Fréttablaðið - 08.07.2006, Síða 78
8. júlí 2006 LAUGARDAGUR58
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
VEISTU SVARIÐ
Svör við spurningum á bls. 8
1 Selá í Vopnafirði.
2 Felipe Calderón .
3 Ólafur Þórðarson.
LÁRÉTT
2 vatnsfall 6 skammstöfun 8 skordýr
9 blaður 11 mjöður 12 skaði 14
ólögl. innflutningur 16 í röð 17 því
næst 18 borg 20 frá 21 frumeind.
LÓÐRÉTT
1 tilraunaupptaka 3 ógrynni 4 kasta
5 sunna 7 kjarabót 10 forskeyti 13
háð 15 hrósa 16 geislahjúpur 19
eldsneyti.
LAUSN
LÁRÉTT: 2 foss, 6 eh, 8 fló, 9 mas, 11
öl, 12 ógagn, 14 smygl, 16 áb, 17 svo,
18 róm, 20 af, 21 atóm.
LÓÐRÉTT: 1 demó, 3 of, 4 slöngva, 5
sól, 7 hagsbót, 10 sam, 13 gys, 15 lofa,
16 ára, 19 mó.
„Ég er auðvitað ótrúlega stolt af
honum,“ segir Eyrún Huld Har-
aldsdóttir, unnusta Magna Ásgeirs-
sonar, sem er kominn áfram í
bandaríska raunveruleikaþættin-
um Rockstar: Supernova.
„Hann stóð sig náttúrlega eins
og hetja. Það er áreiðanlega ekki
auðvelt að standa fyrir framan
tugi þúsunda áhorfenda og syngja.
Þar að auki er hann eini Íslending-
urinn og eini Evrópubúinn svo það
hlýtur að vera svolítið erfitt að
falla inn í hópinn. Ég held að hann
hafi bara leyst þetta mjög vel af
hendi.“
Eyrún Huld hefur ekkert heyrt
í Magna síðan daginn fyrir fyrstu
útsendingu. „Þá var hann bara
hress,“ segir Eyrún sem á von á að
heyra í Magna í dag.
Eyrún Huld er nú stödd hjá for-
eldrum sínum á Egilsstöðum þar
sem hún hefur fylgst með keppn-
inni ásamt Marínó, níu mánaða
syni þeirra Magna.
„Húsið fylltist af vinum og ætt-
ingjum á miðvikudaginn og það
var mikil spenna. Mikið klappað
og mikið stuð,“ segir Eyrún hlæj-
andi. „Marínó hefur því miður ekki
séð pabba sinn í þættinum þar sem
hann er sofandi á þeim tíma. Ég
hef hins vegar tekið upp þáttinn
sem Marínó fær að sjá eftir nokk-
ur ár.“
Eyrún Huld segist að sjálfsögðu
vera farin að sakna Magna. „Við
erum að deyja úr söknuði en erum
samt ekki komin á það stig að vera
farin að kjósa einhvern annan til
að fá Magna fyrr heim,“ segir
Eyrún sem hefur verið dugleg við
að kjósa. „Ég veit nú ekki hversu
mörg SMS ég sendi en ég vaknaði
um nóttina við ótal bíp í símanum
þar sem var verið að staðfesta að
ég hefði kosið. Annars er líka hægt
að kjósa á heimasíðu þáttarins og
það kostar ekki neitt. Ég var nátt-
úrulega með menn í því á miðviku-
daginn,“ segir Eyrún Huld sem
stendur eins og klettur við bakið á
Magna rokkstjörnu.
Jóhanna Borgfjörð, móðir
Magna, er einnig stolt af stráknum
sínum. „Vissulega er ég stolt. Þú
getur rétt ímyndað þér,“ sagði
Jóhanna þegar Fréttablaðið hafði
samband við hana í gær. Jóhanna
átti eflaust eftir að gleðjast enn
frekar seinna um kvöldið því þegar
Fréttablaðið ræddi við hana hafði
hún ekki hugmynd um að Magni
væri kominn áfram.
Jóhanna býr á Borgarfirði
eystra en var fyrir sunnan þegar
Magni fór í prufu fyrir þáttinn.
„Hann fór í prufuna í einhverju
bríaríi en þá hugsaði ég ekkert
lengra en það,“ segir Jóhanna sem
fylgist spennt með syninum slá í
gegn í bandarísku raunveruleika-
sjónvarpi.
kristjan@frettabladid.is
ROCKSTAR SUPERNOVA: MAGNI KOMINN ÁFRAM
Fjölskyldan stolt af Magna
MAGNI OG FJÖLSKYLDA Magni kvaddi Eyrúnu unnustu sína og Marínó níu mánaða gamlan son áður en hann flaug vestur um haf til að
taka þátt í sjónvarpsþættinum. Magni fær aðeins að hringja heim tvisvar í viku.
Pollamótið í knattspyrnu stendur
nú yfir á Akureyri og verður
úrslitaleikurinn leikinn í dag
klukkan 18. Mótið fer fram á Þórs-
svæðinu og um 500 þátttakendur
eru mættir til leiks.
„Þetta byrjar bara mjög vel. Sá
fyrsti kom haltrandi inn eftir tvær
mínútur. Það var
þó gleðilegt að
hann labbaði
fljótt út aftur,“
segir Rúnar
Haukur Ingi-
marsson sem er í
mótsstjórn Pollamótins. Þegar
Fréttablaðið ræddi við Rúnar
hafði hann í nógu að snúast eins og
gjarnan fylgir svo fjölmennum
íþróttamótum. 47 lið eru skráð til
leiks að þessu sinni, bæði í karla
og kvennaflokki.
Í karlaflokki er keppt í Polla-
deild, sem eru leikmenn á aldrin-
um 30-40 ára, og í Lávarðadeild
þar sem leikmenn eldri en 40 ára
etja kappi saman. Í kvennaflokki
er hins vegar aðeins keppt í Ljón-
ynjudeild þar sem konur eldri en
25 ára eru gjaldgengar. Aðspurður
segir Rúnar að konurnar mættu
gjarnan vera fleiri á mótinu og
vonast til að þær fjölmenni að ári.
Eins og jafnan keppir fjöldi
þjóðþekktra einstaklinga á Polla-
mótinu í ár. Í karlaflokki er fjöldi
gamalla fótboltakempa sem hafa
lagt skóna á hilluna, en sumir
þeirra eiga að baki landsleiki.
Þekktastir eru þó líklega sjón-
varpsmennirnir Logi Bergmann
Eiðsson og Kristján
Kristjánsson. Í
kvennaflokknum
vöktu taktar þeirra
Rögnu Lóu Stefáns-
dóttur og Helenu
Ólafsdóttur, þjálf-
ara KR, einna
mesta athygli.
-hdm
Kempur á Pollamóti
HELENA ÓLAFS-
DÓTTIR
Hefur engu
gleymt.
LOGI BERGMANN
Getur bæði spilað
í stöðu framherja
og í markinu.
HRÓSIÐ
... fær Ólafur Ragnar Grímsson
fyrir að halda fyrstur forseta
íslenska lýðveldisins blaða-
mannafund utandyra á Bessa-
stöðum.
NÚNA BÚIÐ
Austurvöllur:
Skemmtilegt fyrir unga
sem aldna að sitja í
grasinu á Austurvelli á
góðviðrisdögum. Vonum
bara að þeir séu á
leiðinni.
Grill: Allir virðast
verða sjúkir í grillmat
með hækkandi sól
og með tilkomu gas-
grillanna er hægt að
grilla sama hvernig
viðrar.
Útsölur: Verslanir
landsins hafa nú
flestar lækkað verð-
ið á vörum sínum
svo um munar til
að rýma fyrir nýjum
vörum.
Útsölur: Verslanir
landsins hafa nú flestar
lækkað verðið á vörum
sínum svo um munar
til að rýma fyrir nýjum
vörum.
Stíliserað hár: Útpældar
tískuklippingar með
augljósum strípum eru
ekki málið í dag. .
HM í
fótbolta: Á
sunnudaginn
er síðasti leikur
mótsins og því
er fótboltafári
sumarsins
lokið í bili.
opið alla laugardaga 11-14
Á GRILLIÐ! NÝR HUMAR, LÚÐA,
VILLTUR LAX, SKÖTUSELUR og KEILA
FRÉTTIR AF FÓLKI
Bækur rithöfundarins og alþingiskon-unnar fyrrverandi, Guðrúnar Helga-
dóttur, eru sívinsælar á heimilum lands-
manna og
jafnvel víðar
því nú er
unnið að
því að gera
handrit að
kvikmynd
eftir sögu
hennar.
Þekkt er
hvernig Jón
Oddur og
Jón Bjarni
voru gerðir
ódauðlegir
á hvíta
tjaldinu
og nú
ætla þær
Inga Lísa
Middleton
og Margrét
Örnólfsdóttir að feta í fótspor
Þráins Bertelssonar. Þær stöllur
sitja nú sveittar við skriftir á
handriti upp úr bókinni Öðruvísi dagar.
Ekki fylgir sögunni hvenær búast má við
því að skrifin klárist eða tökur hefjist.
Smásagnahöfundurinn og bloggar-inn Ágúst Borgþór Sverrisson hefur
mikinn húmor fyrir sjálfum sér eins og
sjá má í greinarkorni á heimasíðu hans
um ritstjóraskipti Blaðsins. Honum þykir
afrek Ásgeirs Sverrissonar í ritstjórastól
ekki tilkomumikil en viðurkennir að
málið sé sér skylt, þar sem hann var
fastur pistlahöfundur hjá Blaðinu þar
til Ásgeir tók við stjórnartaumunum.
“[Þ]egar betur er að gáð þá kemur í ljós
að Blaðið breyttist eiginlega ekki neitt
með tilkomu Ásgeirs Sverrissonar. Það
eina sem hann afrekaði var að reka
mig,” segir Ágúst og bætir
við: „En það þarf meira
til að rífa upp Blaðið
en að reka nokkra
vonda pistlahöf-
unda og ráða
mömmu þeirra
(mamma skrifar
um stjörnumerki í
Blaðið). -Þetta ætti
að verða eitthvað
hressara hjá þeim
núna.“
1 dálkur 9.9.2005 15:21 Page 8