Fréttablaðið - 21.07.2006, Qupperneq 18
21. júlí 2006 FÖSTUDAGUR18
fréttir og fróðleikur
Svona erum við
2003
7.
85
9
8.
07
9
7.
83
8
2004
2005
Heimild: Ferðamálastofa
> Erlendir gestir til Íslands með Norrænu
Dómsmála-
ráðherra hefur
sagst vilja fjölga
þyrlum Land-
helgisgæslunnar
um tvær, fá þrjár
nýjar og selja
TF-LÍF. Geirþrúður
Alfreðsdóttir er
flugrekstrarstjóri
Landhelgisgæsl-
unnar.
Hversu langt geta þyrlur
Gæslunnar flogið?
TF-LÍF hefur lengst flogið um 600
sjómílur, en gæti farið um 235
sjómílur á haf út, híft þar upp tíu
manns og flogið til baka með
fullnægjandi varaeldsneyti. TF-SIF
kemst 400 sjómílur, en gæti farið
um 150 sjómílur út, sinnt þar leit
og björgun, og flogið til baka.
Hversu marga menn bera þær?
TF-LÍF getur borið allt að tuttugu
farþega eða sex til níu sjúkrabörur í
skemmri flugum. TF-SIF getur borið
átta farþega eða tvær sjúkrabörur.
Við leit og björgun er yfirleitt fimm
manna áhöfn í þyrlunum en í
farþegaflugum er hins vegar aðeins
þriggja manna áhöfn.
Hvað kostar eitt útkall?
Það er mjög erfitt að áætla kostn-
að fyrir útköll því að stór partur af
kostnaði er fastur. Þó má ætla að
kostnaður af hverju útkalli hlaupi á
hundruðum þúsunda.
SPURT OG SVARAÐ
ÞYRLUR LANDHELGISGÆSLUNNAR
Fimm manna
áhöfn við leit
GEIRÞRÚÐUR
ALFREÐSDÓTTIR
Eins og fram hefur komið í Fréttablaðinu hefur
nær tuttugu milljónum króna verið stolið af
reikningum fólks hér á landi að undanförnu
gegnum heimabanka. Við rannsókn málsins
notast lögregla við IP-tölur, sem auðkenna
tölvur á internetinu.
Hvað er IP-tala?
IP-tala er einkvæm tala sem tæki
nota til að auðkenna sig og hafa
samskipti við hvert annað á
netinu. Tækin eru oftast tölvur, en
prentarar, beinar og fleiri tæki sem
hafa samkipti yfir netið hafa einnig
sína IP-tölu. Auðvelt er að skilja hvað
IP-tala er ef henni er líkt við heimilis-
fang húss í borg. Líkt og auðkenna má
hvert hús með einstöku heimilisfangi
þess má auðkenna tölvu á internetinu
með IP-tölu hennar. Hugtakið IP-vistfang hefur
einnig verið notað í þessu samhengi, en það er
annað nafn á IP-tölu.
Er hægt að tengja einstakling við IP-tölu?
Fyrirtækið sem sér um nettengingu notanda
getur tengt IP-tölu ákveð-
innar tölvu við nafn
þess sem greiðir fyrir
áskriftina. Mikið
er lagt upp úr
því að halda
þessum upp-
lýsingum
leyndum
og mega
fyrirtækin
ekki gefa upp hvaða
einstaklingur hefur hvaða IP-
tölu nema heimild lögreglu liggi fyrir. Notendur
eru því ekki algjörlega nafnlausir á internetinu.
Upplýsingar sem tengja hverja tölvu við not-
anda liggja fyrir en strangar reglur eru um hver
hefur aðgang að þeim.
Er hægt að falsa IP-tölu?
Ekki er hægt að falsa IP-tölu sem slíka, en
aðferð sem tölvuþrjótar nota oft er að tengjast
í gegnum aðra tölvu. Við það verður mun
erfiðara að rekja tenginguna þar sem slóðinni
lýkur hjá tölvunni sem tengst er gegnum. Ef sú
tölva er í öðru landi getur fyrirtækið sem sér
notanda hennar fyrir nettengingu einfaldlega
neitað að gefa upplýsingar um notandann þar
sem lögregluheimildir ná ekki út fyrir landstein-
ana. Hægt er að leysa slík mál í samvinnu við
löggæsluyfirvöld í viðkomandi landi en það er
bæði flókið og tímafrekt.
FBL GREINING: IP-TALA
Heimilisfang tölvu á internetinu
Það var létt yfir fólki í Ráð-
herrabústaðnum við Tjarnar-
götu á miðvikudag þegar
fjórir ráðherrar ríkisstjórn-
arinnar og fimm fulltrúar
eldri borgara undirrituðu
samkomulag um bætt kjör
og aðbúnað eldri borgara.
Það er algengara en hitt að nefndir
og starfshópar á vegum hins opin-
bera ljúki störfum seinna en ráð-
gert er í upphafi. Það kom því
talsvert á óvart þegar forsætis-
ráðuneytið boðaði til blaðamanna-
fundar á miðvikudag til að undir-
rita og kynna samkomulag
ríkisstjórnarinnar og Landssam-
bands eldri borgara um bætta
afkomu og aðbúnað ellilífeyris-
þega.
Nefndin, sem var skipuð í jan-
úar, átti að skila tillögum í haust
en þurfti ekki lengri tíma til verks-
ins en svo að hægt var að kynna
störf hennar á sólríkum júlídegi.
Sú staðreynd ber að líkindum vott
um góðan vilja stjórnvalda til að
gera úrbætur á málefnum aldr-
aðra þótt einnig hafi nýlegir samn-
ingar aðila vinnumarkaðarins
stuðlað að því að slegið var í
klárinn.
Eldri borgarar og stjórnvöld
hafa eldað grátt silfur um áratuga
bil. Þetta nýja samkomulag er að
hluta til verkefnaáætlun til næstu
fjögurra ára og sögðu fundarmenn
að með því væru stigin mikilvæg
skref. Geir H. Haarde forsætis-
ráðherra kvað heldur fastar að
orði um ánægju sína með sam-
komulagið en Ólafur Ólafsson,
formaður Landssambands eldri
borgara, sem tók skýrt fram að
ekki hefðu allar kröfur náðst. „Nú
er fyrsta sporið stigið á væntan-
lega langri göngu því við verðum
svo gömul og erum svo hress,“
sagði Ólafur.
Þegar samningar takast á
vinnumarkaði er gjarnan sagt að
friður sé tryggður. Fulltrúar eldri
borgara segja að slíkur friður sé
ekki í höfn, áfram verði gengið
eftir kjarabótum. „Þetta er allt of
seint og allt of lítið,“ varð einum
þeirra að orði.
Það var á Ólafi Ólafssyni að
skilja að lóð Sivjar Friðleifsdóttur,
heilbrigðis- og tryggingaráðherra,
hefði vegið þungt.„Mér finnst eins
og hún sé fyrsti heilbrigðisráð-
herrann um langa hríð sem virki-
lega vill sinna þessum málum,“
sagði Ólafur og bætti við að hún
ætlaði að láta Landssam-
bandi eldri
borgara í té
launaðan
starfs-
kraft. „Þá náttúrlega tvíeflumst
við,“ sagði Ólafur.
Sjálf var Siv ekki á staðnum
enda í sumarleyfi austur á landi.
Guðni Ágústsson sat fundinn fyrir
hennar hönd og sagði stundina
stóra. Líkti hann átökum stjórn-
valda og eldri borgara við deilur
fólks við foreldra sína og fagnaði
því samkomulaginu innilega.
Sagði daginn raunar einn þann
ánægjulegasta í ráðherratíð sinni.
Árni M. Mathiesen fjármála-
ráðherra var hógværari í orðavali
en það orð fer oft af fjár-
málaráðherrum að þeim
þyki heldur óljúft að stofna til
útgjalda fyrir ríkissjóð. „Það verð-
ur gaman að fást við að púsla
þessu inn í rammana,“ sagði Árni
en um háar fjárhæðir er að ræða.
Þegar kostnaður við þjónustuhluta
samkomulagsins, sem nær til fjög-
urra ára, er lagður saman kemur
út að rúmlega 6,3 milljörðum
króna verður varið til reksturs og
framkvæmda heimahjúkrunar og
hjúkrunarheimila. Lífeyrishlutinn
kostar svo tæpa átta milljarða árið
2010 þegar allt er komið til fram-
kvæmda. Tæpir fimm milljarðar
eru vegna ellilífeyrisþega og
rúmir tveir vegna örorkulífeyris-
þega.
Talsverðar breytingar eru
gerðar á fyrirkomulagi bótakerfis
almannatrygginga og kalla þær
sumar á breytingu laga.
Tryggingalöggjöfinni hefur oft
verið líkt við frumskóg og impraði
Ólafur Ólafsson á þeirri staðreynd
á fundinum á miðvikudag. Bað
hann þá að rétta upp hönd sem
skildu löggjöfina til fulls og er
skemmst frá því að segja að engin
fór upp höndin.
Átök við eldri borgara eru eins
og að deila við foreldra sína
BROSIN BREIÐ Ráðherrarnir Magnús Stefánsson, Árni M. Mathiesen, Guðni Ágústsson og Geir H. Haarde voru léttir í lundu á miðvikudag
þegar þeir undirrituðu samkomulag við Landssamband eldri borgara um kjör og aðbúnað hinna eldri. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Í ÞUNGUM ÞÖNKUM Ólafur Ólafsson var
ekki jafn brosmildur og ráðherrarnir þótt
hann segðist ánægður með ýmsa þætti
samkomulagsins. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
FRÉTTASKÝRING
BJÖRN ÞÓR SIGBJÖRNSSON
bjorn@frettabladid.is
X
E
IN
N
A
N
0
6
07
0
02
SUMARHÖNNUN 2006
Á ÓTRÚLEGUM AFSLÆTTI
á sumarútsölunni
sem er í fullum gangi
Láttu drauminn rætast
og sparaðu í leiðinni