Fréttablaðið - 01.08.2006, Blaðsíða 47
Skilnaður Pauls McCartney
og Heather Mills tekur á sig
ljótari mynd með hverjum
deginum.
Þegar fréttatilkynning barst um
að bítillinn fyrrverandi og fyrir-
sætan hygðust slíta hjónabandinu
töldu flestir að lagalega hliðin yrði
leyst í kyrrþey. Annað hefur komið
á daginn. Í sunnudagsblaðinu The
Sunday Mirror kemur fram að
McCartney sé nú að ráða til sín
her lögfræðinga sem eiga að
vernda auðævi hans en McCartn-
ey er talinn eiga eignir sem nema
137 milljörðum íslenskra króna.
Enn fremur greinir blaðið frá því
að McCartney sé æfur yfir því að
Mills hafi hafnað tilboði hans sem
taldi litlar 30 milljónir punda en
það samsvarar fjórum milljörðum
íslenskra króna.
Samkvæmt heimildum The
Sunday Mirror hefur sá grunur
læðst að Paul McCartney að fyrr-
verandi eiginkona hans hafi ein-
ungis verið á eftir peningunum
hans og ætli sér að ná sem mestu
út úr skilnaðinum. The Sunday
Mirror gerir að því skóna að krafa
Millls verði í kringum um 200
milljónir punda eða 27 milljarða
íslenskra króna en þær fréttir
hafa ekki verið staðfestar.
Sir Paul hefur samkvæmt The
Sunday Mirror fengið Fionu
Shackleton til að fara með málið
fyrir dómstóla en hún var lög-
fræðingur Karls Bretaprins þegar
hann skildi við Díönu prinsessu.
Þá greinir blaðið einnig frá því að
McCartney sé farinn að trúa frétt
götublaðsins News of the World
um að Mills hafi verið vændiskona
á árum áður en hann stóð þétt við
bakið á henni þegar blaðið birti
greinina. Mills hefur engu að síður
hótað News of the World lögsókn
þegar skilnaðurinn er genginn í
gegn.
Fjölmiðlar í Bretlandi spá því
að skilnaðurinn, sem flestir
bjuggust við að yrði flauelsmjúk-
ur, verði fullur af hatri og reiði
þar sem báðir aðilar munu nýta
allt í fortíð og nútíð hvor annars til
að ná sínu fram.
Skilnaður aldarinnar
Á MEÐAN ALLT LÉK Í LYNDI McCartney og Mills voru mjög samrýmd en nú er ljóst að skiln-
aðurinn á eftir að verða ansi hörð rimma.FRÉTTABLAÐIÐ / GETTY IMAGES
Mel Gibson var tekinn fyrir að
keyra undir áhrifum áfengis á
föstudagsmorgun í Malibu í Kali-
forníu og hefur hann lýst því yfir
að hann skammist sín fyrir fram-
ferði sitt. Gibson sagði að það hefði
verið hræðilegt að falla aftur en
hann hefur barist við alkóhólisma
allt sitt líf. Leikarinn og leikstjór-
inn baðst jafnframt afsökunar á
talsmáta sínum við handtökuna, en
hann ku hafa látið út úr sér and-
gyðingleg orð. „Ég sagði hluti sem
ég tel ekki að séu sannir og sem
eru hræðilegir,“ sagði Gibson og
játaði að hann hefði hegðað sér
eins og snarvitlaus manneskja.
Nokkur samtök gyðinga hafa sagt
yfirlýsingu Gibsons vera „ófull-
nægjandi“ og telja að hann iðrist
ekki nógu mikið. Þjarmað var að
lögreglu Los Angeles um að stað-
festa það sem fram fór á milli
Gibson og lögregluþjónanna. „Við
erum ekki að reyna að fela neitt.
Okkar starf er ekki að velta okkur
upp úr því sem hann sagði,“ sagði
lögreglustjóri LA. Gibson er sem
kunnugt er strangkaþólskur og
myndin hans The Passion of the
Christ var mjög umdeild. Leik-
stjórinn vinnur nú að nýrri mynd,
Apocalypto, sem gerist í Suður-
Ameríku fyrir 3.000 árum.
Mel Gibson fallinn
MEL GIBSON Leikarinn og leikstjórinn upplýsti að hann hefði strítt við alkóhólisma meiri
hluta lífsins.
Hin yndisfagra leikkona Eva
Longoria úr sjónvarpsaþáttunum
Desperate Housewives er komin
með leið á baðkarssenunum í þátt-
unum. Margar senur i þáttunum
byggjast á því að Longoria liggi í
baði, karlkynsáhorfendum til mik-
illar gleði, og er hún nú búin að
fara á fund með framleiðendum til
að fá að sleppa við að liggja í bað-
kari í fleiri atriðum. „Það er ekki
þægilegt að þurfa að bera sig fyrir
framan tökuliðið og alla karlmenn
á svæðinu sem virðast flykkjast
að þegar þessi atriði eru tekin upp
og liggja í brúnleitu vatni í marga
klukkutíma vegna brúnkukrems-
ins sem lekur af,“ segir Longoria
en óvíst er hvort framleiðendur
hafi tekið bón hennar til greina.
Ekki meir í baði
EVA LONGORIA Þessi gullfallega leikkona
vill ekki bera sig og liggja í baðkari lengur í
þáttunum Aðþrengdar eiginkonur.
FRÉTTABLAÐIÐ/REUTERS