Fréttablaðið - 12.08.2006, Blaðsíða 35
LAUGARDAGUR 12. ágúst 2006 5
Lengri en forverinn og hlaðinn
alls kyns búnaði.
Töluverð spenna hefur ríkt í kring-
um nýjan BMW X5 sem var sýnd-
ur opinberlega fyrir skemmstu.
Til dæmis hefur heyrst frá Daimler-
Chrysler að hann verði helsti
keppinautur Mercedes Benz GL
sem kemur í sölu síðar á árinu.
Nýr X-5 er 19 cm lengri en sá
gamli og megnið af þeirri lengingu
kemur fram í stærra innanrými en
bíllinn er nú orðinn sjö manna í
stað fimm áður. Meðal annarra
breytinga má nefna nýja fjöðrun,
nýjan stýrisgang og nýtt xDrive
drifkerfi.
Á Ameríkumarkaði verður bíll-
inn boðinn með 4,8 lítra, 350 hest-
afla V8 mótor annarsvegar og
hinsvegar 3,0 lítra, 260 hestafla
línusexu.
Nýr og endurbættur BMW X5 kynntur
Í kjölfar árekstraprófana inn-
kallaði Nissan bíla til viðgerð-
ar en Toyota lætur sér duga að
gera betur í framtíðinni.
Í nýlegri prófunarlotu Euro NCAP
voru rannsakaðir bílar af gerðun-
um Chevrolet Kalos, Nissan Note,
Toyota RAV4 og Land Rover Dis-
covery III.
Prófanirnar leiddu í ljós veik-
leika í öryggiskerfum tveggja
þessara bílategunda. Í Nissan
Note fannst galli í Isofix-festingu
fyrir barnastól sem leiddi til þess
að festingin gaf sig þegar öryggi
bílsins var prófað gagnvart hliðar-
árekstri.
Nissan hefur fullvissað
EuroNCAP um að gallinn sé ein-
göngu í hluta af fyrstu byggingar-
seríu Nissan Note og hvorki sé eða
verði til staðar í bílum þessarar
gerðar sem síðar hafa komið eða
eiga eftir að koma af færiböndun-
um. Að auki verði allir bílar með
gallann innkallaðir til viðgerðar,
eigendum að kostnaðarlausu.
Við árekstursprófun á Toyota
RAV4 kom í ljós í árekstri framan
á bílinn að loftpúði sprakk út of
seint. Þetta gerðist vegna þess að
rafleiðsla að skynjara í stuðara
aftengdist snemma í árekstrinum.
Toyota hefur í kjölfarið lagað frá-
ganginn þannig að búnaðurinn
stóðst seinni prófanir. Ekki stend-
ur til að innkalla þá bíla sem seldir
voru með þessum galla.
Helstu niðurstöður prófananna að
þessu sinni eru þessar:
CHEVROLET KALOS
Vernd fullorðinna: 3 stjörnur
Vernd barna: 3 stjörnur
Vernd fótgangandi: 2 stjörnur
NISSAN NOTE
Vernd fullorðinna: 4 stjörnur
Vernd barna: 3 stjörnur
Vernd fótgangandi: 2 stjörnur
TOYOTA RAV4
Vernd fullorðinna: 4 stjörnur
Vernd barna: 4 stjörnur
Vernd fótgangandi: 3 stjörnur
LAND ROVER DISCOVERY III
Vernd fullorðinna: 4 stjörnur
Vernd barna: 4 stjörnur
Vernd fótgangandi: 1 stjarna
(www.fib.is)
Veikleikar í
Note og Rav4
Þrátt fyrir galla í árekstrarpúða verður Rav4
ekki innkallaður.
Nýi bíllinn er stærri en sá gamli, og rúmar nú sjö farþega.
Meðal valmöguleika er upplýsingakerfi í
framrúðu.
Innréttingin breytist ekki mikið, en hér og
þar má sjá litlar nýjungar.
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI
Skynvætt myndavélakerfi getur varað við
ýmsum hættum.