Fréttablaðið - 08.07.2006, Side 37
LAUGARDAGUR 8. júlí 2006 7
Ólafur M. Ólafsson hefur hafið
sölu á búnaði sem hann segir
minnka eldsneytisnotkun dísil-
bíla.
Búnaðurinn er eins konar dísil-
olíuhitari sem Ólafur kallar
kraftkubb. „Hugmyndin varð
þannig til að ég var á ferðalagi í
útlöndum og kom á götumarkað.
Þar var verið að kynna þetta og
ég tók bækling. Svo hugsaði ég
ekkert um þetta í eitt ár eða þang-
að til ég ákvað að panta nokkur
stykki og prufa að selja þau,“
segir Ólafur.
Auk þess að eiga að minnka
olíunotkun um 10-25 prósent full-
yrða framleiðendur að hitarinn
minnki útblástur um 15-35 pró-
sent, auki hröðun og vélarafl,
hindri tæringu og minnki vélar-
hljóð. Hugmyndin sem liggur að
baki er frekar einföld; kælivatn
vélarinnar er notað til að hita olí-
una upp í 57 til 63 gráður.
Ólafur segist sjálfur hafa góða
reynslu af því að hita dísilolíu. „Ég
er fyrrverandi kranamaður og átti
krana sjálfur. Einu sinni fór ég á
Snæfellsnes í samfloti með alveg
eins krana nema hvað það var smá
munur á vélunum. Ég hafði tekið
eftir því á veturna að það rauk úr
olíunni hjá mér, eins og hún flæddi
að hluta aftur í tankinn frá mót-
ornum. Hvor krani tók um 200
lítra og í hvert sinn sem við tönk-
uðum tók ég um tuttugu lítrum
minna.“
Kraftkubburinn er til í þremur
stærðum; 35, 50 og 65 mm, og kost-
ar 20-30 þúsund, fyrir utan virðis-
aukaskatt, eftir stærð. Hverju
stykki fylgir ábyrgð frá framleið-
anda fyrir 200.000 km akstri eða
tveggja ára notkun. Frekari upp-
lýsingar gefur Ólafur í síma 699
5640. einareli@frettabladid.is
Minni eyðsla með
heitari dísilolíu
Ólafur með dísilolíuhitarann sem hann segir að allir laghentir eigi að geta komið fyrir sjálfir.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
100 km eknir í Mælifellsdal.
Fjórða umferð Pirelli-rallsins fer
fram í dag á vegum Bílaklúbbs
Skagafjarðar. Ekin verður 25 km
sérleið um Mælifellsdal, tvisvar
fram og til baka eða 100 km sam-
tals.
Rétt er að benda ferðamönnum
á að taka tillit til þess að leiðin
verður í notkun en um leið gefst
tækifæri til að verða vitni að
skemmtilegum viðburði í mótor-
sportinu.
Skagafjarðarrall ekið í dag
Hart verður tekist á í rallinu í dag. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Hæsta verð tæpum 8 prósent-
um hærra en lægsta verð.
Enn heldur eldsneytisverð áfram
að hækka, þrátt fyrir styrkingu
krónunnar á síðustu dögum. Í
óformlegri verðkönnun sem gerð
var á vefsíðum olíufélaganna kom
í ljós að bestu bensínkaupin í dag
eru með Bensínfrelsi Orkunnar.
Handhafar Bensínfrelsiskorta
borga 124,8 kr. fyrir lítrann af
bensíni en 118,8 kr. fyrir dísilolíu.
Miðað við útsöluverð án sér-
stakra samninga, korta eða lykla
er lægsta verðið hjá ÓB Fjarðar-
kaupum, 127,8 kr. fyrir bensín og
121,8 fyrir dísil. Öll verð hér að
framan eru sjálfsafgreiðsluverð,
en samkvæmt verðlistum á vef-
síðum er ódýrasta bensínið með
fullri þjónustu á 128,8 kr. hjá Olís í
Hamraborg og á Selfossi, þar sem
dísilolían er líka lægst, 123 kr.
Hæsta verðið á bensíni með
fullri þjónustu er á stöðvum
Skeljungs og Esso, 134,4 kr. fyrir
bensínlítrann og 128,3 kr. fyrir
lítrann af dísilolíu. - elí
Enn hækkar eldsneytið
Miðað við 20.000 ekna kílómetra á ári og
eyðslu upp á 10 lítra á hundraði, er hægt
að spara 19.200 kr. á ári með því að kaupa
ódýrasta bensínið. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
NÝTT!
Söluaðilar um land allt