um á um réttindi sín og skyldur
samkvæmt lögunum geta þeir,
einn eða fleiri, snúið sér til kæru-
nefndar lausafjár- og þjónustu-
kaupa og óskað eftir álitsgerð
nefndarinnar um ágreiningsefnið.
Niðurstöðum kærunefndar
verður ekki skotið til annarra
stjórnvalda en aðilar geta lagt
ágreining sinn fyrir dómstóla með
venjulegum hætti. - sdg
Lausafjár- og þjónustukaup:
Kærunefnd hjá
Neytendastofu
UNIFEM Sjöfn Vilhelmsdóttir hefur
tekið við starfi framkvæmdastýru
UNIFEM á
Íslandi. Hún hef-
ur meðal annars
starfað sem sér-
fræðingur á aðal-
skrifstofu Þróun-
arsamvinnustofnunar
Íslands, verkefn-
isstjóri stofnunar-
innar í Namibíu
og sem ráðgjafi,
til dæmis fyrir
Barnahjálp Sam-
einuðu þjóðanna og Barnaheill.
Sjöfn nam stjórnmálafræði í
Háskóla Íslands og er með meistara-
gráðu í alþjóðafræðum frá Denver-
háskóla. Hún tekur við formennsku
af Birnu Þórarinsdóttur. -sgj
Ný framkvæmdastýra:
Sjöfn til starfa
hjá UNIFEM
SJÖFN
VILHELMSDÓTTIR