Fréttablaðið - 08.07.2006, Síða 35

Fréttablaðið - 08.07.2006, Síða 35
 8. júlí 2006 LAUGARDAGUR5 Nicky Hilton hefur snúið sér að hönnun fyrir Warner Bros. Hótelerfinginn Nicky Hilton hefur hafist handa við að hanna nýja línu af Tweety-vörum fyrir Warner Bros. Í línunni verður fatnaður og alls kyns aukahlutir með gula kanarífuglinum en Nicky hefur látið mikið að sér kveða í tískuheiminum á síðustu árum. Línan mun bera hið einfalda nafn Tweety designed by Nicky Hilton og kemur á markað í Bandaríkjunum næsta vor. -lkg Dýravinurinn McCartney STELLA MCCARTNEY VAR HEIÐRUÐ AF DÝRAVERNDUNARSAMTÖKUN- UM PETA Í SÍÐUSTU VIKU. Fatahönnuðurinn Stella McCartney fékk sérstök verðlaun við verð- launaathöfn dýraverndunarsamtak- anna PETA á dögunum. McCartney fékk verðlaun fyrir einstaklega dýravæna hönnun en hún notar aðeins dýravænar vörur í tískulín- um sínum, sem er afar sjaldgæft í tískubransanum. Athöfnin fór fram í Mayfair verslun McCartney í Lundúnum og voru þar mættar stjörnur á borð við Pamelu Anderson og Sadie Frost. - lkg McCartney notar aldrei leður í fötum sínum. FRÉTTABLAÐIÐ/AP Kærasta Waynes Rooney er andlit „Must have“. Coleen McLaughlin, kærasta fót- boltamannsins Wayne Rooney, tók sér frí í að hugga kærastann í vikunni er hún sótti veislu til að kynna haustlínu George at Asda. McLaughlin er andlit „Must have“ línu tískufyrirtækisins og segja sögur að þrjár milljónir punda, eða 417 milljónir íslenskra króna, hafi fallið í hennar hlut fyrir að vera andlit „Must have“. McLaughlin í „Must have“ McLaughlin klæddist kjól frá George at Asda á blaðamannafundinum. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY IMAGES Tweety í tísku Nicky stillti sér upp á Tweety-mótor- hjóli á blaðamannafundi. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY IMAGES Fyrir þroskaða húð Absolue Soleil sólar- vörnin frá Lancome er sérstaklega hönnuð til að verja þroskaða húð í sólinni. Vörnin ver gegn þurrki, myndun hrukkna af völdum sólar og slappri húð. Áferðin er fíngerð og fersk með mildum ilmi. Í línunni er hægt að fá SPF 15, 30 og 50 fyrir andlit og SPF 15 og 30 fyrir líkama. Hámarkslenging L´EXTREME MASKARINN ER LÍKA FÁANLEGUR VATNSHELDUR. L´Extreme WP maskarinn frá Lancome er nú einnig fáanlegur vatnsheldur. Burstinn grípur hvert augnhár við rætur þess og nær hámarksleng- ingu, eða allt að sextíu prósent. Maskarinn mýkir einnig augnhárin og ver þau fyrir ýmsu og helst á í 24 klukkustundir. Maskarinn er fáanlegur í ýmsum litum. - lkg snyrtivörur } Ferskur sumarilmur NÝI ILMURINN FRÁ CALVIN KLEIN ER BÆÐI FYRIR KARLA OG KONUR. Nýi sumarilmurinn frá Calvin Klein, CK One Summer, er bæði fyrir karla og konur. Ilmurinn er afar ferskur eins og umbúðirnar gefa til kynna, sem minna helst á heita strönd í sólarlöndum. Í ilmnum er blandað saman keim af melónu, sítrónu, rabbabara, reykelsi og ferskju. - lkg Victoria Beckham lætur ekki grípa sig aftur með illa tilhaft hár. Fótboltafrúin Victoria Beckham vildi alls ekki láta grípa sig með úfið og illa hirt hár á leik Englands og Portúgal á HM á dögunum. Kryddpían flaug alla leið til Lundúna tveimur dögum fyrir leik og fékk sér nýjar hárlengingar þar sem hún var í uppnámi yfir mynd- um sem birtust af henni í Kanada fyrir nokkru síðan þar sem sást í skallablett á höfði hennar. Alls tók hárgreiðslan fimm tíma og kostaði 1.500 pund, eða tæplega 210.000 krónur. Nýja hár- greiðslan hefur þó ekki veitt liðinu lukku enda tapaði það leiknum. - lkg Nýtt hár fyrir offjár Victoria tók sig vel út á leiknum um helgina en því miður varð nýja hárið Englandi ekki til happs. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY IMAGES

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.