Fréttablaðið - 08.07.2006, Page 56
FRUMSTÆÐUR FERÐAMÁTI Til að komast
yfir á Kringilsárrana þar sem er að finna
griðland hreindýra og heiðargæsa verða
menn að taka kláf yfir ána Jöklu. Guð-
mundur Ármannson, bóndi á Vaði í Skrið-
dal, kom kláfnum fyrir í fyrra göngufólki til
mikillar gleði.
8. júlí 2006 LAUGARDAGUR36
Nú fer hver að verða síðastur að skoða sig um á svæðinu sem fer undir vatn
þegar hleypt verður á Hálslón í haust. Ásta Arnardóttir og Ósk Vilhjálms-
dóttir hjá Augnablik.is hafa síðastliðin þrjú sumur boðið upp á nokkurra
daga gönguferðir um svæðið þar sem gengið er um Kringilsárrana, meðfram
Jöklu, kíkt á Dimmuglúfur og fleira. Snæfríður Ingadóttir fór í fyrstu ferð
sumarsins og smellti myndum af fallegum gljúfrum, hreindýrum, gæsar-
ungum og mannlífi á fjöllum.
Draumalandið
sem hverfur
VIÐ STÍFLUSTÆÐIÐ Þeir sem vildu tóku þátt í þögulum mótmælum til móts við stíflustæðið. Þar í kring er allt fullt af gráum sandi en ekki þarf að fara langt til að finna iðagræna náttúru.
KALT BAÐ Sauðá er stutt frá stíflustæði
Kárahnjúka. Þar er að finna óteljandi litla
fossa og ævintýralegar laugar sem þeir
hugrökkustu geta baðað sig í en vatnið í
ánni er að sjálfsögðu ískalt.
HEIT STURTA Á HÁLENDINU Við Laugafell er
hægt að komast í bað í heitri laug og skola
svo af sér í heitum fossi rétt fyrir neðan. TÖFRANDI FOSS Töfrafoss í Jöklu er svo sannarlega heillandi.
NÁTTÚRUFEGURÐ VIÐ KÁRAHNJÚKA Hafrahvammagljúfur og Dimmugljúfur eru miklar
náttúruperlur og láta engan þann sem niður að þeim gengur ósnortinn.