Fréttablaðið - 01.08.2006, Blaðsíða 56
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000
AUGL†SINGASÍMI
550 5000
FYLGIR FRÉTTABLA‹INU ALLA MI‹VIKUDAGA
����������
�����������������������������
Ungir frjálshyggjumenn hafa óskaplegar áhyggjur af því
að almenningur fái veður af
tekjuskiptingu í þessu landi. Í
nafni frelsis álykta þeir um hið
hróplega óréttlæti að fólk fái
vitneskju um hvernig í pottinn er
búið. Veina sig hása yfir þeirri
frelsisskerðingu að aðall landsins
þurfi að þola ósvífna hnýsni pöp-
ulsins. Meðlimir í þessu verka-
lýðsfélagi hálaunamanna lýsa
djúpri vandlætingu með því að
halda dauðahaldi í álagningar-
skrár lengi dags á skrifstofu
skattstjóra og hleypa snuðrurum
ekki að.
UNGUM frjálshyggjumönnum
finnst ósómi að öðru en launa-
leynd og styðja þannig upplýs-
ingahöft sem ýta undir misrétti.
Hugmyndir þeirra um frelsi til að
pukrast með launamuninn eru í
hrópandi þversögn við þróun
samfélagsins til opnari umræðu,
til dæmis í þágu jafnréttis kvenna
og karla. En ungir frjálshyggju-
menn virðast ekki hafa nokkrar
áhyggjur af launamun kynjanna
og vilja frelsi launagreiðenda til
að semja í laumi um laun hvers
og eins út frá verðmæti einstakl-
inga. Þó vitum við öll að framlag
kvenna er minna metið í launum
og engin ástæða til að leyna því.
Jafnvel hálaunakonur eru lág-
launakonur miðað við hálauna-
karla.
ÞÓ frjálshyggjufólkið hafi þess-
ar áhyggjur af njósnum almenn-
ings á greiðslum í sameiginlega
sjóði hafa þeir ekkert við áform
dómsmálaráðherra um nýja
njósnadeild að athuga. Aldrei
álykta þeir um frelsi komandi
kynslóða til að njóta íslenskrar
náttúru, lausa við mengandi stór-
iðju. Ekki heldur um mikilvægi
þess að öryrkjar og eldri borgar-
ar njóti frelsis til mannsæmandi
afkomu. Enda liggja þeir hags-
munir sem ungir frjálshyggju-
menn eru að verja sennilega
hvorki hjá hópum ellilífeyrisþega
né sjúklinga.
UM sama leyti og frjálshyggju-
fólkið performeraði hjá skatt-
stjóra var hópur hugsjónafólks
fyrir utan bandaríska sendiráðið
að mótmæla stuðningi við ann-
arskonar frelsissviptingu. Þeirri
sem felst í að ísraelski herinn
kasti sprengjum á börnin í Líban-
on, gamalmenni, karla og konur.
Að hann neiti þeim sem fastir eru
undir rústum um svigrúm til
björgunar. Ungir frjálshyggju-
menn ályktuðu ekki um það.
Ósómi
Upplýsingar,
viðburðir,
afþreying og fréttir