Fréttablaðið - 08.07.2006, Síða 64
8. júlí 2006 LAUGARDAGUR44
menning@frettabladid.is
!
> Ekki missa af...
risaballi á Nasa. Dj Dagný og
Páll Óskar halda uppi feikna-
fjöri í nafni frelsis og jafnréttis á
Nasa. Fjörið hefst kl. 23 og varir
líklega að eilífu.
Íslenska safnadeginum á
morgun. Það eru rúmlega tvö
hundruð söfn á Íslandi og mörg
hver opna dyr sínar upp á gátt í
tilefni dagsins.
djasstónleikum á Jómfrúnni.
Kvartett Ásgeirs og Eriks
Qvick leikur í smurbrauðs-
paradísinni í Lækjargötu kl. 16
í dag.
Kl. 17
Sigtryggur Berg Sigmarsson sýnir
í Galleríi Dverg við Grundarstíg.
Sýningin ber heitið The Curse
of Sigtryggur Berg Sigmarsson
og er opin frá kl. 17-19 í dag og á
morgun.
Austfirðingar fá að
kenna á fólsku stórborg-
arinnar því uppátækja-
samir listamenn hafa
tekið yfir hluta menn-
ingarmiðstöðvarinnar
í Skaftfelli á Seyðisfirði
og opna þar sýninguna
„Straight out of Skaftfell“
í galleríi sem kennt er
við Vesturvegg.
Þau Baldur Björnsson
og Lóa Hlín Hjálmtýs-
dóttir III taka gettóið
með sér austur en í
fréttatilkynningu mið-
stöðvarinnar er vísað til
þeldökkra glæpamanna, krakkneyslu og hvítra hóra.
Á sýningunni verða hljóð- og vídeóverk, skúlptúr og
teikningar sem saman skapa einhvers konar gervi-
gettó að sögn Baldurs.
Þetta er í fyrsta sinn
sem Baldur og Lóa Hlín
vinna saman en þau
hafa þó þekkst lengi,
voru samtíða í námi í
Listaháskóla Íslands og
eiga sameiginlegt bak-
land í Breiðholtinu.
Þessi þriðja sumarsýn-
ing Vesturveggjar á ef
til vill eftir að vekja ugg
hjá heimamönnum
eystra. „En vonandi
lukku líka, það er
kannski gott að fá smá
myrkur í ljósið hérna,“
útskýrir Baldur.
Sýningin verður opnuð kl. 17 í dag en hún stendur
til 22. júlí.
Gettóið flutt austur
LÓA HLÍN HJÁLMTÝSDÓTTIR III OG BALDUR BJÖRNSSON
Eiga sameiginlegt bakland í Breiðholtinu.
Sumarsýning Listasafns
Íslands hefur yfirskriftina
„Landslagið og þjóðin“ en
þar ber fyrir augu ger-
semar úr eigu safnins sem
tengja má fyrrgreindu
viðfangsefni. Rakel Péturs-
dóttir listfræðingur segir
frá sumarstarfinu.
„Sumarsýningarnar okkar hafa
oft byggt á eins konar úrvali verka
úr eigu safnsins og að þessu sinni
höfum við farið þá leið að skoða
þetta þema og sýnum saman mál-
verk sem tengja má þjóðsögum og
líka landslagsverk með þjóðsög-
una í huga,“ segir Rakel. Þjóð-
sagnaminnið er að hennar sögn
mest áberandi í verkum Ásgríms
Jónssonar en einnig eru sterk frá-
sagnareinkenni í verkum meist-
ara Kjarval. „Hann er þekktur
fyrri að tvinna saman íslenska
náttúru og íslenska þjóðtrú.“
Alls eiga tæplega þrjátíu lista-
menn verk á sýningunni og eru
verkin alls 95. Meðal listamanna
sem verk eiga eru Júlíana Sveins-
dóttir, Kristín Jónsdóttir, Þórarinn
B. Þorláksson og Sveinn Þórarins-
son en af yngri mönnum mætti
nefna Helga Þorgils Friðjónsson,
Eggert Pétursson og Ólöfu Nor-
dal. Að sögn Rakelar eru verkin
afar fjölbreytt, allt frá rómantískri
upphafinni náttúrusýn til nýróm-
antíkur og endurskoðunar nútíma-
mannanna en sýningin er þó ekki
hugsuð sem heildaryfirlit heldur
brot af því besta úr safnkostinum
sem tengja má landagslagsþem-
anu.
„Erlendir ferðamenn eru í
meirihluta gesta á sumarsýning-
unni í júlímánuði,“ útskýrir Rakel
og áréttar að því sé sýningin að
hluta stíluð inn á þann markhóp. Í
sumar verður einnig í fyrsta sinn
boðið upp á reglulega leiðsögn
fyrir gesti á ensku en hingað til
hefur aðeins verið boðið upp á
slíkt eftir pöntunum. Nú gefst
erlendum gestum kostur á að
mæta í hádeginu á þriðjudögum
og föstudögum og fá greinargóða
kynningu á sýningu safnsins sér
að kostnaðarlausu.
Rakel segir að margir gestanna
séu nokkuð fróðir um íslenska
myndlist. „Margir hafa nýtt sér
upplýsingar sem finna má á heima-
síðunni okkar og koma jafnvel sér-
staklega til að skoða ákveðin verk.
Ég veit ekki til þess að það hafi
verið gerð nein úttekt á því hversu
fróðir gestirnir eru og vitanlega
eru þetta ólíkir hópar en sumir
eru nokkuð vel að sér.
Sýningin stendur til 24. sept-
ember en um miðjan ágúst verður
aftur boðið upp á leiðsögn lista- og
fræðimanna sem skipulögð er
undir yfirskriftinni „Þankar um
myndlist - Spurt og spjallað“ en
þar fær safnið góðan gest til þess
að fjalla um sýninguna út frá per-
sónulegum forsendum. „Það er
gaman að fá þessa tengingu því
fólk kemur víða að,“ segir Rakel
en erindi þeirra leiðsögumanna
sem þegar hafa gengið um sýning-
arnar hafa mælst vel fyrir hjá
öðrum safngestum.
Nánari upplýsingar um sýning-
una og sumardagskrána má finna
á heimasíðu listasafnins, www.
listasafn.is. kristrun@frettabladid.is
RAKEL PÉTURSDÓTTIR LISTFRÆÐINGUR Landslag og þjóðsögur í íslenskri myndlist eru
aðalviðfangsefni sumarsýningar Listasafns Íslands. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Þjóðleg sumarsýningListamaðurinn Snorri Ásmunds-
son opnar vinnustofu sína fyrir
gestum og gangandi um helgina.
Snorri hefur búið og starfað að
list sinni í gamla Álafosshúsinu í
Mosfellsbæ síðustu misseri en
hann hefur komið víða við í list-
sköpun sinni og á að baki all sér-
kennilegan feril sem listamaður.
Gjörningar Snorra hafa oftar en
ekki snert viðkvæma strengi hjá
samborgurum hans, til dæmis
forsetaframboð Snorra árið 2004
sem fór öfugt ofan í suma kjós-
endur.
Listferill Snorra er að taka
nýja og spennandi stefnu um
þessar mundir og niðurstaða af
áralöngum rannsóknum hans og
tilraunum að skila sér inn í sköp-
unarferlið. Áhugasamir eru
hvattir til að gera sig gestkomna
hjá Snorra í Álafosshúsinu, Ála-
fossvegi 23. annari hæð en þar
verður opið frá 14-18 í dag og á
morgun eða eftir samkomulagi
við húsráðandann.
SNORRI ÁSMUNDSSON MYNDLISTARMAÐ-
UR Opið hús um helgina. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Opið hús hjá Snorra
Guðný Einarsdóttir orgelleikari
heldur tónleika í Hallgrímskirkju
um helgina. Guðný er einn af efni-
legustu ungu orgelleikurunum
sem nú eru að ljúka framhalds-
námi en hún stundaði nám við
Konunglega tónlistarháskólann í
Kaupmannahöfn í vetur. Hún
stundaði píanónám við Tónlistar-
skólann í Reykjavík og orgelnám
við Tónskóla þjóðkirkjunnar þar
sem kennari hennar var Marteinn
H. Friðriksson.
Guðný hefur haldið tónleika
bæði á Íslandi og í Danmörku og
komið fram við ýmis tilefni. Vorið
2006 gegndi hún stöðu aðstoðar-
organista í Holmens kirkju í Kaup-
mannahöfn og mun í haust halda
til Parísar og gegna stöðu organ-
ista við dönsku kirkjuna þar í
borg.
Fyrri tónleikar Guðnýjar fara
fram í hádeginu í dag en þar leik-
ur hún þrjú barrokverk eftir
Dietrich Buxtehude, Georg Böhm
og prelúdíu og fúgu í D-dúr eftir
Johann Sebastian Bach. Á síðari
tónleikunum á sunnudagskvöldið
kl. 20 leikur hún verk eftir Bach,
Charles-Marie Widor og Jehan
Alain auk verks eftir Modest
Mussorgsky sem Keith John hefur
umskrifað fyrir orgel.
Tónleikarnir eru liður í tón-
leikaröð Alþjóðlega orgelsumars í
Hallgrímskirkju.
-khh
GUÐNÝ EINARSDÓTTIR ORGELLEIKARI
Tvennir tónleikar í Hallgrímskirkju um
helgina.
Myndir Mussorgskys
Í dag uppselt
7. júlí uppselt
8. júlí laus sæti
13. júlí laus sæti
14. júlí laus sæti
15. júlí laus sæti
Sýnt í Landnámssetri í Borgarnesi
Sýningar í júlí
Föstudag 7. júlí kl. 20 laus sæti
Laugardag 8. júlí kl. 20 laus sæti
Sunnudag 9. júlí kl. 20 laus sæti
Föstudag 14. júlí kl. 20 laus sæti
Laugardag 15. júlí kl. 20 laus sæti
Sunnudag 16. júlí kl. 20 laus sæti
Föstudag 21. júlí kl. 20 laus sæti
Laugardag 22. júlí kl. 20 laus sæti
Sunnudag 23. júlí kl. 20 laus sæti
Föstudag 28. júlí kl. 20 laus sæti
Laugardag 29. júlí kl. 20 laus sæti
Sunnudag 30. júlí kl. 20 laus sæti
LEIKHÚSTILBOÐ
Tvíréttaður matur, miði og frítt
í Göngin til baka í boði
Landnámsseturs
Frá kr. 4000 - 4800
MIDAPANTANIR Í SÍMA 437 1600