Fréttablaðið


Fréttablaðið - 01.08.2006, Qupperneq 44

Fréttablaðið - 01.08.2006, Qupperneq 44
 1. ágúst 2006 ÞRIÐJUDAGUR32 Nánari upplýsingar á siminn.is eða á næsta sölustað Símans. * Eingöngu innan kerfis Símans SUMARTILBOÐ Á SAMSUNG SÍMUM 5 KR. SMS & MMS ALLAR HELGAR Í SUMAR * E N N E M M / S ÍA / N M 2 2 7 7 8 Nánari upplýsingar á siminn.is eða á næsta sölustað Símans. Gullfallegur samlokusími, sem býður upp á alla helstu möguleikana. Meðal búnaðar má nefna VGA myndavél og hægt að taka upp hreyfimyndir, FM-útvarp, 3MB minni, 6 klukku- stunda taltíma á rafhlöðu og margt fleira. 14.980 kr. SAMSUNG X650 Glæsileg hönnun. Örþunnur, með stórum TFT hágæða litaskjá og 1,3 MP myndavél sem hægt er að snúa 180 gráður. Hægt er að tengjast tölvu, handfrjálsum búnaði og blátannarsímum í gegnum blátannarbúnað. 37.980 kr. SAMSUNG D820 * Eingöngu innan kerfis Símans VEL BÚNAR Þessar hefðarfrúr létu fara vel um sig á tónleikum Sigur Rósar á sunnudaginn var og voru vel búnar rósavíni og hvítvíni sem þær sötruðu á milli þess sem þær hlustuðu á tóna sveitarinnar. SKIPULEGGJENDURNIR Finnur Jóhannsson og Kári Sturluson hafa hjálpað Sigur Rósar- mönnum við skipulagningu tónleikanna. Um fimmtán þúsund manns voru samankomnir á Klambratúni í fyrradag þegar hljómsveitin Sigur Rós hélt þar tónleika. Óhætt er að segja að tónleikarnir hafi farið vel fram enda veðurblíðan sem ríkti á höfuðborgarsvæðinu með ein- dæmum. Sannkölluð fjölskyldustemning ríkti á tónleikunum þar sem ungir sem aldnir mættu á Klambratún. Tónleikagestir létu líka fara vel um sig og mátti meðal annars sjá fólk flatmaga í sólstólum eða á teppi með kakó á brúsa. Sigur Rósar-menn bræddu hjörtu við- staddra með tónum sínum og var sveitin meðal annars klöppuð tvisvar sinnum upp. Tónleikar Sigur Rósar á sunnu- dag voru liður í tónleikaferðalagi sveitarinnar um Ísland. Sveitin hefur leikið á fimm tónleikum víðs vegar um landið og eru tvennir eftir – einir leynitónleikar á lands- byggðinni og svo í Ásbyrgi um verslunarmannahelgina. Tónleikaröðin hefur verið fest á filmu en Sigur Rósar-menn vinna nú að tónleikamynd ásamt kvik- myndafyrirtækinu True North. Öllu hefur verið til tjaldað við gerð myndarinnar og lék sveitin meðal annars á steinaspil í Surts- helli í gær ásamt Páli í Húsafelli, sem fest var á filmu. Svífandi fjölskyldustemning á Klambratúni MARGMENNI Múgur og margmenni safnaðist saman á Klambratúni og lét fara vel um sig. BOGINN MUNDAÐUR Jónsi mundaði fiðlu- bogann af sinni alkunnu snilld. UNGIR SEM ALDNIR Fólk á öllum aldri sótti tónleika Sigur Rósar. Þessi ungi snáði skemmti sér vel eins og hinir fimmtán þúsund gestirnir. FAÐMLAG Meðlimir Sigur Rósar og Amiinu féllust í faðma áður en þeir stigu á svið. SIGUR RÓS Georg Hólm og Orri Páll Dýrason fóru á kostum á tónleikum Sigur Rósar á Klambratúni.

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.