Fréttablaðið - 01.08.2006, Síða 8
8 1. ágúst 2006 ÞRIÐJUDAGUR
VIÐSKIPTI Hagnaður rúmlega 21
þúsund fyrirtækja sem einnig voru
í rekstri árið 2004 var 11,7 prósent
af tekjum, samanborið við árið
áður þegar hagnaður sömu fyrir-
tækja var 6,5 prósent. Þetta kemur
fram í nýju hefti Hagtíðinda sem
gefið er út af Hagstofunni.
Árið 2004 var hagnaður af reglu-
legri starfsemi allra fyrirtækjanna
í safninu, sem eru rúmlega 27 þús-
und, 11,2 prósent tekna, en árið
áður var hagnaður allra fyrirtækj-
anna sex prósent af tekjum.
Í yfirlitinu eru fyrirtæki í öllum
atvinnurekstri, þar með talin opin-
ber fyrirtæki í hlutafélags- eða
samlagsformi. - sh
Íslensk fyrirtæki:
Hagnaður jókst
frá 2003 til 2004
ATVINNUMÁL Bandalag háskóla-
manna rannsakar nú vinnuaðstæð-
ur fólks í vaktavinnu og segir
Halldóra Friðjónsdóttir, formaður
BHM, þessa vinnu helgast af því
að ekki gangi nógu vel að fá fólk í
vaktavinnu. „Það hefur sýnt sig að
ekki nægir að hækka launin til að
laða fólk að vaktavinnu og nú ætla
ríki og sveitarfélög að finna
úrræði til að gera vaktavinnu eftir-
sóknarverðari.“
Halldóra segir að forvinna
fyrir rannsóknina hafi sýnt að það
sé ekki vaktakerfið sjálft sem sé
aðalvandamálið heldur sú stað-
reynd að vaktir séu oft illa mann-
aðar sem auki álagið.
Halldóra segir að þegar niður-
stöður rannsóknarinnar liggi fyrir
verði sest niður með viðsemjend-
um og reynt að finna leið til að gera
vaktavinnu eftirsóknarverðari.
„Þróunin hefur verið sú að fólk
gerir meiri kröfur um styttri
vinnutíma og meiri sveigjanleika í
vinnu nú en áður, sem skýrist af
því að þarfir fjölskyldunnar eru í
auknum mæli í fyrirrúmi.“ Hall-
dóra segir að þótt margir vilji betri
laun í vaktavinnu sé einnig hægt að
bæta vinnuumhverfið á annan
hátt.
Í tengslum við rannsóknina
verða spurningalistar sendir til
sjúkrahúsa, sambýla, slökkviliðs,
lögreglu og annarra stofnana þar
sem unnið er á sólarhringsvökt-
um.
Niðurstöður eru væntanlegar í
byrjun nóvember. - hs
Bandalag háskólamanna rannsakar vinnuaðstæður fólks í vaktavinnu:
Mikið álag fylgir vaktavinnu
HALLDÓRA FRIÐJÓNSDÓTTIR Formaður
BHM segir að reynt verði að finna leið til
að gera vaktavinnu eftirsóknarverðari.
ÍS
LE
N
S
K
A
A
U
G
LÝ
S
IN
G
A
S
TO
FA
N
/S
IA
.IS
I
C
E
3
3
5
3
6
0
7
/2
0
0
6
SAN FRANCISCO
MINNEAPOLIS – ST. PAUL
ORLANDO
BOSTON
ÍSLAND
REYKJAVÍK
GLASGOW
MANCHESTER
STOKKHÓLMUR
HELSINKI
KAUPMANNAHÖFN
OSLÓ
BERLIN
FRANKFURT
MÜNCHEN
MÍLANÓAMSTERDAM
ZÜRICH
MADRID
BARCELONA
LONDON
PARÍS
NEW YORK
BALTIMORE –
WASHINGTON
STYRKIR VERÐA VEITTIR TIL BARNA Á ALDRINUM 6-16 ÁRA
Ferðasjóður Vildarbarna er sameiginlegt átak Icelandair og
viðskiptavina félagsins til að gera langveikum börnum og fjölskyldum
þeirra, og börnum sem búa við sérstakar aðstæður vegna veikinda,
kleift að ferðast. Ferðasjóður Vildarbarna hefur gert 80 börnum og
fjölskyldum þeirra kleift að fara í ógleymanlega og uppbyggjandi
fjölskylduferð. Landsbankinn annast fjárhald sjóðsins.
Verndari Vildarbarna er Vigdís Finnbogadóttir.
+ Umsóknareyðublöð eru á www.vildarborn.is
Umsóknarfrestur er til 1. september 2006. Úthlutað verður úr sjóðnum fyrsta vetrardag, 21. október 2006.
UMSÓKNIR UM FERÐASTYRKI VILDARBARNA ICELANDAIR
RÁÐNINGARÞJÓNUSTA
Ert þú í atvinnuleit?
Leyfðu okkur að aðstoða
Skráðu þig á www.hhr.is
HH Ráðgjöf, Ráðningarþjónusta - Fiskislóð 81 - 107 Reykjavík
Sími: 561 5900 - Fax: 561 5909 - Tölvupóstfang: hhr@hhr.is - www.hhr.is
VIÐSKIPTI Össur hagnaðist um 155
milljónir króna á öðrum ársfjórð-
ungi eða sem nemur rúmri 2,1
milljón Bandaríkjadala.
Afkoman er undir spám grein-
ingardeilda bankanna en meðal-
talsspá þeirra hljóðaði upp á þrjár
milljónir dala sem gera 220 millj-
ónir króna.
Sala félagsins jókst um 85 pró-
sent á milli ára og nam um 4,8
milljörðum króna á fjórðungnum.
Kemur vöxtur einkum til vegna
ytri vaxtar Össurar. Velta er held-
ur yfir öllum spám greiningar-
deildanna.
Félagið afskrifaði um þrjár
milljónir dala á fjórðungnum
vegna fyrirtækjakaupa að undan-
förnu.
Össur hannar og framleiðir
stoðtæki, spelkur og stuðnings-
vörur. - eþa
Afkoma Össurar undir spám:
Sala stóreykst
á milli ára
FERÐAÞJÓNUSTA Reykjavíkurborg
er meðal fimm heitustu áfanga-
staða heimsins á næstu fimm
árum, samkvæmt nýrri úttekt
Orbitz.com en sá vefur er einn
vinsælasti ferðavefur í Bandaríkj-
unum.
Velja þeir á fimm ára fresti
fimm staði sem ferðalangar verða
að heimsækja og upplifa og eru
vissir um að verði á meðal vinsæl-
ustu áfangastaða næstu fimm
árin. Reykjavík er þar á blaði enda
þykir skríbentum vefsins mikið til
borgarinnar koma. Gestrisni íbúa
er rómuð sem og sú orka öll sem
býr í landsmönnum öllum. Stutt sé
í heimsklassa afþreyingu á borð
við Bláa lónið og nóg sé af börum
og veitingastöðum til að fullnægja
hvötum allra.
Þær fimm borgir sem mælt er
með næstu fimm árin eru auk
Reykjavíkur, Shanghai í Kína,
Cape Town í Suður-Afríku og
Albuquerque og New Orleans í
Bandaríkjunum. Vinsælustu borg-
arferðir Bandaríkjamanna síðustu
fimm árin samkvæmt Orbitz hafa
verið London, Cancun, Toronto,
París og Vancouver. - aöe
Nýr listi ferðavefs yfir heitustu ferðamannastaðina:
Reykjavík á listanum
HEILLANDI ÞRÁTT FYRIR VEÐRIÐ Einn vin-
sælasti ferðavefur Bandaríkjanna telur að
Reykjavík verði á meðal vinsælustu áfanga-
staða ferðamanna næstu árin. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
SRÍ LANKA, AP Miklir bardagar voru
í norðausturhluta Srí Lanka í gær
milli stjórnarhers landsins og upp-
reisnarhers Tamíl-tígra. Barist
var um stífluhlið sem Tamíl-tígr-
arnir lokuðu fyrr í júlímánuði og
skrúfuðu þá
fyrir vatnið hjá
allt að sextíu
þúsund manns í
héruðum sem
eru undir stjórn
ríkisins. Stjórn-
arherinn lagði
til atlögu við
uppreisnar-
mennina í gær
og banaði að
minnsta kosti 39
þeirra, en Tígrarnir vógu fimm
stjórnarhermenn á móti.
Stjórnarherinn segist hafa ráð-
ist á Tamíl-tígrana af „mannúðar-
ástæðum“ til að tryggja að skjól-
stæðingar sínir hefðu vatn til að
veita á akra sína og að með
árásinni hefði ekki staðið til að
rjúfa vopnahléið sem ríkt hefur í
landinu síðan 2002, en átökin í gær
voru þau mestu í fjögur ár.
Að sögn Ulf Henricsson, yfir-
manns norrænu eftirlitssveitanna
á Srí Lanka er vopnahléið milli
stríðandi fylkinga í landinu nú ein-
ungis vopnahlé „í orði kveðnu“ og
óttast hann „hörmungar“ brjótist
stríð út að nýju. Puratchi, talsmað-
ur Tamíl-tígra, tók í sama streng
og sagði vopnahléið „ógilt og
marklaust,“ en ekki náðist í aðra
foringja uppreisnarmanna til að
staðfesta það.
Allt er nú í uppnámi vegna frið-
argæslustarfa Íslendinga á Srí
Lanka. Evrópusambandsþjóðirnar
Danmörk og Finnland hafa til-
kynnt að frá og með 1. september
muni þær draga sig í hlé eftir að
Tamíl-tígrar sögðust ekki treysta
á hlutleysi þeirra, í kjölfar þess að
ESB skilgreindi uppreisnarherinn
sem „hryðjuverkasamtök“. Lík-
legt er að Svíar tilkynni einnig um
brotthvarf sitt á næstu dögum. Þá
standa eftir Íslendingar og Norð-
menn einir til að sinna eftirlits-
störfum Norðurlandaþjóða.
Samkvæmt upplýsingum frá
utanríkisráðuneyti Íslands er í
skoðun hjá ráðuneytinu að fjölga
Íslendingum í eftirlitssveitinni og
einnig að leita, í samstarfi við
stríðandi fylkingar, til ríkja utan
Evrópusambandsins til að taka
þátt í störfum hennar. Engar
ákvarðanir hafi enn verið teknar
um framhaldið, en mikill vilji sé
til þess að starfa áfram í Srí
Lanka.
klemens@frettabladid.is
Friðurinn úti
á Srí Lanka
Yfirmaður eftirlitssveitanna óttast hörmungar. Upp-
reisnarmenn segja vopnahléið ógilt og utanríkis-
ráðuneyti Íslands íhugar að fjölga í eftirlitssveitinni.
ULF HENRICSSON
MEÐLIMIR STJÓRNARHERS SRÍ LANKA Stjórnarherinn segist enn virða vopnahléið, þrátt
fyrir að hafa vegið 39 uppreisnarmenn í gær. Tamíl-tígrar eru ekki á sama máli um friðar-
horfurnar, né talsmaður norrænu eftirlitssveitarinnar. NORDICPHOTOS/AFP
1Hvaða ár giftu Dorrit Moussaieff og Ólafur Ragnar Grímsson sig?
2Hvaða hljómsveit spilaði á undan Sigur Rós á Miklatúni?
3Hver er faðir Árna M. Mathiesen?
SVÖRIN ERU Á SÍÐU 42
VEISTU SVARIÐ?