Fréttablaðið - 21.07.2006, Page 22
21. júlí 2006 FÖSTUDAGUR22
fólkið í landinu
Eflaust bíður margra mikið
brúðarval þegar þeir koma
til Búðardals. Jón Sigurður
Eyjólfsson kom reyndar og
fór ógiftur en öllu sælli enda
var veður bjart og hlýtt, rétt
eins og viðmót Dalamanna.
Sagan býr í hverjum hól í Dalabyggð
og eru sveitungar velflestir meðvit-
aðir um það. Auður djúpúðga nam
land við Fellsströndina sem blasir
við frá Búðardal, Leifur heppni
fæddist í Haukadalnum og svo er
Svínadalurinn eins og leiksvið þar
sem menn sjá í huga sér umsátrið
þegar stórhetjan Kjartan vafraði
einn um dalinn og gaf svo upp önd-
ina í örmum Bolla vinar síns eftir
hetjulegan bardaga.
Dalamenn eru farnir að nýta sér
þessa fornu frægð í þágu ferðaþjón-
ustunnar og nú er blómleg starf-
semi á Eiríksstöðum í Haukadal þar
sem er bær álíka þeim sem Eiríkur
rauði bjó í, áður en hann komst í úti-
stöður við Haukdælinga og varð að
flýja í Breiðafjörðinn, þaðan sem
hann fór svo til Grænlands.
En ekki lifa Dalamenn af sögunni
einni saman. Í Búðardal er mjólkur-
samlag sem er stærsti vinnustaður-
inn í sveitarfélaginu. Þar eru veg-
legustu ostar landsins búnir til.
Útgerð í Búðardal
Þótt flestir hafi farið í gegnum
Búðardal vita mun færri að í
þorpinu er lítil höfn. „Eitt það
fyrsta sem ég barðist fyrir þegar
ég kom hingað sem aðstoðarmað-
ur sveitarstjóra fyrir níu árum
var að gera hér höfn og hafnar-
mynni,“ segir Gunnólfur Lárus-
son sveitarstjóri. „Ég sé mörg
tækifæri hérna við Hvamms-
fjörðinn,“ segir hann svo hugsi og
horfir út á fjörðinn og líklega
horfir hugur hans til bernsku-
slóða í Vestmannaeyjum. „Hér er
tilvalið að vera með seglskútur,
kajaka og sjóstangveiði,“ segir
hann líkt og annars hugar. Þá
kemur hann auga á Óskar Pál
Hilmarsson, sem er að gera að
grásleppu og þorski á bryggjunni.
„Segðu svo að það sé ekki útgerð í
Búðardal,“ segir hann og er rok-
inn í slorið.
Óskar Páll hafði farið með
útgerðarmönnum frá Skarðs-
strönd í lítinn túr og var hann
settur í land við höfnina í Búðar-
dal með hlutinn sinn, svo ekki er
um mikla útgerð að ræða. En
Eyjapeyinn var kátur að sjá afla
koma á land í sveit sinni. Ef til vill
á hann eftir að gera Búðardal að
sjávarþorpi.
Guðrún Ósvífursdóttir
í pylsuvagninum
Við höfnina er gamla kaupfélags-
húsið en þar er verið að vinna að því
að opna Leifssafn. „Við erum bara
búnir að taka yfir alla fjölskyldu-
meðlimina og gera þá að Dalamönn-
um,“ segir sveitarstjórinn, en á
Eiríksstöðum er kirfilega gætt að
því að ferðamenn láti ekki framhjá
sér fara að Leifur heppni hafi fæðst
í Haukadal, hvað sem tautar og raul-
ar.
Við aðalgötu bæjarins, þar sem
ferðamenn keyra í gegnum bæinn,
stendur svo myndarlegur pylsu-
vagn. „Þetta er einn elsti pylsuvagn-
inn á landinu,“ segir Heiða Berg
Þorvaldsdóttir meðan hún gerir eina
með öllu af mikilli fagmennsku.
„Hann var lengi fyrir utan Laugar-
dalslaugina í Reykjavík en hann
hefur verið hérna í Búðardal í
rúman mánuð.“
Á glugga vagnsins eru pylsumetin
tíunduð og má þar sjá að ókunnur
maður hafi sett met fyrir nokkru og
borðað átta pylsur. Skömmu síðar
kom svo heimamaðurinn Stefán og
sló metið með því að sporðrenna
níu pylsum.
Heiða Berg segir jafnaldra sína
meðvitaða um sögu sveitar sinnar.
„Það er líka mikið gert úr þessu í
skólanum. Til dæmis var sett upp
Laxdæluleikrit í fyrra.“ Svo roðnar
hún pínulítið áður en hún kemur
með játninguna, „og reyndar lék ég
Guðrúnu.“
www.bluelagoon.is
Afl
STAÐURINN
TÖLUR OG STAÐREYNDIR Það er bjart í skugga forfeðranna
Það var mikið um að vera í Hárhúsi Hönnu þegar
blaðamann bar að en þá var einnig vínbúðin opin
sem er í sama húsi en rennihurð skilur að. Það
var stöðugur straumur í vínbúðina hjá Sæmundi
Jóhannssyni sem þar afgreiðir en hann er eigin-
maður Jóhönnu Bjarneyjar Einarsdóttur eða Hönnu.
Mesta fjörið var hjá henni enda var Hjalti Þórðarson
frá Hróðnýjarstöðum þar á spjalli. „Hvenær getur þú
tekið hárið af karlinum, Hanna?“ spyr Hjalti. „Það
er verst að hún leyfir mér aldrei að borga fyrir þetta
eftir að ég hafði tvo hesta í fæði fyrir hana,“ útskýrir
Hjalti svo fyrir blaðamanni. „Komdu bara á morgun
því þá koma þær Melkorka og Ásgerður með
harmonikkurnar,“ segir Hanna og Hjalta líst vel á
það enda léttur og hress þrátt fyrir háan aldur. Það
er orðið fastur liður að þær stöllur spili á harmon-
ikku í Hárhúsinu og er þá yfirleitt kátt á hjalla.
En þótt erindi Hjalta sé lokið situr hann og segir
sögu úr sveitinni meðan hann sýpur á kaffi. „Ég
hafði aldrei séð fullan mann þegar ég flutti hingað
í Dalina úr Grýtubakkahverfi sextán ára gamall. En
þá sá ég þá líka liggja fulla hver um annan þveran á
Nesvöllum,“ segir hann og hlær en bætir svo einni
vísu við.
„Manstu ekki manni minn,
mikið ertu gleyminn.
Fyrir kæruleysi og klaufaskap
kominn ertu í heiminn.“
Spurður hvernig standi á því að Dalamenn eldist
svo vel segir Hjalti: „Ætli það sé ekki sérríið eða
rauðvínið. Þetta er ósköp hollt.“ Hann ætlaði þó
ekki að versla hjá Sæmundi að þessu sinni. „Ég er
að mála þakið hjá mér, ég gæti bara dottið niður ef
ég er eitthvað að staupa mig,“ segir hann og hlær.
ATVINNUREKANDINN: HÁRHÚS HÖNNU
Alltaf fjör þegar Hjalti kemur
Íbúafjöldi í desember 2005: 258
Íbúafjöldi í desember 2003: 246
Sveitarfélag: Dalabyggð
Sveitarstjóri: Gunnólfur Lárusson
Íbúafjöldi í Dalabyggð: 638
Helstu atvinnufyrirtæki: MS
Búðardal, Dalakjör, Veitinga- og
gistiheimilið Bjarg
Skólar: Grunnskólinn í Búðardal,
Leikskólinn Vinabær,
Tónlistarskóli Dalasýslu
Vegalengd frá Reykjavík: 153 km
Búðardalur
Hjalti Þórðarson í heimsókn í Hárhúsi
Hönnu.
ÚR LAXDÆLU Í PYLSUVAGNINN Heiða Berg Þorvaldsdóttir lék Guðrúnu Ósvífursdóttur í
leikriti skólans svo eflaust beitir hún kvenlegum klækjum til að fá menn til að pulsa sig
upp. FRÉTTABLAÐIÐ/JÓN SIGURÐUR