Fréttablaðið


Fréttablaðið - 12.08.2006, Qupperneq 31

Fréttablaðið - 12.08.2006, Qupperneq 31
 Heimild: Almanak Háskólans Smáauglýsingasími 550 5000 Auglýsingasími Allt 550 5880 Þú getur pantað smáauglýsingar á visir.is FASTEIGNIR HEIMILI HEILSA HÚS BÖRN NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR TÍSKA ATVINNA BRÚÐKAUP TILBOÐ O.FL. Daði Rafnsson, starfsmaður í sölu- deild KB banka, er nægjusemin upp- máluð þar sem hann ekur um á litlum Volkswagen Polo. Hann sker sig úr á vinnustaðnum, þar sem flestir aka um á margmilljón króna glæsibifreiðum. „Það var nú bara klesst á gamla bílinn minn og ég þurfti að fá nýjan bíl í snatri, sölumanninum tókst að sannfæra mig um að þetta væri besti kosturinn. Kærastan mín var líka svo ofsalega ánægð með þá staðreynd að þetta er bleikur Polo,“ segir Daði. Daði opnaði nýlega vefsíðuna bleikur- polo.blog.is. Á síðunni bíðst Daði til þess að skipta á bílnum og öðrum bíl, svo lengi sem hann telur skiptin vera sanngjörn. „Hugmyndin kviknaði þegar ég skoðaði heimasíðuna oneredpaperclip.com sem segir frá bandarískum manni sem tókst á einu ári að skipta einni pappírsklemmu upp í hús með því að fá alltaf aðeins betri hlut í hvert skipti sem hann gerði skipti.“ Daði segist hafa fengið fjölmörg tilboð en flest hafi þau verið mjög léleg. „Besta tilboðið var Toyota Corolla sem var í mjög lélegu ástandi. Með þessari aðferð stefni ég að því að vera kominn á flottan Benz eftir tvö ár,“ útskýrir Daði léttur í bragði. En skyldi Daða aldrei vera strítt af vinnufélögum sínum vegna bílsins? „Jú, það er eitthvað um það, en það er alveg augljóst hver er öruggastur með karl- mennsku sína á mínum vinnustað. Yfir- maður minn sér reyndar alltaf hvort ég sé á staðnum með því að kíkja út á bílastæði þar sem bíllinn sker sig úr.“ Þó svo að Daði sé almennt ánægður með bílinn telur hann til einn galla. „Flestir vinir mínir eru jeppamenn og þegar stend- ur til að fara á fjöll er ansi erfitt fyrir mig að komast með. Ég kom honum reyndar upp Kambana um daginn og þá er það eig- inlega upptalið,“ segir Daði. valgeir@frettabladid.is Nægjusemin uppmáluð Daði opnaði nýlega vefsíðuna bleikurpolo.blog.is þar sem hann býðst til að skipta á bílnum sínum og öðrum bíl, svo lengi sem hann telji skiptin vera sanngjörn. FRÉTTABLAÐIÐ/HÖRÐUR Fjallganga á vegum Útivistar verður farin á Klakk á morgun, sunnudag. Brottför frá BSÍ kl. 08.00. Klakkur er 999 metra hár og einn af útvörðum Langjökuls og rís upp úr jöklinum í jaðri hans miðja vegu á milli Geit- landsjökuls og Hagafells. Verð er 3.700 fyrir félaga og 4.300 fyrir aðra. Flugfarþegum er bent á vegna aukinnar öryggisgæslu á Kefla- víkurflugvelli að mæta snemma í innritun og öryggisleit. Hafa ber í huga að farþegum gæti verið gert að innrita allan farangur sem þeir hafa meðferðis; handfarangur þar með talinn. Í handfarangri má ekki vera vökvi. Til að mynda gosdrykkir, vatn, áfengi, ilmvötn o.fl. Mjólk fyrir ungbörn er undanþegin, sem og lyf sem stíluð eru á viðkomandi flugfarþega. Bernhard hefur opnað aftur á laugardögum eftir sumarið. Frá og með 12. ágúst er söludeild nýrra bíla í Vatnagörðum 24 opin á laugardögum frá 12 til 16 og Bernhard notaðir bílar í Bílakjarnanum frá 11 til 16. ALLT HITT [ BÍLAR - FERÐIR ] GÓÐAN DAG! Í dag er laugardagurinn 12. ágúst, 224. dagur ársins 2006. Sólarupprás Hádegi Sólarlag Reykjavík 5.08 13.33 21.55 Akureyri 4.41 13.17 21.51 Af stað á Reykjanesið Á MORGUN, SUNNDUDAG, VERÐUR GÖNGUFERÐ UM VOGA OG INNRI NJARÐVÍK Í SAMVINNU VIÐ LEIÐSÖGUMENN REYKJANESS OG FERÐAMÁLASAMTÖK SUÐURNESJA. Gengið verður um Síkið að Reiðskarði og rifjuð upp saga athafnastarfsemi á svæðinu, sagðar þjóðsögur og margt fleira. Gangan, sem er um 7-8 km að lengd, er annar hluti af fimm menningar- og sögutengdum gönguferðum um hluta af gömlu þjóðleiðunum á Reykjanesskaganum á tímabilinu frá 6. ágúst til 3. september. Leiðsögumenn Reykjaness sjá um fræðsluna og leiða hópinn. Reynt verður að gera göngurnar skemmtilegar, fræðandi og fjölskylduvænar. Þátttökugjald í þessa ferð verður kr. 1.000 en frítt fyrir börn yngri en 12 ára. Lagt af stað frá Sundlauginni í Vogum klukkan ellefu og verður hópnum ekið til baka að upphafsstað. Á SÖGUSLÓÐUM BERLÍNARBORGAR Óttar Guðmundsson læknir er leiðsögumaður í ferðinni „Þriðja ríkið“. FERÐIR 6 21. ALDAR HJÓLHÝSI Airstream-hjólhýsin hafa verið endur- hönnuð og færð til nútímans. BÍLAR 4
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.