Fréttablaðið - 08.07.2006, Side 70
50 8. júlí 2006 LAUGARDAGUR
sport@frettabladid.is
FÓTBOLTI Michael Ballack verður
ekki með Þjóðverjum í leiknum
um þriðja sætið á HM í kvöld
þegar gestgjafarnir mæta Portú-
gölum. Fyrirliði Þjóðverja á við
meiðsli að stríða í vinstra hné og
hefur því lokið keppni á HM.
Robert Huth og Marcell Jansen
koma inn í liðið fyrir Per Mertes-
acker og Arne Friedrich og Oliver
Kahn leikur sinn síðasta landsleik
í markinu.
„Við skuldum Oliver að leyfa
honum að spila og það getur eng-
inn í heiminum tekið þetta af
honum. Hann hefur spilað mikil-
vægt hlutverk fyrir okkur, hann
hefur verið eins og meðlimur í
þjálfarateyminu og hefur haft
mikil áhrif á ungu leikmennina í
liðinu,“ sagði Jürgen Klinsmann,
landsliðsþjálfari en Jens Lehmann
sagðist glaður vilja víkja fyrir kol-
lega sínum.
Luiz Felipe Scolari, landsliðs-
þjálfari Portúgals segist bíða
spenntur eftir leiknum. „Ég hefði
kannski frekar viljað spila í
úrslitaleiknum en við verðum að
vera stoltir af þessum árangri hjá
okkur. Við höfum reynt að spila
vel og að mínu mati hefur það tek-
ist vel. Við erum þakklátir stuðn-
ingsmönnum okkar sem hafa verið
stórkostlegir og við ætlum ekki að
missa andann þrátt fyrir að hafa
ekki komist í úrslitaleikinn,“ sagði
Scolari.
Margir vilja meina að leikurinn
um þriðja sætið skipti engu máli
en FIFA hefur brugðist við því.
„Að mínu mati skiptir þessi leikur
miklu máli, það skiptir líka máli
fyrir leikmennina hvort þeir lenda
í þriðja eða fjórða sæti,“ sagði
Markus Siegler, talsmaður FIFA,
en það voru Tyrkir sem náðu
þriðja sætinu árið 2002. - hþh
Leikurinn um þriðja sætið á HM í Þýskalandi fer fram í kvöld þegar heimamenn mæta Portúgal:
Hverjir hljóta sárabótarverðlaunin í Stuttgart?
TILBÚINN Í SLAGINN? Oliver Kahn endar landsliðsferilinn í kvöld en á æfingu í gær virtist
hann hafa lítinn áhuga á leiknum og geispaði myndarlega ótt og títt. NORDICPHOTOS/AFP
KAPPAKSTUR Viktor var að keppa
fyrir réttri viku á Brands Hatch
brautinni í Englandi þegar hann
lenti í virkilega hörðum árekstri.
Atvikið gerðist í undankeppninni
þegar Viktor ætlaði að endur-
heimta fyrsta sætið sem hann
hafði náð fyrr um daginn. Viktor
ætlaði að taka fram úr hægfara bíl
fyrir framan sig sem hætti skyndi-
lega við að víkja úr vegi fyrir Vikt-
ori sem skall harkalega á bílinn.
„Ég gat ekki gert neitt annað en
að klessa aftan á hann. Um leið og
ég skall á honum flaug bíllinn lóð-
rétt upp í loftið og var á hvolfi,
tæpum þremur metrum fyrir ofan
brautina. Bíllinn lenti á vinstra
framhjólinu, brotnaði nánast í
tvennt og gjöreyðilagðist. Þjón-
ustuliðið stóð sig frábærlega í að
byggja alveg nýjan bíl fyrir mig
um nóttina svo ég gæti keppt dag-
inn eftir,“ sagði Viktor við Frétta-
blaðið um atvikið. Viktor missti af
fyrstu keppninni um helgina af
þremur en náði öðru sæti í annarri
keppninni og sigraði svo í þeirri
þriðju.
„Eina stundina var ég að horfa
á afturvænginn á bílnum fyrir
framan mig, þá næstu sá ég bláan
himininn og á þeim tímapunkti
vissi ég að það sem myndi gerast
næst yrði vont. Ég vissi samt sem
áður að bílarnir eru sterkbyggðir
auk þess sem öryggisbúnaðurinn
minn er mjög góður. Ég bjó mig
undir það versta og skall svo á
jörðinni. Ég meiddi mig í bakinu
og finn ennþá til þegar ég sný upp
á bakið, það var aftur á móti 20
stiga forysta mín í stigakeppninni
sem fór verst út úr þessu,“ sagði
Viktor.
Viktor hefur farið frábærlega
af stað á tímabilinu og unnið fimm
af sjö keppnum. „Ég er að sjálf-
sögðu ánægður með byrjunina hjá
mér. Ég hef aldrei byrjað tímabil
svona vel og er algjörlega í skýj-
unum. Hingað til hef ég gert mjög
fá mistök og þessi stöðugleiki er
það sem ég þarf að hafa til að vinna
meistaratitilinn,“ sagði Viktor sem
horfir bjartsýnn fram á tímabilið
sem nú er hálfnað.
„Fyrir mér er ég kominn aftur
á byrjunarreit. Ég er orðinn jafn
öðrum á toppi stigatöflunnar nú
þegar tímabilið er hálfnað og því
þarf ég að byrja aftur. Það er núna
undir mér komið að gleyma
árekstrinum og halda áfram að
sækja. Ég veit að ég hef hæfileik-
ana til að vera sá besti en ég er
ekki svo óþroskaður að halda að
það verði auðvelt. Mikil vinna og
einbeiting er lykillinn og ég mun
taka samstundis upp þráðinn,“
sagði Viktor Jensen.
hjalti@frettabladid.is
Sá bílinn fyrir framan mig
og svo bara bláan himininn
Íslenski ökuþórinn Viktor Jensen heldur ótrauður áfram baráttu sinni um sigur
í Palmer Audi-formúlunni. Viktor lætur mjög slæman árekstur ekki á sig fá en
bíll hans flaug lóðréttur tæpa þrjá metra upp í loftið um síðustu keppnishelgi.
GLETTINN Viktor rennir hér hýru auga til
föngulegrar stúlku á verðlaunapallinum á
Brands Hatch. FRÉTTABLAÐIÐ
SIGURSÆLL Viktor hefur unnið fimm mót af sjö og situr nú í efsta sæti ásamt einum
öðrum. Þar að auki hefur Viktor fimm sinnum verið á ráspól og fimm sinnum náð besta
tíma í keppnum. FRÉTTABLAÐIÐ
FÓTBOLTI „Ég er í skýjunum með að
vera kominn aftur í mikilvægasta
félag heims,“ sagði Fabio Capello
þegar hann var kynntur sem nýr
þjálfari spænska risaliðsins Real
Madrid. Umræður hafa verið uppi
um að portúgalski kantmaðurinn
Cristiano Ronaldo gæti verið á leið
til félagsins og segist Capello vera
nokkuð viss um að leikmaðurinn
sjálfur vilji koma.
„Það vilja allir spila fyrir Real
Madrid og ég er nokkuð viss um
að hann er í þeim hópi. Ég er mjög
hrifinn af honum sem leikmanni
en á þessari stundu get ég ekkert
sagt,“ sagði Capello sem notaði
einnig tækifærið og neitaði öllum
kjaftasögum þess efnis að David
Beckham væri á leið frá félaginu.
„Beckham er mikilvægur fyrir
Real Madrid og það þarf ekki að
ræða það frekar.“ - egm
Fabio Capello um Ronaldo:
Það vilja allir
koma hingað
CAPELLO Vill fá Cristiano Ronaldo.
NORDICPHOTOS/AFP
FÓTBOLTI Raymond Domenech,
þjálfari franska landsliðsins, er
bjartsýnn fyrir úrslitaleikinn gegn
Ítalíu á morgun. Franska liðið
virkaði nokkuð þreytt í leiknum
gegn Portúgal í undanúrslitum
þrátt fyrir að ná 1-0 sigri. „Portú-
galska liðið lét okkur vinna fyrir
hlutunum og það kemur ekki á
óvart að smá þreyta hafi verið í
mínum mönnum undir lokin. Ég er
þó viss um að þeir sýni sínar bestu
hliðar í úrslitunum enda gleymist
öll þreyta í þeim leik,“ sagði Dom-
enech.
Talað var um fyrir mótið að
liðið væri of gamalt. „Ég hef bara
hlegið að þessari gagnrýni. Við
erum að tala um sjö leiki og menn
um þrítugt geta nú vel þolað það.
Luis Figo er jafngamall Zinedine
Zidane og ekki hefur hann verið
slæmur á mótinu. Svo erum við
ekki bara með gamla leikmenn en
þeir eldri miðla reynslu sinni til
þeirra yngri,“ sagði Domenech.
- egm
Raymond Domenech:
Liðið er alls
ekki of gamalt
TILHLÖKKUN Domenech er spenntur fyrur
úrslitaleiknum. NORDICPHOTOS/AFP
FÓTBOLTI Sérstök valnefnd á vegum
FIFA hefur valið sérstakan 23
manna úrvalshóp sem bestu leik-
menn heimsmeistaramótsins
skipa. Ítalía ber höfuð og herðar
yfir önnur landslið mótsins og á
sjö fulltrúa í hópnum. Englending-
ar eiga aðeins einn leikmann en
það er varnarmaðurinn John Terry
úr Chelsea. Athyglisvert er að
ekkert pláss er fyrir hinn brasil-
íska Ronaldo sem skoraði þrjú
mörk á mótinu en Ze Roberto er
eini fulltrúi Brasilíu.
Enginn leikmaður frá Afríku
eða Asíu komst í þennan úrvals-
hóp. Frakkar munu mæta Ítölum í
úrslitaleik mótsins á morgun en
þeir eiga fjóra fulltrúa í úrvalslið-
inu. Gestgjafarnir í Þýskalandi
eiga einnig fjóra fulltrúa en þeir
mæta Portúgal í leiknum um
þriðja sætið í kvöld en aðeins tveir
frá Portúgal eru í úrvalsliðinu.
- egm
Úrvalslið HM valið;
Sjö Ítalir í
úrvalsliðinu
Í ÚRVALSLIÐINU Totti og Gattuso eru báðir í
úrvalsliðinu. NORDICPHOTOS/AFP
ÚRVALSHÓPUR HM
Markmenn: Gianluigi Buffon (Ítalíu), Jens
Lehmann (Þýskalandi), Ricardo (Portúgal)
Varnarmenn: Roberto Ayala (Argentína),
John Terry (England), Lilian Thuram (Frakk-
land), Philipp Lahm (Þýskalandi), Fabio
Cannavaro (Ítalíu), Gianluca Zambrotta
(Ítalíu), Ricardo Carvalho (Portúgal)
Miðjumenn: Ze Roberto (Brasilíu), Patrick
Vieira (Frakklandi), Zinedine Zidane (Frakk-
landi), Michael Ballack (Þýskalandi), Andrea
Pirlo (Ítalíu), Gennaro Gattuso (Ítalíu), Luis
Figo (Portúgal), Maniche (Portúgal)
Framherjar: Hernan Crespo (Argentína),
Thierry Henry (Frakklandi), Miroslav Klose
(Þýskalandi), Francesco Totti (Ítalíu), Luca
Toni (Ítalíu)
Þróttur mætir Millwall
Enska liðið Millwall er statt hér á landi
og mun leika æfingaleik gegn 1. deild-
arliði Þróttar í dag. Leikurinn fer fram á
Valbjarnarvelli og hefst klukkan 15.00.
1000 krónur kostar á leikinn.
Það gladdi augu margra stuðnings-
manna FH að sjá varnarmanninn Sverri
Garðarsson fá sér sæti á bekknum fyrir
leikinn gegn KR í Landsbankadeildinni í
fyrradag. Þar með var endurkoma Sverr-
is í boltann formlega staðfest en hann
hefur verið frá vegna þrálátra meiðsla í
næstum tvö ár. Um tíma var óttast að
ferill Sverris væri jafnvel á enda en hann
var lykilmaður í vörn FH þegar liðið varð
fyrst Íslandsmeistari fyrir þremur árum.
Sverrir kom ekkert við sögu í
leiknum gegn KR en kveðst þó alsæll.
„Þetta var alveg yndislegt. Að klæða sig
í takkaskóna og setja á sig legghlífarnar,
í stemningunni inni í klefa fyrir leik.
Það var alveg frábært. Þetta var í fyrsta
sinn sem ég er á bekknum og hef notið
mín,“ sagði Sverrir við Fréttablaðið í gær
og hló dátt. Meiðslin þrálátu virðast
loks vera að baki en um er að ræða afar
sjaldgæf álagsmeiðsl sem leggjast á
ökklanna og hefur Sverrir farið í nokkrar
aðgerðir á báðum fótum.
„Ég þarf að fá frí frá æfingum
tvisvar í viku en annars finn ég lítið fyrir
verkjunum. Úthaldið fer batnandi með
hverjum degi og það er stutt í að ég
verði klár í 90 mínútna leik,“ segir Sverrir
og bætir því við að hann sé sami leik-
maður og hann var fyrir meiðslin. „Ég
á eftir að létta mig um 4-5 kíló og það
tekur náttúrulega sinn tíma að komast í
fulla leikhæfingu á ný. Annars er ég lítið
breyttur,“ sagði Sverrir og glotti.
Varnarmaðurinn ungi býst þó ekki
við því að vera eins sáttur með að vera
allan tímann á bekknum í næsta leik. „Í
næsta leik vill ég fara inn á og fljótlega
eftir það mun ég vilja vera í byrjunar-
liðinu. Markmiðið er að vera búinn að
tryggja mér sæti í liðinu áður en tímabil-
ið er á enda,“ sagði Sverrir Garðarson að
lokum.
SVERRIR GARÐARSSON HJÁ FH: Í FYRSTA SINN Í LEIKMANNAHÓPNUM Í TÆP TVÖ ÁR
Aldrei áður notið þess að vera á bekknum
> Birgir á góðu skriði
Birgir Leifur Hafþórsson, atvinnukylf-
ingur úr GKGátti góðan dag á öðrum
keppnisdegi Áskorendamótaraðarinnar
og er samtals á tveimur höggum undir
pari. Birgir lék á 70
höggum í gær og
á 72 höggum
í fyrradag en
hann er
komin i
gegnum
niðurkurð
mótsins.
Hann á hrós
skilið því
hann var
síðasti maður
inn í mótið og er
að sýna mikinn
stöðugleika í sínu
spili.