Fréttablaðið - 08.07.2006, Page 72
8. júlí 2006 LAUGARDAGUR52
Stjörnurnar fæðast í Eyjum
Hinu árlega Shellmóti í fótbolta lauk í Vestmannaeyjum um síðustu helgi en mótið var haldið í fyrsta
skipti árið 1984. Elvar Geir Magnússon gluggaði í sögu mótsins og komst að því að margir þeirra sem hafa
unnið til verðlauna þar eru vel þekktir í íþróttalífi landsins í dag og þá ekki bara fyrir fótboltaiðkun.
FÓTBOLTI Árið 1987 varð Andri
Sigþórsson markahæsti leikmað-
ur Tommamótsins þegar hann
skoraði 33 mörk fyrir KR, engum
hefur tekist að skora eins mörg
mörk og hann á einu móti. Rétt
rúmum tíu árum síðar fylgdi Kol-
beinn Sigþórsson í fótspor bróð-
ur síns og varð markakóngur
árið 1998 en þá var hann að spila
uppfyrir sig og var tveimur árum
yngri en flestir keppinautar sínir
á mótinu sem hét þá Shellmótið.
Kolbeinn spilaði með Víking og
varð einnig markahæstur næstu
tvö ár á eftir og því alls þrisvar,
hann er sá eini sem hefur verið
markakóngur oftar en einu
sinni.
„Ég man eftir því að ég fór og
horfði á síðasta Shellmótið sem
Kolbeinn spilaði á árið 2000. Það
var gaman að koma aftur á mótið
eftir að hafa spilað á því sjálfur á
sínum tíma. Það var mikil breyting
og mótið er greinilega að stækka
og þróast í rétta átt,“ sagði Andri
en Kolbeinn er í dag á sextánda ári
og er í herbúðum HK.
Andri lék sjö A-landsleiki fyrir
Ísland en 25 ára varð hann að
hætta knattspyrnuiðkun vegna
alvarlegra meiðsla. „Í maí 2002
var ég að spila með Molde í Nor-
egi gegn Moss og það kom fyrir-
gjöf. Markmaðurinn hoppaði í
hnéð á mér og ég var fastur með
takkana í grasinu. Ég þríbrotnaði í
hnénu og allt fór í köku. Svíi sem
var læknir enska landsliðsins
núna á HM meðhöndlaði mig á
sínum tíma og sagði að þetta gæti
aldrei lagast,“ sagði Andri en hann
hefur sannað að það er þó líf eftir
fótboltann. Hann býr í dag í Nor-
egi og er með fyrirtækjarekstur
en hann er með sex bakarí á sínum
snærum. Í lok mánaðarins mun
hann síðan gifta sig hér á landi.
Andri segist muna vel eftir
Tommamótinu 1987 þegar hann
varð markakóngur en hann fór á
þrjú mót. „Ég man best eftir því
síðasta og þá sérstaklega eftir
úrslitaleiknum. Þar unnum við
Eið Smára Guðjohnsen og félaga í
ÍR 6-1 og ég skoraði fimm.
Ég hlakkaði rosalega mikið til að
fara, það var gaman að spranga
og fara í hellaskoðanir og svona.
Þá var það mikil hvatning að fá
þessi verðlaun,“ sagði Andri en
Eiður Smári varð svo markakóng-
ur á mótinu árið eftir.
Markakóngarnir Andri og Kolbeinn Sigþórssynir:
Ótrúlegir bræður sem
eiga öll markametin
RAÐAÐI INN MÖRKUM Enginn hefur skorað fleiri mörk á einu Shellmóti í Vestmannaeyj-
um en Andri Sigþórsson.
Á lista yfir markakónga mótsins
frá upphafi má sjá mörg athygl-
isverð nöfn, þar á meðal er Arnar
Sigurðsson sem er í dag fremsti
tenniskappi þjóðarinnar. Arnar
var á sínum tíma mjög efnilegur
fótboltamaður en hann æfði hjá
Breiðabliki í Kópavogi. „Ég man
nokkuð vel eftir Shellmótinu,
þetta var rosalega gaman. Svo
skemmdi ekki fyrir að vinna til
verðlauna og vera valinn í lands-
lið mótsins og svona. Það var
samt ekki bara gaman að keppa
þessa leiki heldur var það allt í
kringum þetta mót sem var svo
skemmtilegt líka,“ sagði Arnar
„Ég var miklu meira í fótbolta
en tennis í gamla daga en þegar
ég var í kringum fjórtán ára ald-
urinn þá sagði ég skilið við fót-
boltann. Það var mjög erfið
ákvörðun en á þessum tíma var
ég fyrirliði hjá Breiðablik og var
búinn að vera í landsliðsúrtökum
og svona. Þetta var erfiður aldur
og maður fékk svo sannarlega að
heyra það, að velja svona skrítna
íþrótt fram yfir fótboltann,“
sagði Arnar og hló.
„Ástæðan fyrir því að ég valdi
tennis frekar en fótbolta var sú
að ég var aðeins búinn að fara
eitthvað til útlanda að keppa í
tennis. Mér fannst það rosalega
gaman og var mikil upplifun, því
ákvað ég að fara þá braut frekar
og sé alls ekki eftir því í dag,“
sagði Arnar en hann var marka-
kóngur á fyrsta Shellmótinu en
árin þar á undan hafði það heitið
Tommamótið.
Tenniskappinn Arnar Sigurðsson var markakóngur:
Mjög erfið ákvörðun
FREMSTUR Í TENNIS Arnar er besti tennis-
leikari landsins í dag.
BESTIR FRÁ UPPHAFI
1984 Ívar Bjarklind, KA
Í DAG: Spilaði m.a. með meistaraflokki KA,
ÍBV og KR en er nú hættur.
1985 Sverrir Auðunsson, Keflavík
Í DAG: Er hættur knattspyrnuiðkun en
spilaði með liðum af Suðurnesjum
í neðri deildunum.
1986 Aron Haraldsson, Breiðablik
Í DAG: Er hættur en spilaði með liðum af
landsbyggðinni í neðri deildunum.
1987 Andri Sigþórsson, KR
Í DAG: Var atvinnumaður en neyddist til
að hætta knattspyrnuiðkun vegna
meiðsla.
1988 Arnar Þór Viðarsson, FH
Í DAG: Spilar með hollenska liðinu Twente.
1989 Bjarni Guðjónsson, ÍA
Í DAG: Leikur með meistaraflokki ÍA í
Landsbankadeildinni.
1990 Baldur Aðalsteinsson, Völsungur
Í DAG: Leikur með meistaraflokki Vals í
Landsbankadeildinni.
1991 Daði Guðmundsson, Fram
Í DAG: Leikur með meistaraflokki Fram í 1.
deildinni.
1992 Andri Fannar Ottóson, Fram
Í DAG: Lék með meistaraflokki Fram en er
nýhættur knattspyrnuiðkun.
1993 Sigmundur Kristjánsson, Þróttur
Í DAG: Leikur með meistaraflokki KR í
Landsbankadeildinni.
1994 Gunnar Hilmar Kristinsson, ÍR
Í DAG: Leikur með meistaraflokki Leiknis
R. í 1. deildinni.
1995 Eyjólfur Héðinsson, ÍR
Í DAG: Leikur með meistaraflokki Fylkis í
Landsbankadeildinni.
1996 Albert Brynjar Ingason, Fylkir
Í DAG: Leikur með meistaraflokki Fylkis í
Landsbankadeildinni.
1997 Theódór Elmar Bjarnason, KR
Í DAG: Er samningsbundinn skoska úrvals-
deildarliðinu Glasgow Celtic.
1998 Arnór Smárason, ÍA
Í DAG: Er í herbúðum hollenska liðsins
Heerenveen og spilar með ungl-
ingaliði félagsins.
1999 Rafn Haraldsson, Þróttur
Í DAG: Spilar með 2. flokki Þróttar.
2000 Kolbeinn Sigþórsson, Víkingur
Í DAG: Spilar með 2. flokki HK.
2001 Atli Sigurjónsson, Þór
Í DAG: Er hjá 3. flokki Þórs.
2003 Kristján Gauti Emilsson, FH
Í DAG: Er hjá 4. flokki FH.
HÆTT AÐ VELJA ÞANN BESTA
Árið 2003 var í síðasta sinn valinn besti
leikmaður mótsins en Kristján Gauti
Emilsson úr FH varð þá fyrir valinu. Einar
Friðþjófsson, framkvæmdarstjóri
Shellmótsins, segir að vegna þrýstings frá
foreldrum hafi verið ákveðið að hætta að
veita þessi verðlaun svo strákunum sé ekki
mismunað. Einnig var hætt að verðlauna
markahæstu leikmenn en í dag er þó valið
sérstakt úrvalslið Shellmótsins en það eru
dómarar mótsins sem sjá um valið á því.
MARKAKÓNGAR A-LIÐA
1984 Þorvaldur Ásgeirsson, Þróttur (12)
1985 Kjartan Hjálmarsson, Fram (14)
1986 Jón Frímann, ÍA (32)
1987 Andri Sigþórsson, KR (33)
1988 Eiður Smári Guðjohnsen, ÍR (26)
1989 Guðmundur Steinarsson, Keflavík (22)
1990 Snorri Steinn Guðjónsson, Valur (19)
1990 Theodór Óskarsson, Fylkir (19)
1991 Arnar Sigurðsson, Breiðablik (19)
1992 Brynjar Harðarson, Fylkir (18)
1993 Ólafur Ingi Skúlason, Fylkir (12)
1994 Jón Emil Guðmundsson, Valur (17)
1995 Jóhann Björn Valsson, Afturelding (15)
1996 Atli Kristinsson, Selfossi (12)
1997 Kristján Halldórsson, ÍR (16)
1998 Kolbeinn Sigþórsson, Víkingur (16)
1999 Kolbeinn Sigþórsson, Víkingur (15)
1999 Björn Jónsson, ÍA (15)
2000 Kolbeinn Sigþórsson, Víkingur (25)
2001 Óli Ben Ólafsson, Leiknir R. (17)
2002 Ari Magnússon, HK (15)
2003 Arnþór Hermannsson, Völsungur (17)
„Maður talar alveg um þetta enn
í dag og ég neita því ekki að ég er
mjög stoltur af þessu,“ sagði
Snorri Steinn Guðjónsson sem
var markakóngur á mótinu 1990.
Snorra Stein þarf ekki að kynna
en hann er í dag atvinnumaður
og landsliðsmaður í handbolta.
„Ég var líka markakóngur á Esso-
mótinu á Akureyri á sínum tíma.
Ég var mikill markaskorari á
mínum yngri árum, reyndar
hreyfði ég mig nú ekkert mjög
mikið á vellinum og var ekki
mjög vinnusamur en skilaði
mínum mörkum,“ sagði Snorri
og hló.
„Ég man vel eftir þessum
mótum, þetta var algjörlega
toppurinn á tilverunni hjá manni
þegar maður var lítill og þetta
lifir enn í minningunni í dag.
Árið á eftir varð ég í öðru sæti
yfir markahæstu menn en þá
unnum við Shellmótið, það skipti
reyndar meira máli að vera
markakóngur en hitt,“ sagði
Snorri og glotti.
Hann var mjög efnilegur í fót-
boltanum en svo kom sá tími að
hann þurfti að velja á milli. „Ég
kláraði þriðja flokkinn í fótbolt-
anum en var farinn að einbeita
mér mun meira að handboltan-
um. Það var meiri vilji hjá mér
að vera handboltamaður og þar
var ég líka betri svo það var
kannski ekkert mjög erfitt að
velja á milli.“
Snorri Steinn Guðjónsson raðaði inn mörkum:
Er stoltur af þessu
MEÐ MARKAKÓNGSBIKARINN Snorri er
hér til hægri, stoltur með verðlaunin.
LANDSLIÐSMAÐUR Snorri er í dag einn
fremsti handboltamaður þjóðarinnar.
ANDRI F. OTTÓSON
Var valinn besti leik-
maður mótsins 1992.
Athygli vekur að á mótinu árið
1988 var Eiður Smári Guðjohnsen,
núverandi leikmaður Barcelona,
markahæstur með 26 mörk.
Hins vegar var það Arnar
Þór Viðarsson sem valinn
var bestur á mótinu þetta ár
en hann leikur nú með
Twente í Hollandi og eru þeir
tveir samherjar hjá íslenska
landsliðinu.
Fréttablaðið hafði
samband við menn
sem fylgdust með
mótinu þetta ár. Segja
þeir að Eiður Smári
hafi í raun verið yfirburðamaður á
mótinu en hins vegar hafi verið
ákveðið að veita Arnari Þór verð-
launin þar sem það þótti nóg
fyrir Eið að fá verðlaun fyrir
markaskorun. Arnar Þór hafi
vissulega verið mjög góður
en ljóst að hann hefði í raun
verið næstbesti maður móts-
ins.
Tommamótið árið 1988:
Arnar Þór betri en Eiður?
ARNAR ÞÓR VIÐARSSON
Svona leit hann út þegar
hann var valinn bestur
á Tommamótinu, árið
1988. Nú spilar hann með
Twente í Hollandi.
LIÐ ÍR 1988 Eiður Smári er merktur með rauðum hring. Hægra megin við hann er Ragnar
Óskarsson, atvinnumaður í handbolta.
„Gamlar“ stjörnur
SIGURVIN ÓLAFSSON
Eyjapeyinn sem nú
spilar með FH-ingum.
ATLI GUÐNASON
Sóknarmaður FH valinn
besti varnarmaðurinn.
ARNAR ÞÓR VIÐARSSON
Sýnir hér snilli sína með
knöttinn á Shellmótinu.
BALDUR AÐALSTEINS
Sópaði að sér verðlaun-
um á sínum tíma.
BJARNI GUÐJÓNSSON
Skagamaðurinn valinn
bestur 1989.
HELGI ÁSS GRÉTARSSON
Var hörkumarkvörður áður
en skákin varð fyrir valinu.
SIGMUNDUR KRISTJÁNS-
SON Valinn bestur 1993
en er hjá KR í dag.
DAÐI GUÐMUNDSSON Framarinn fær
verðlaun fyrir að vera bestur 1991.
GUNNLEIFUR
GUNNLEIFSSON
Markvörður HK-inga
tekur sig vel út.