Fréttablaðið - 21.07.2006, Side 57
Stórleikarinn Bill Nighy segist
ekki nenna að búa sig undir hlut-
verk sín í kvikmyndum en hann
leikur aðalhlutverkið í bresku
kvikmyndinni Stormbreaker
ásamt Ewan McGregor. Mikið er
búist við af þeirri mynd og má
reikna með að hún verði aðal-
smellurinn í Bretlandi. „Ég sé ekki
tilganginn í því,“ sagði Nighy, sem
skaust upp á stjörnuhimin hvíta
tjaldsins í Love Actually en hafði
fram að því einbeitt sér að leik í
„vönduðum“ kvikmyndum. „Ég
hætti því rugli fyrir mörgum árum
síðan og reyni nú að undirbúa mig
sem minnst,“ sagði Nighy, sem
leikur einnig í framhaldsmynd-
inni um sjóræningjana á Karíba-
hafinu, Dead Man‘s Chest.
„Í Stormbreaker leik ég þar að
auki litlausan mann í gráum jakka-
fötum með grátt yfirvaraskegg
sem hefur engar tilfinningar,“ sagði
Nighy og bætti við að fyrir slíkt
þyrfti hann engan undirbúning.
Leikkonan unga Katie Holmes eign-
aðist sitt fyrsta barn á dögunum
með leikaranum Tom Cruise. Lítið
hefur verið af fréttum af litlu stúlk-
unni þeirra sem ber nafnið Suri og
engar myndir hafa birst af henni í
fjölmiðlum. Samkvæmt tímaritinu
People er Katie alltaf ein með barn-
inu og lífvörðum sínum og Tom
aldrei heima hjá mæðgunum. Katie
mun vera orðin þunglynd út af
þessu og brosir mjög sjaldan.
Alltaf ein
TOM CRUISE OG KATIE HOLMES
Tom er aldrei heima hjá Katie og skilur
hana að mestu eftir eina með barnið.
Söngvarinn knái Justin
Timberlake hefur aldrei
verið mikið fyrir að gaspra
um einkalíf sitt en í nýjasta
hefti tímaritsins GQ kemur
hann fram í opinskáu viðtali
þar sem hann lætur allt
flakka. Þar talar hann um
samband sitt við popp-
prinssessuna Britney
Spears, sem hann
segir að hafi verið
ást við fyrstu sýn.
„Ég lá kyllliflatur
um leið og ég sá hana
í fyrsta skiptið en hún sveik
mig og það er erfitt að jafna
sig á því.“ Justin segist þó
óska henni velfarnaðar í líf-
inu en þau hafa ekki talast
við síðan þau hættu saman.
Einnig talar hann um sam-
band sitt við Cameron Diaz
en miklar sögusagnir
hafa verið þess efnis
að þau séu hætt
saman. Justin segir
að þau séu ennþá
kærustupar en þau
reyni að forðast
ágang fjölmiðla eins
og heitan eldinn.
Ást við fyrstu sýn
JUSTIN TIMBERLAKE Talar opinskátt um
einkalíf sitt í viðtali við tímaritið GQ.
FRÉTTABLAÐIÐ/REUTERS
CAMERON DIAZ Er ástin í lífi
Justins um þessar mundir.
Ekki er á allt kosið í heimi fræga
fólksins enda skipta línurnar
miklu máli í Hollywood. Lindsay
Lohan lýsti því nýlega yfir að
henni fyndist hún vera með of
granna handleggi en leikkonan
komst á forsíður slúðurblaðanna
fyrir nokkru þegar hún grenntist
heldur ótæpilega. Hún er nú á
fullu að byggja líkamann upp og
samkvæmt fréttum í slúðurblöð-
um þar vestra hefur hún nú feng-
ið æði fyrir að gera armlyftur.
„Ég er í heilsurækt. Ég stunda
armlyftur og þjálfa fæturna. Fólk
hefur sagt við mig að því finnist
ég vera með of granna handleggi
svo að að ég geri langmest af því
að hífa mig upp. Geri það eins oft
og ég get. Ég er orðin nokkuð
góð,“ sagði Lohan stolt.
Leikkonan er nú á fullu við að
taka upp kvikmyndina Bobby
sem Emilio Estevez leikstýrir en
hún segir frá morðinu á Robert
Kennedy. Lohan er þar í fríðum
flokki leikara en meðal þeirra
sem koma við sögu eru Demi
Moore og Anthony Hopkins. Þá
leikur hún aðalhlutverkið í
Chapter 27, sem fjallar um Mark
David Chapman, morðingja John
Lennon.
Ósátt við granna handleggi
LINDSAY LOHAN Ósátt við grönnu handleggina sína og stundar nú líkamsrækt af kappi.
Þarf ekki undirbúning
BILL NIGHY Hefur vafalítið ekkert kynnt sér
hvernig lífið á Íslandi gengi fyrir sig áður en
hann hóf leik í sjónvarpsmyndinni The Girl
in the Café.