Fréttablaðið - 01.08.2006, Page 48
36 1. ágúst 2006 ÞRIÐJUDAGUR
sport@frettabladid.is
> Bologna bætist við
Norska blaðið Nettavisen greindi frá
því í gær að njósnari frá ítalska liðinu
Bologna væri að fylgjast með sóknar-
manninum Veigari Páli Gunnarssyni
með Stabæk gegn Sandefjörd í norska
boltanum á sunnudag. Veigar náði sér
ekki á strik í leiknum frekar en aðrir leik-
menn Stabæk. Eins og kunnugt er hafa
ensku liðin Tottenham, Portsmouth,
Charlton og Sout-
hampton verið að
fylgjast með Veigari
sem er efstur í
einkunna-
gjöfinni hjá
Dagbladet
í Noregi með 5,93 í
meðaleinkunn.
FÓTBOLTI „Þetta kom mjög snöggt
upp á sunnudaginn og KR komst
strax að samkomulagi við Val. Ég
var tilbúinn að leggja fram aðstoð
mína og þeir spenntir fyrir því að
fá mig út þetta tímabil,“ sagði Sig-
þór Júlíusson sem skipti óvænt
yfir í KR í gær. Það var síðasti
dagur félagaskipta en Sigþór
hefur spilað með Völsungi frá
Húsavík í 2. deildinni í sumar á
lánssamningi frá Val.
„Eftir að Völsungur tapaði á
laugardag þá eru möguleikarnir
að komast upp orðnir mjög litlir,
annars hefði ég reynt að klára það
verkefni með liðinu. En þetta er
síðasti möguleiki fyrir mig að gera
eitthvað meira í efstu deild,“ sagði
Sigþór sem var í leikmannahópi
KR í gær gegn Fylki,
Mikið var um félagaskipti í
gær, Andri Valur Ívarsson sneri
aftur til Vals úr láni hjá Völsungi,
Geoff Miles fékk félagaskipti úr
Keflavík í Stjörnuna, Helgi Pétur
Magnússon fór að láni frá ÍA til
HK og Breiðablik lánaði Gunnar
Örn Jónsson í Fjölni. - egm
Félagaskipti gærdagsins:
Sigþór sneri
aftur til KR
FÓTBOLTI Valur og Breiðablik
mætast í Landsbankadeild kvenna
í kvöld en Valsdstúlkur geta nán-
ast tryggt sér Íslandsmeistaratit-
ilinn tapi þær ekki leiknum. Vals-
stúlkur hafa unnið alla tíu leiki
sína í deildinni til þessa og hafa
nú þegar þriggja stiga forystu á
Blikastúlkur sem hafa auk þess
leikið einum leik fleira.
„Þetta er okkar síðasti mögu-
leiki og þrátt fyrir að við mynd-
um vinna þennan leik er enn
langur vegur eftir. Þær eru með
sex stiga forystu auk þess að
vera með betri markatölu og það
þarf ótrúlega mikið að gerast til
þess að við náum þeim í keppn-
inni um titilinn. Við gerum þó að
sjálfsögðu hvað við getum og
stefnum til sigurs,“ sagði Þóra B.
Helgadóttir, fyrirliði og mark-
vörður Breiðabliks.
„Við lítum fyrst og fremst á
þennan leik sem undirbúning
fyrir Evrópukeppnina sem við
höldum í á sunnudaginn. Við
þurfum að vera komnar á góða
siglingu þegar við förum þangað
en upp að vissu marki þá höfum
við sætt okkur við það að titil-
baráttan er fyrir bí. Við ákváð-
um að einbeita okkur að bikarn-
um og Evrópukeppninni,“ sagði
Þóra en Valsstúlkur unnu fyrri
leik liðanna 4-1 á Valbjarnar-
velli.
„Þar lagði Valur línurnar fyrir
mótið og stolt okkar er sært, við
höfum engu að tapa og stefnum á
að sanna okkur og sýna,“ sagði
Þóra. - hþh
Þóra Björg Helgadóttir, fyrirliði Breiðabliks:
Stolt okkar er sært og
við ætlum að vinna
LA
ND
SB
AN
KA
DE
IL
DI
N
FÓTBOLTI Íslenska U17 karlalands-
liðið bar sigurorð af frændum
sínum frá Finnlandi á Norður-
landamótinu sem hófst í Færeyj-
um í gær. Þrátt fyrir að lenda
tveimur mörkum undir eftir aðeins
sjö mínútur gáfust íslensku strák-
arnir ekki upp, jöfnuðu fyrir leik-
hlé og unnu svo öruggan sigur.
Kristinn Steindórsson jafnaði
leikinn með tveimur mörkum en í
seinni hálfleik skoraði Viðar Örn
Kjartansson tvö mörk og Viktor
Unnar Illugason eitt og tryggðu
Íslandi 5-2 sigur. Næsti leikur liðs-
ins er í dag þegar leikið verður
gegn Dönum. - hþh
U17 ára landslið Íslands:
Skoraði fimm
gegn Finnum
Örn setti Íslandsmet
Sundkappinn Örn Arnarson komst ekki í
úrslit í 50 metra flugsundi á Evrópumót-
inu í Búdapest í gær þrátt fyrir að setja
Íslandsmet. Örn synti á 24,27 sekúndum
í undanrásunum en það dugði honum
ekki til að komast í úrslit en hann varð
í tíunda sæti í undanúrslitunum og var
rúmum fimmtungi úr sekúndu frá því að
komast í úrslit.
Rúnar Sigtryggsson, þjálfari Akureyri
handboltafélag, hefur strax sett tóninn
á æfingum hjá nýsameinuðu liði Þórs
og KA. Tveir leikmenn mættu í fötum
merktum KA á fyrstu æfinguna í síðustu
viku en þjálfarinn vill ekki að leikmenn
æfi í búningum frá sínum gömlu
félögum. Leikmenn
liðsins eiga von á nýjum
æfingafatnaði nú í
vikunni.
„Ég vil ekki að menn séu
í Þórs eða KA búningum. Það
er verið að stofna nýtt lið
og ég vil að menn einbeiti
sér að því. Þetta gerðist bara
einu sinni og mun ekki ger-
ast aftur. Það verður refsing
ef einhver dirfist að brjóta
reglurnar,“ sagði Rúnar í léttum dúr en
hann leysti málið með því að líma yfir
merki KA.
Æfingar hófust á mánudaginn í síðustu
viku og er Rúnar ánægður með byrjun-
ina. „Það gengur þokkalega. Hópurinn
hefur aldrei farið niður fyrir
tuttugu stráka, þrátt fyrir forföll
og ég er því með stóran og
breiðan hóp. Það er mjög
jákvætt en stærsti hluti hans
er reyndar í
2. flokki. Það
breytir því
ekki að það
verður mikil
samkeppni
um stöður,“
sagði Rúnar
sem vonast eftir því að styrkja hópinn
frekar fyrir komandi átök.
„Við erum full seint á ferðinni og úrvalið
á leikmannamarkaðnum er ekkert. Við
höfum verið að kíkja í kringum okkur
en það hefur lítið gengið,“ sagði Rúnar
sem býst fastlega við því að missa einn
sinn besta leikmann, Arnór Gunnarsson,
sem mun að öllum líkindum ganga í
raðir Vals.
KA og Þór hafa marga hildina háð en
eftir sameininguna eru þessir fyrrum
fjendur búnir að sameinast í eitt lið.
„Mönnum kemur furðu vel saman,
þetta er að blandast hægt og rólega. Við
munum fara í einhverjar æfingaferðir
til að þjappa hópnum vel saman enda
eru þetta tvær fylkingar sem þurfa að
sameinast,“ sagði Rúnar Sigtryggsson.
FORNIR FJENDUR SAMEINAÐIR Á AKUREYRI: STRAX KOMIÐ Í VEG FYRIR UMDEILDAN ÆFINGAFATNAÐ
Límt yfir KA-merkið á fyrstu æfingu
GOLF Sigmundur Einar Másson úr
GKG varð um helgina Íslands-
meistari í höggleik á Urriðavelli
af miklu öryggi en fyrir sigurinn
var nafn hans ekki það þekktasta í
bransanum. „Ég var tólf ára þegar
ég byrjaði að æfa golf. Golfklúbb-
urinn var með kynningu í skólan-
um mínum og þannig fékk ég
áhugann, ég hef eiginlega átt
heima á golfvellinum síðan ég
byrjaði. Um leið og ég var búinn í
vinnunni þá hjólaði ég beint út á
golfvöll og svo endaði þetta með
því að ég fékk bara vinnu á vellin-
um. Um leið og vinnutímanum
lauk þá fór maður strax að slá,“
sagði Sigmundur.
Hann er úr Kópavoginum og
var í fótbolta hjá Breiðabliki áður
en golfið tók nánast allan hans frí-
tíma. „Ég vann Íslandsmeistara-
titil unglinga í holukeppni árið
2000 eftir að hafa verið í golfi í
rúm þrjú ár,“ sagði Sigmundur
sem verður 23 ára í nóvember en
hann býr í Bandaríkjunum þar
sem hann er við nám. „Ég er að
læra fjármálahagfræði og á eitt ár
eftir af skóla en get spilað tvö ár í
viðbót. Ég klára þau og svo er
aldrei að vita hvað gerist eftir
það.“
Sigmundur setur stefnuna á
atvinnumennsku og er byrjaður
að skipuleggja framtíð sína í
kringum það. Eftir sigur hans um
helgina hafa margir talað um kyn-
slóðaskipti í golfinu en Sigmundur
tekur nú ekki alveg undir það.
„Heiðar Davíð er ekki mikið eldri
en ég og því tel ég að orðið kyn-
slóðaskipti eigi kannski meira við
í kvennagolfinu enda var orðið
langt síðan ung stelpa hafði náð
sigri þar,“ sagði Sigmundur.
„Þetta leit kannski út fyrir að
vera auðvelt hjá mér en það var
það alls ekki. Ég var búinn að setja
upp ákveðið leikskipulag og spil-
aði eftir því. Það var mjög sætt að
ná að að sigra, fyrir tveimur árum
hefði ég endað meðal tíu efstu en
fékk frávísun þar sem ég skrifaði
undir vitlaust skor. Í fyrra spilaði
ég illa seinasta daginn og fékk níu
á eina holuna og átti því ekki
möguleika á því að vera meðal
efstu manna. Fyrir þetta mót var
ég síðan staðráðinn í að vera í bar-
áttunni og það tókst.“
Hann fagnaði sigrinum á sunnu-
dag ásamt öðrum keppendum á
Hótel Loftleiðum. „Þar voru allir
keppendurnir saman að borða
góðan mat. Þar var mjög góð
stemning,“ sagði Sigmundur sem
mætti síðan aftur til vinnu í gær
en í sumar hefur hann verið að
kenna unglingum hjá GKG. Hann
segir þó að æfingagjaldið hafi ekki
hækkað eftir sigur sinn. „Þau
njóta bara góðs af þessu,“ sagði
Sigmundur Einar Másson að
lokum.
elvargeir@frettabladid.is
Byrjaði á skólakynningu
Á sunnudag lauk Íslandsmótinu í höggleik en þar voru krýndir nýir meistarar í
karla- og kvennaflokki. Sigmundur Einar Másson er nýr meistari í karlaflokki.
PÚTTAÐ Sigmundur mundar hér pútterinn
á átjándu holunni á sunnudaginn.
FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
BÝR Í BANDARÍKJUNUM Sigmundur Einar Másson var nýja nafnið sem skráð var á Íslands-
meistarabikarinn en hann stundar nám í Bandaríkjunum. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
KNATTSPYRNUÞJÁLFARAR
Barna og unglingaráð Aftureldingar
auglýsir eftir þjálfurum í nokkra flokka
pilta og stúlkna frá og með 1 september.
Þjálfaramenntun og reynsla er skilyrði.
Hjá Aftureldingu er unnið metnaðarfullt starf
þar sem fagmennska og forvarnir eru höfð
að leiðarljósi. Aðgangur er m.a að 3
íþróttasölum, Tungubökkum sem er
eitt besta grassvæði landsins auk
gerfisgrasvallar við
Íþróttamiðstöðina við Varmá
Áhugasamir eru beðnir að senda inn
umsóknir fyrir 10. ágúst á netfang
umfa@simnet.is eða í
pósti merkt Tryggvi Þorsteinsson
Lækjartúni 5
270 Mosfellsbæ