Fréttablaðið - 21.07.2006, Page 12
12 21. júlí 2006 FÖSTUDAGUR
���������������������������������������������������������������
����������� ��������������������� ���������������������������
����������������������������� ������������������
������ �������� ���� ������������� ������ ��� ����� �������
� ��������������� ���������������������� �������
�����������
��������������
����������������������
������������������������� ����������������������� �������������������������� ��������������������� ������������������������
FLUGDREKASVIF YFIR LANDAMÆRIN
Áætlað er að reisa mikinn vegg meðfram
landamærum Indlands og Bangladess, þar
sem myndin er tekin, en hann mun þó
ekki hamla þessum flugdrekum.
NORDICPHOTOS/AFP
ÞJÓFNAÐUR Nokkuð er um að þjófar
láti greipar sópa í búningsklefum
íþróttahúsa. Þótt íþróttamannvirki
séu oft með mann á vakt er oft
mikill umgangur um þau og erfitt
fyrir vaktmenn að greina svörtu
sauðina úr hópnum. Á meðan á
knattspyrnuleik stóð milli Fjölnis
og Vals í vikunni komst þjófur í
búningsklefa Fjölnisheimilisins
og hafði meðal annars þrjá
GSM-síma af keppendum beggja
liða.
Bjarki Brynjarsson í Val tapaði
GSM-síma og úri sem hann fékk í
fermingargjöf. Hann segir að eng-
inn vörður hafi verið sjáanlegur í
kringum búningsklefana í Fjölnis-
heimilinu, sem
sé oft reyndin
þegar keppt sé
þar. „Alltaf
þegar við förum
svona að keppa
eru öll verð-
mæti sett í tösku
og geymd hjá
þjálfaranum en
það var einhver
misskilningur
svo ég gerði það
ekki í þetta sinn,“ segir hann.
Lárus Grétarsson, þjálfari liðs
Fjölnis sem keppti á móti Val í vik-
unni, staðfestir að tveir í liðinu
hans hafi tapað símunum sínum á
sama tíma og stolið var frá Bjarka.
„Þetta gerist í öllum íþróttafélög-
um og mjög erfitt að eiga við þessa
hluti. Þessir strákar eiga náttúr-
lega bara að taka dótið með sér út
á völlinn þar sem við erum með
tösku með okkur. Það er einföld
leið til að koma í veg fyrir að stolið
sé frá þeim,“ segir Lárus.
Íþróttafulltrúi hjá Fjölni, Krist-
inn R. Jónsson, segir að alltaf séu
menn á vakt í húsunum en svona
mál komi samt upp. „Það er nátt-
rulega svo mikill umgangur um
húsið og erfitt að átta sig á því
hver er að koma á æfingar og
hverjir eru að gera eitthvað
annað,“ segir Kristinn. ■
Þjófur lét greipar sópa í búningsklefa á meðan á leik Fjölnis og Vals stóð:
Tapaði síma og fermingarúri
BJARKI
BRYNJARSSON
LÖGREGLA Lögreglan í Keflavík lýsir
eftir vitnum að því þegar mikið af
grófri möl og grjóti féll af palli
stórrar grænblárrar vörubifreiðar
á Reykjanesbraut um klukkan 14.30
hinn 3. júlí síðastliðinn, sem olli
tjóni á fjórum bílum hið minnsta.
Bíllinn var á leið austur Reykja-
nesbraut rétt vestan við álverið í
Straumsvík þegar efnið féll af pall-
inum, meðal annars á bíl sem kom
úr austri. Vitað er um þrjá aðra bíla
sem urðu fyrir tjóni og að sögn lög-
reglu hleypur tjónið samanlagt á
hundruðum þúsunda.
Þeir sem telja sig geta veitt upp-
lýsingar eru beðnir að hafa sam-
band við lögregluna í Keflavík. - sh
Lögreglan í Keflavík:
Vitna að grjót-
hruni óskað
KAUPMANNAHÖFN, AP Grænlending-
ar hófu viðræður um olíuleit á
Grænlandi við nokkur stærstu olíu-
fyrirtæki heims á þriðjudag.
Jørn Skov Nielsen, fram-
kvæmdastjóri Auðlindastofnunar
Grænlands, segist vera viss um að
olía finnist á Grænlandi, en vafa-
mál sé hversu mikil hún er og hvort
það svari kostnaði að dæla henni
upp.
Erfiðar aðstæður eru á Græn-
landi til olíuleitar vegna þess hve
afskekkt landið er, sem og vegna
veðurfars og íss. Vísindamenn hafa
fundið vísbendingar um að olíu sé
að finna í jörðu í Diskóflóa á vestur-
strönd Grænlands, en við hann er
Kangiafjörður, sem er á Heims-
minjaskrá Sameinuðu þjóðanna.
Haft var eftir Nielsen að gert
yrði umhverfismat en talsmaður
Grænfriðunga í Danmörku, Tarjei
Haaland, telur það ekki duga til.
Hann segir áform um að leita að
olíu á jafn viðkvæmum slóðum
„vitfirringu“ og hvatti fólk til að
íhuga afleiðingar olíuslyss í Diskó-
flóa. - kóþ
Grænlendingar leita gullsins svarta:
Ræða við stærstu
olíufyrirtæki heims
INÚÍTAR Í DISKÓFLÓA Innan skamms er
búist við að markviss olíuleit hefjist í Diskó-
flóa, undir stjórn erlendra fyrirtækja.
SVÍÞJÓÐ, AP Fyrrverandi njósnari
fyrir Sovétríkin hefur lýst því yfir
að hann sé félagi í sænska Vinstri-
flokkinum. Talsmaður flokksins
segir þetta geta
skaðað flokkinn
fyrir kosningarn-
ar í september,
en flokkurinn
hefur unnið hart
að því síðasta
áratuginn að losa
sig við
kommúnista-
ímyndina.
Njósnarinn,
Stig Sydholt, áður þekktur sem Stig
Bergling, sat í tæp tólf ár í fangelsi
fyrir að leka hergögnum til Moskvu
á áttunda áratugnum. Sydholt sagði
njósnirnar þó hafa verið frekar pen-
inganna vegna en vegna hugsjóna,
en hann hefur nú í fyrsta skipti lýst
yfir stuðningi við stjórnmálaflokk. -
Félagi í sænska vinstriflokknum:
Var njósnari
fyrir Sovétríkin
STIG SYDHOLT
DÝRAVERND Guðmundur Björns-
son, rekstrarstjóri meindýravarna
hjá Reykjavíkurborg, segir átak
til að fækka mávum innan borgar-
innar ganga vel. „Við höfum unnið
í þessu undanfarin ár, en nú er
þetta orðið átak og meiri vinna
lögð í þetta,“ segir Guðmundur.
„Fólk vill losna við mávana, en
ekki sjá eða vita neitt af því þegar
þeir eru skotnir.“ Mávarnir eru
drepnir í eyjunum í nágrenni borg-
arinnar og við ströndina, en þeir
eru einnig skotnir við Tjörnina.
Að sögn Guðmundar hafa verið
uppi hugmyndir um að byrla máv-
unum svefnlyf með því að setja
brauðmola með lyfinu á eggin í
hreiðrum mávanna. Mávarnir
myndu þá borða svefnlyfið og auð-
veldara yrði að ná til þeirra. Guð-
mundur segir þetta hafa reynst
vel erlendis.
Sigríður Ásgeirsdóttir, formað-
ur Dýraverndarsambands Íslands,
segir meindýravarnir einungis
hafa leyfi til að skjóta máva í eyj-
unum, en ekki við Tjörnina og á
öðrum stöðum í borginni. Hún
segir ýmsar aðrar hugmyndir
vera til staðar til að hafa stjórn á
mávunum. „Við höfum rætt það
við ýmsa og fáum þau viðbrögð að
það sé of dýrt, en enginn spyr hvað
kostar að borga þessum skotveiði-
mönnum,“ segir Sigríður. „Til
dæmis væri hægt að fá borgarbúa
með góðu til að hætta að gefa
brauð við Tjörnina á sumrin. Fólki
finnst það gaman, en um leið er
verið að festa mávinn í sessi. Gæs-
irnar og endurnar afla fæðu með
öðrum leiðum.“
Sigríður telur einnig að með
veiðunum hafi mávurinn jafnvel
verið flæmdur inn í borgina. Hægt
væri að hafa fóðurhauga við
ströndina, lokka mávana þangað
með brauðgjöfum og ná þeim þar.
„Auk þess hefur margt misfar-
ist í fuglavarpi, ekki bara hjá
mávum, heldur til dæmis kríum
og lundum. Þetta er órannsakað
mál,“ segir Sigríður.
„Borgarbúar vilja allir sem
einn að við fækkum aðeins í þess-
ari plágu og það er um að gera að
við séum öll samtaka í því,“ segir
Gísli Marteinn Baldursson, for-
maður Umhverfisráðs Reykjavík-
urborgar. „Við erum ekki að reyna
að útrýma fuglinum, heldur bara
að gefa fólki tækifæri til að njóta
borgarinnar án truflunar. Það á að
gera þetta þannig að borgarbúar
verði ekki fyrir ónæði og öllum
reglum er fylgt út í ystu æsar.“
steindor@frettabladid.is
Vill rannsaka
mávavandann
Dýraverndarsamband Íslands segir veiðar mein-
dýravarna á mávum í miðborginni vera óleyfilegar
og valda ónæði. Öðrum aðferðum sé hægt að beita.
Borgaryfirvöld segjast fylgja öllum settum reglum.
GUÐMUNDUR BJÖRNSSON OG MÁVARNIR Rekstrarstjóri meindýravarna hjá Reykjavíkurborg
segir að varlega sé farið í veiðunum til að trufla ekki borgarbúa. Fáir vilji sjá máva skotna,
þó að mikill vilji sé fyrir því að það sé gert. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
FRAMKVÆMDIR Atvinnuþróunar-
félag Eyjafjarðar sendi frá sér
ályktun í gær um lengingu flug-
brautar á Akureyrarflugvelli, sem
rædd hefur verið hjá bæjaryfir-
völdum. „Lenging flugbrautar er
grundvallaratriði varðandi fram-
tíðaruppbyggingu millilandaflugs
um völlinn og skapar mikil sóknar-
færi,“ segir í ályktuninni.
Sigrún Björk Jakobsdóttir, for-
seti bæjarstjórnar, segir að leng-
ingin sé ekki komin inn á sam-
gönguáætlun, en það gerist vonandi
í haust, þótt óljóst sé hvenær hægt
verði að hefjast handa. Ákvörðun
verði tekin á fundi á morgun um
hvaða framkvæmdum eigi að
fresta til að koma í veg fyrir frekari
þenslu. - sgj
Flugbraut á Akureyrarflugvelli:
Lenging nauðsynleg