Fréttablaðið - 12.08.2006, Blaðsíða 60
12. ágúst 2006 LAUGARDAGUR40
Sunday Times birti fyrir skömmu topp tíu lista yfir bestu hommaplötur allra
tíma. Þar kennir ýmissa grasa en í
efsta sæti er sveitin Scissor Sist-
ers með samnefnda plötu. Frétta-
blaðið fékk Pál Óskar Hjálmtýs-
son til að segja sitt álit á þessu vali
og nefna sinn eigin topp fimm lista
yfir plötur sem verða að vera til á
hommaheimilum.
„Mér sýnist þeir fyrst og fremst
vera með stúdíóplötur ákveðinna
listamanna. Það eru hins vegar
engar safnplötur eða gretast hits
plötur á þessum lista,“ segir Páll
Óskar Hjálmtýsson um topp tíu
lista Sunday Times yfir bestu
hommaplöturnar. „Að mínu áliti
eiga að vera til safnplötur á hverju
heimili og þess vegna er ég svolít-
ið hissa á þessum lista. Þar að auki
er hvergi minnst á Eurovision og
þar datt andlitið af mér.“
Þegar Páll Óskar var beðinn að
lýsa hinu fullkomna hommlagi lét
svarið ekki á sér standa: „Hlust-
aðu bara á lag númer átta á plöt-
unni Seif. Lagið heitir Stanslaust
stuð og er hin fullkomna uppskrift
að því hvernig hommalag á að
vera.“
Páll Óskar mun leika á
Gaypride-balli á Nasa í kvöld. Palli
byrjar að spila á slaginu ellefu,
um leið og húsið opnar, en honum
til halds og trausts verða ýmsir
listamenn svo sem Nana úr Idol-
inu, Bjartmar Þórðarson og Frið-
rik Ómar. „Ég verð illa svikinn ef
ein eða tvær draggdrottningar
mæta ekki upp á svið og taka eitt
eða tvö lög,“ segir Páll Óskar sem
mun eflaust spila nokkur lög af
plötunum sem minnst er á hér á
síðunni í kvöld.
Bestu hommaplötur allra tíma
SCISSOR SISTERS - SCISSOR SISTERS
Þetta er gayband. Forsöngvarinn er samkyn-
hneigður og kærastinn hans er hljómborðs-
leikarinn og lagahöfundurinn. Samkynhneigðir með-
limir þessara hljómsveitar eru í meirihluta en hvort
platan sé jafn gay og Older, plata George Michael,
skal ósagt látið. Þeir eru ekki í neinni sjálfskoðun
heldur vilja bara partí.
ARRIVAL - ABBA
Ástæðan fyrir því að
Arrival er á þessum
lista er sú að Dancing Queen er
á þessari plötu og líka lagið
Does your mother know?
VAUXHALL AND I -
MORRISSEY Ég skal játa
dauðasynd sem er sú
að ég var aldrei mikill Smiths
aðdáandi og Morriseey er
óplægður akur fyrir mér. Ég veit
það útundan mér að Morrissey
er hommi og einn besti textahöf-
undur í heimi ef ekki sá besti.
Ég hef ekki lagt mig í líma við að
hlusta eftir honum sem sýnir það
kannski og sannar hvað hommar
og lesbíur hafa ólíkan smekk,
þetta er ekki svart og hvítt. Þótt
við séum samkynhneigð erum
við ekki steypt í sama mót. En
ef einhver er til í að kynna Morr-
issey fyrir mér er aldrei að vita
nema ég sperri eyrun.
LIGHT YEARS - KYLIE MIN-
OGUE Þetta er mun homma-
legri plata en Fever sem
kom út tveimur árum seinna. Þessi
plata var eiginlega þakkargjörð
Kylie til hommanna. Þeir hafa alltaf
haldið einhverri tryggð
við Kylie frá fyrsta
degi. Hún hefur alltaf
troðið upp á homma-
klúbbum og þó hún
sé orðin stjórstjarna
gerir hún lítil homm-
agigg af og til.
WELCOME TO THE PLEAS-
UREDOME - FRANKIE
GOES TO HOLLYWOOD
Þessi plata er á listanum
einfaldlega vegna þess að
Holly Johnson er gay og
meðsöngvari hans líka.
Frankie Goes to Holly-
wood er strákaband,
svona eins og Boyzone
og Take That. Þetta
voru straight gaurar
sem var raðað
saman í súper-
grúppu. Frankie er
samt líka Trevor Horn
sem er magnaður útsetj-
ari og lagahöfundur. Hann
hefur skilað af sér hverri
snilldinni á fætur annarri.
EROTICA - MADONNA Ég er
ekki sammála þessu vali.
Hommalegasta plata sem
Madonna hefur gert er Confess-
ions on the dancefloor. Það er
sama með hana og Kylie Minogue
að hún er að taka ofan hattinn
fyrir hommunum sem elska að
dansa. Þeir eru tilfinnilegalega
frjálsir og halda upp á það
með því að dansa. Tónlistin er
þeirra kraftur og þeir sækja
sér kraft þangað. Madonnu
tekst best til með það á
nýjustu plötu sinni.
BAD GIRLS - DONNA
SUMMER Þetta er snilld-
arverk Donnu Summer.
Tvöföld plata, fimmtán lög
og þar af sjö smáskífur. Lög á
borð við Bad girls, Hot Stuff,
Our Love, Lucky – listinn er
endalaus. Það er ótrúlegt að
gefa út tvöfalda plötu á
miðjum ferlin-
um, þegar
allir héldu
að batteríin
væru búin.
Hún naut
dyggrar
aðstoðar
Giorgio
Moroder
og Petes
Bellotte.
1. 50 ÁRA SAGA EUROVISION (BÁÐIR
TVÖFÖLDU DISKARNIR) Eurovision
er ákaflega hátt skrifað fyrirbæri hjá
hommum og reyndar lesbíum líka.
2. ABBA GOLD - ABBA. Þetta er næstum
því hin fullkomna safnplata. Abba var
kannski mögulega besta hljómsveit í
heimi og þetta er svo sannarlega tíma-
laus tónlist. Það er svo skrítið að poppið
étur sig sjálft, fer í hringi og dettur úr
tísku en Björn og Benny eru það flottir og
magnaðir tónlistarmenn og útsetjarar að
lögin standa tímans tönn. Lögin, textarnir
og upptökurnar eru gjörsamlega tíma-
lausar. Það eru til margar kynslóðir Abba
aðdáenda og þeim fer bara fjölgandi.
3. IMMACULATE COLLECTION -
MADONNA. Immaculate conception er
meygetnaðurinn en Madonna kallaði
hana collection.
4. DUSTY SPRINGFIELD - DUSTY IN
MEMPHIS. Uppáhalds lesbían mín
í öllum heiminum. Örugglega besta
söngrödd sem mannkynið hefur fengið
að heyra. Memphis-platan er meistara-
verkið hennar. Innihélt meðal annars
slagarann Son of a Preacher Man.
5. OLDER - GEORGE MICHAEL Þarna er
George Michael kominn út úr skápnum.
Ofsalega falleg sjálfsskoðun hjá honum.
SKYLDUEIGN HOMMAHEIMILA SAMKVÆMT PALLA
I AM A BIRD NOW - ANTONY AND THE JOHNSONS Ég er hjartan-
lega sammála þessu vali. Kannski fallegasta trönsuplata sem ég
hef heyrt. Um það að Antony vill vera kona. Platan fjallar öll um
það. Hún er matreidd á svo einlægan og fallegn hátt að meira að segja
gagnkynhneigt fólk skilur þörfina að vera eitthvað annað en það er.
THE MAN WHO SOLD THE
WORLD - DAVID BOWIE
David Bowie er fyrir
mér eins og Morrissey, það á
eftir að kynna hann fyrir mér.
Ég þekki bara Let´s Dance plöt-
una og kann hana reyndar utan
að. En Bowie á svo sannarlega
heima á þessum lista því hann
er alltaf að leika sér að kyn-
hneigð sinni og kynhlutverkinu.
Svona eins og poppstjörnur eiga
að vera. Þær eiga að
vera hættulegar
og ógna umhverfi
sínu og fá fólk
til að spyrja sig
spurning og
þar er Bowie
fremstur meðal
jafningja.
1
2
3
4
OLDER - GEORGE MICHAEL Þarna er George
Michael kominn út úr skápnum. Ofsalega
falleg sjálfsskoðun hjá honum. 5
6
7
8
9 10