Fréttablaðið - 01.08.2006, Blaðsíða 36

Fréttablaðið - 01.08.2006, Blaðsíða 36
 1. ágúst 2006 ÞRIÐJUDAGUR24 timamot@frettabladid.is MERKISATBURÐIR 1874 Stjórnarskrá Íslands öðlast gildi. 1876 Colorado verður 38. ríki Bandaríkjanna. 1935 Talsímasamband við útlönd er komið á og var fyrsta símtalið á milli Hermanns Jónassonar og Kristjáns konungs tíunda. 1940 Bók Johns F. Kennedy, Why England Slept, kemur út en hún fjallar á gagnrýninn hátt um breska herveldið. 1944 Anna Frank skrifar síðustu færsluna í dagbók sína en hún faldi sig frá nasistum ásamt fjölskyldu sinni í tvö ár. 1994 Michael Jackson og Lisa Marie Presley staðfesta orðróm um að þau hafi gift sig. COOLIO FÆDDIST ÞENNAN DAG ÁRIÐ 1963. „Megnið af þeim vandamálum sem ég hef þurft að kljást við hef ég skapað sjálfur.“ Coolio er bandarískur rappari sem gerði garðinn frægan á tíunda áratugnum. Henry þriðji fæddist í september árið 1551 í Frakklandi, þriðji sonur Henry annars Frakklandskonungs og Catherine de Médici. Henry hóf ungur störf fyrir ríkið og stjórnaði konunglega hernum gegn meðlimum mótmæl- endakirkjunnar í Frakklandi, húgenott- um. Henry felldi tvo leiðtoga þeirra en á þessum tíma stjórnaði bróðir hans, Charles IX, landinu. Henry var uppáhald móður sinnar og hún notaði vald sitt til þess að veita honum aukið brautargengi og olli það Charles mikilli gremju. Árið 1572 var Henry kosinn sem arftaki pólsku krúnunnar en stuttu síðar dó Charles og Henry sneri aftur til Frakk- lands. Hann var krýndur árið 1575 og giftist prinsess- unni Louise de Vaudémont tveim dögum síðar. Á þessum tíma stóðu yfir trúarstríð í Frakklandi og tókst Henry ekki að friðþægjast við rómönsku kaþólikkana sem höfðu myndað bandalag til þess að verja hagsmuni sína. Bandalagið reyndi að steypa Henry af stóli en hann myndaði bandalag með nafna sínum frá Navarre og saman lögðu þeir París í herkví. Hinn 1. ágúst slapp munkurinn Jacques Clément inn fyrir virki konungs og stakk hann með þeim afleiðingum að hann lést daginn eftir. Henry þriðji eignaðist engin börn með konu sinni en tilnefndi Henry frá Navarre sem arftaka sinn. Henry þriðji var gáfaður og mælskur konungur en mjög eyðslusamur og setti franska ríkið nánast í gjaldþrot. ÞETTA GERÐIST 1. ÁGÚST 1589 Henry III stunginn Í dag verður fyrsta skóflustungan að Menningarhúsinu á Akureyri tekin en gert er ráð fyrir að húsið verði tilbúið um haustið 2008. Sigrún Björk Jakobsdóttir, stað- gengill bæjarstjóra, segir að ríkis- stjórnin hafi varpað fram hugmynd- inni um húsið árið 1998 og síðan þá hefur verið unnið að hönnun og fleira því sem viðkemur byggingunni. „Við höfum undirbúið þetta nokkuð vel og það var ákveðið að bjóða þetta út í vor og við fengum lægsta tilboðið frá Ístaki, sem ætlar að byggja húsið,“ segir Sigrún en árið 2003 undirrituðu bæjarstjórinn á Akureyri og mennta- málaráðherra samkomulag um bygg- ingu hússins. „Þetta er stór tónleikasalur fyrir fimmhundruð manns og síðan minni salur og síðan verður þarna líka veit- ingaaðstaða og miðstöð ferðamála og tónlistarskóli á efstu hæðinni,“ segir Sigrún. Hún segir húsið vera kær- komið þar sem það bæti aðstöðu til tónleikahalds til muna. „Tónleikahald hefur alltaf verið hér í hálfgerðum ólestri í íþróttahúsum og kirkjum og á fleiri stöðum þannig að það er mikil þörf fyrir þetta hús. Að halda hér tón- leika hefur alltaf kostað heilmikinn undirbúning við að breyta hljómburði, til dæmis eins og í Íþróttahöllinni sem er alls ekki gerð fyrir tónleika, þannig að það hefur alltaf kostað okkur heilm- ikið vesen að breyta því í tónleika- hús,“ segir Sigrún og bætir við að það sé ekki gott tónleikahús. „Leikfélagið fær þarna inni með söngleiki eins og til dæmis Litlu hryll- ingsbúðina sem hefur verið sýnd hér við miklar vinsældir, hún myndi fara þarna inn og tónleikar hjá Sinfóníu- hljómsveit Norðurlands og síðan þess- ir viðburðir sem eru hérna eins og kórar og fleira. Síðan ætlum við að nota þetta fyrir ráðstefnur og fundi þannig að þetta verður fjölnota hús,“ segir Sigrún en ráðstefnur hafa hing- að til verið haldnar á Hótel KEA, í Ketilhúsinu og í Háskólanum. Spurð hvað Akureyringum finnist um húsið svarar Sigrún því til að mikill spenningur sé fyrir húsinu fyrir norðan. „Reynsla er af svona húsum í sams konar samfélögum í Skandinavíu og þar hefur þetta gjör- breytt afþreyingarmöguleikum,“ segir Sigrún. Akureyrarbær og íslenska ríkið standa straum af kostnaðinum við byggingu hússins en áætlaður kostn- aður er tveir milljarðar króna. Menn- ingarhúsið verður í hjarta bæjarins á uppfyllingunni við Torfunesbryggju og segir Sigrún að það verði eitt af kennileitum bæjarins. gudrun@frettabladid.is MENNINGARHÚS Á AKUREYRI: FYRSTA SKÓFLUSTUNGAN Langþráður draumur rætist TÖLVUMYND AF MENNINGARHÚSINU Á AKUREYRI Fyrsta skóflustungan verður tekin í dag og mun Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra flytja ávarp og listamenn stíga á stokk. AFMÆLI Anna Sigríður Helgadóttir, söng- kona er 43 ára. Árni Þórarinsson rithöfundur er 56 ára. ÚTFARIR 13.00 Helgi Valdimarsson, bygg- ingarmeistari, Maragrund 9, Garðabæ, verður jarðsung- inn frá Garðakirkju. 14.00 Helga Margrét Sigtryggs- dóttir, Hlévangi, Faxabraut 13, Keflavík, verður jarð- sungin frá Keflavíkurkirkju. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug vegna andláts ástkærrar eiginkonu minnar, móður, tengdamóður og ömmu Rögnu Guðrúnar Hermannsdóttur Ásgarði 19 Guðsteinn Magnússon og fjölskylda. Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Svava Júlíusdóttir, Hrauntúni 1, Breiðdalsvík, áður til heimilis að Núpi, lést föstudaginn 28. júlí á Fjórðungssjúkrahúsinu Neskaupstað. Útförin verður auglýst síðar. Gunnar Einarsson Einar Jóhann Gunnarsson Aðalheiður Jónsdóttir Hólmar Víðir Gunnarsson Jarþrúður Baldursdóttir Sigurður Borgþór Gunnarsson Hrafnhildur S. Þórarinsdóttir Svavar Júlíus Gunnarsson Sigríður H. Georgsdóttir Ómar Valþór Gunnarsson Guðleif S. Einarsdóttir Þuríður Ósk Gunnarsdóttir Steinar Þór Ólafsson Stefán Benedikt Gunnarsson Hólmfríður S. Pálsdóttir Björgvin Rúnar Gunnarsson Vilborg Friðriksdóttir barnabörn og langömmubörn. Birgir Gunnlaugsson 50 ára Þakklætiskveðjur Innilegar þakkir færum við öllum þeim sem glöddu okkur í tilefni 50 ára afmælisins 28. júlí sl. Sérstakar þakkir fá Snorri Hjaltason, stjórn UMFÍ , Baldur, Gunnar og Finnbogi fyrir þeirra ómetanlega innlegg. Lifið heil, Birgir og Signý Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför okkar ástkæru Lúllu Kristínar Nikulásdóttur Kirkjuvegi 5, Keflavík. Sérstakar þakkir fær starfsfólkið á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja sem annaðist hana af alúð og virðingu í veikindum hennar. Guð blessi ykkur. Elín Sigríður Jósefsdóttir Snæbjörn Guðbjörnsson Ketill G. Jósefsson Karen Valdimarsdóttir Jenný Þuríður Jósefsdóttir Alan Terry Matcke ömmubörn og langömmubörn. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Valgerður Sigurtryggvadóttir Bólstaðarhlíð 33, Reykjavík, lést þriðjudaginn 25. júlí á Landspítalanum í Fossvogi. Útförin fer fram frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 3. ágúst kl. 13.00. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hennar er bent á Krabbameinsfélagið. Sigríður S. Jóhannsdóttir Ólafur Ólafsson Hafliði S. Jóhannsson Birgir S. Jóhannsson Sigrún E. Valdimarsdóttir Ömmubörn og langömmubörn. Okkar ástkæri Árni Baldvin Sigurðsson Kulturgatan 31, Påskallavik, Svíþjóð, andaðist á sjúkrahúsinu í Oskarshamn í Svíþjóð föstudaginn 28. júlí síðastliðinn. Eygló Einarsdóttir Einar Ómarsson Arnar Árnason Rebecka Tholén Þórunn Gyða Árnadóttir Erik Lundgren Sigríður Sigurðardóttir Ingibjörg Sigurðardóttir Þórunn Sigurðardóttir Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Björk Hafrún Kristinsdóttir Blikabraut 7, Keflavík, lést í Danmörku þriðjudaginn 25. júlí. Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju miðvikudaginn 2. ágúst kl. 11.00. Arnar Gunnlaugsson Árni Heiðar Árnason Hafdís Kjartansdóttir Pétur Ragnar Árnason Gréta Lind Árnadóttir Hallgrímur Færseth Steinunn Björk Árnadóttir Eiríkur Waltersson barnabörn og barnabarnabarn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.