Fréttablaðið - 12.08.2006, Síða 78
12. ágúst 2006 LAUGARDAGUR58
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
LÁRÉTT 2 viðskipti 6 klaki 8 angra 9
á nefi 11 hröð 12 ávöxtur eikartrés
14 lyftitæki 16 í röð 17 niður 18
fæða 20 ónefndur 21 gróft orð.
LÓÐRÉTT 1 gapa 3 samtök 4 umhirða
5 samstæða 7 undirstaða 10 planta
13 flan 15 dugnaður 16 hald 19
skyldir.
LAUSN
LÁRÉTT: 2 kaup, 6 ís, 8 ama, 9 nös, 11
ör, 12 akarn, 14 krani, 16 tu, 17 suð, 18
ala, 20 nn, 21 klám.
LÓÐRÉTT: 1 gína, 3 aa, 4 umönnun, 5
par, 7 sökkull, 10 sar, 13 ras, 15 iðni,
16 tak, 19 aá.
opið alla laugardaga 11-14
Stór humar, túnfiskur
og úrval fiskrétta á grillið
VEISTU SVARIÐ
Svör við spurningum á bls. 8
1 Chippendales-danshópurinn.
2 Salalaug, Kópavogi.
3 Einar K. Guðfinnsson
sjávarútvegsráðherra.
HRÓSIÐ...
fær Tinna Pétursdóttir, sem
hannaði vatnsflösku fyrir stærsta
vatnsframleiðandann á Ítalíu.
��������������
�������
����������
����
������������
����������
��� �
Einn yngsti ræðismaður lands-
ins er að setja sig í stellingar í
starfi. Þórunn Harðardóttir
var nýverið skipuð heiðurs-
ræðismaður Svíþjóðar með
aðsetur á Húsavík. Hún er
28 ára starfsmaður hvala-
skoðunarfyrirtækisins
Norðursiglingar.
„Þetta kom til að frum-
kvæði sendiherra Svíþjóð-
ar hér á landi,“ segir Þór-
unn glaðlega þegar hún
gefur sér tíma til að spjalla
milli hvalaskoðunarferða.
Sendiherrann og Þórunn hafa
starfað saman í hópi að undir-
búningi verkefnisins Garð-
arshólma en það er tileiknað
Garðari Svavarssyni, Svíans
sem fann Ísland á undan
Hrafna-Flóka og sjálfum Ing-
ólfi Arnarsyni. „Þessi sænska
tenging er mjög sterk hérna á
Húsavík,“ segir Þórunn, sem
vill gera Húsavík að sænska
bænum á Íslandi.
Ræðismennska er
unnin í sjálfboðavinnu og
hefur Þórunn alla trú á
að starfið við Norður-
siglingu fari vel saman
við að vera heiðursræðis-
maður. „Stór hluti starfs-
ins verður að vera til
upplýsingagjafar fyrir
Svía sem hugsanlega lenda í ein-
hverjum vanda og vera með upp-
lýsingagjöf um Svíþjóð á svæð-
inu,“ segir Þórunn.
Setning ræðismanns þarf að
fara eftir sérstökum leiðum.
„Sendiherrann sækir um þetta til
utanríkisráðuneytisins í Svíþjóð.
Þar fer umsóknin í gegnum eitt-
hvert ferli sem mér er ekki kunn-
ugt um, þar sem hún fer meðal
annars inni á borði hjá kónginum.“
Þórunn er yngsti ræðismaður
Svíþjóðar en alls starfa um 380
ræðismenn landsins víðs vegar
um heiminn. „Ég veit satt að segja
ekki til þess hvort það eru margir
í þessu starfi hér á landi sem eru á
mínum aldri eða af mínu kyni,“
segir Þórunn Harðardóttir. -at
Samþykkt af sænska kónginum
ÞÓRUNN HARÐARDÓTTIR HEIÐURSRÆÐIS-
MAÐUR Umsókn ræðismanna þarf að fara
í gegnum ferli hjá utanríkisþjónustunni
og fer meðal annars inn á borð til sænska
kóngsins.
VIKTORÍA SVÍAPRINSESSA
Hringir í Þórunni ef hún lend-
ir í vandræðum á Húsavík.
„Við höfum aðeins einu sinni
sleppt úr fimmtudegi frá árinu
2001,“ segir Guðjón Árnason, einn
liðsmanna félagsskapar sem ber
hið mjög svo hógværa nafn Meist-
arar! en það er hópur góðra félaga
sem spila golf á hverjum fimmtu-
degi á Keilisvellinum í Hafnar-
firði. „Þetta eru allt saman strákar
sem tengjast FH á einn eða annan
hátt,“ útskýrir Guðjón en þeir hafa
vakið mikla athygli fyrir mikla
hörku og spila átján holur uppi á
Keili, nánast hvernig sem viðrar.
„Við byrjuðum nokkrir saman árið
2001 með fasta tíma á fimmtudög-
um en síðan hefur fjölgað í hópn-
um og við erum orðnir 16 í dag,“
útskýrir Guðjón og bætir við að
félagið sé fullmannað. „Menn geta
svo sem sótt um aðild ef þeir vilja
fá formlega neitun,“ segir hann.
Þegar ljóst var að þessi félags-
skapur væri að verða að formleg-
um „klúbbi“ settust vinirnir niður
og lögðust í mikla hugmyndavinnu
með nafnið. „Fyrst komu hug-
myndir eins og „Kapla-kempur“
eða „Krika-karlar“ með tilvísun til
heimavallar Hafnafjarðarstór-
veldisins,“ segir Guðjón en svo
fengu þeir þá flugu í hausinn að
kalla sig Meistarar!. „Þetta er
komið frá Birgi Björnssyni, vallar-
verði hjá Keili, og félögum sem
skipuðu meistaraflokk FH á árun-
um 1960 til 1970 og unnu allt sem
hægt var að vinna,“ útskýrir Guð-
jón. „Þeir höfðu þann háttinn á að
kasta kveðjunni „Sæll, meistari“ á
hvorn annan enda höfðu þeir svo
sem efni á því,“ heldur hann áfram.
„Við fórum þess því á leit við Birgi
að fá að nota þetta nafn og hann
gaf að sjálfsögðu góðfúslegt leyfi
sitt,“ segir Guðjón. - fgg
Spila hvernig sem viðrar
MEISTARAR! Meðal þeirra sem eru hluti
af þessum frækna félagsskap eru Hálfdán
Þórðarson, Guðjón Árnason og Bergsveinn
Bergsveinsson sem allir léku stórt hlutverk
í meistaraliði FH í upphafi tíunda áratugar-
ins. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
„Nei, við erum ekki arftakar Stuð-
manna,“ segir Ragnar Kjartans-
son, söngspíra glysrokksveitarinn-
ar Trabant, en í kvöld verður æði
sérstakt sveitaball í reiðhöll sem
staðsett er milli Hveragerðis og
Selfoss og hefur hlotið nafnbótina
Suðurlandsskjálftinn 2006. Hljóm-
sveitirnar Stuðmenn og Trabant
taka þar höndum saman og skella
upp miklum dansleik en tónleik-
arnir eru lokahnykkurinn á ferð
Stuðmanna um landið. „Þeir eru
auðvitað stórkostlegir og ein besta
íslenska stofnunin,“ lýsir Ragnar
yfir og bætir því að Trabant sé
vissulega undir áhrifum frá gömlu
„Stuðmannarugli“ eins og hann
kemst að orði. „Stuðmenn eru
áhrifamikil hljómsveit,“ segir
Ragnar og bætir því að nokkur
spenningur ríki í herbúðum hljóm-
sveitarinnar enda eru þeir ekki
vanir að spila á alvöru sveitaballi.
Herlegheitin hefjast á miðnætti og
hafa Stuðmenn brugðið á það ráð
að bjóða íbúum norðaustur- og
vestur kjördæmi frítt á tón-
leikana en það eina sem þeir
þurfa að gera er að fram-
vísa skilríkjum sem sanna
búsetu þeirra þar.
Stuðmenn hafa vakið þó
nokkra athygli fyrir þá
gestasöngvara sem hafa
fylgt þeim á leið
um landið og
nægir þar að
nefna Valgeir
Guðjónsson og
Stefán Karl Stef-
ánsson. Ragnar
ber þann
draum með
sér í brjósti
að þeir Tra-
bant-liðar
geti einnig
boðið gestum
dansleiksins upp á viðlíka stjörn-
ur. „Kannski tekur Íþróttaálfurinn
eða Magni lag með okkur,“
segir Ragnar og hlær en úti-
lokar ekki að hann muni stíga
á stokk með Stuðmönnum
seint um kvöldið. „Það getur
allt gerst,“ segir hann.
Þótt Trabant og Stuðmenn
hafi ekki komið fram
saman áður eru
Ragnar og fjöl-
skylda hans ekki
alls ókunnug
hljómsveit
Íslands. Ragn-
ar hannaði
búninga og
sviðsmynd
Stuðmanna
en faðir
hans, Kjart-
an Ragnars-
son, er ansi
nátengdur
Stinna stuð sem
flestir Íslendingar
ættu að kannast við
úr kvikmyndinni
Með Allt á hreinu.
Stinni klæddist þar ansi skrautleg-
um búningum en þeir voru allir
fengnir frá Þjóðleikhúsinu og eiga
ættir sínar að rekja til Kjartans,
sem hafði klæðst þeim á sviði. Það
má því með sanni segja að hring-
urinn lokist í kvöld þegar Trabant
og Stuðmenn trylla Sunnlendinga.
freyrgigja@frettabladid.is
RAGNAR KJARTANSSON: FETAR Í FÓTSPOR FÖÐUR SÍNS
Annar ættliðurinn í
búningamálum Stuðmanna
FARIÐ Á KOSTUM Birgitta Haukdal hefur farið létt með að fylla skarð þeirra Hildar Völu og
Ragnhildar Gísladóttur sem söngkona Stuðmanna. FRÉTTABLAÐIÐ/HÖRÐUR
RAGNAR KJART-
ANSSON Hannar
búninga fyrir
Stuðmenn og
leikur á dansleik
með þeim í kvöld.
KJARTAN RAGNARSSON Faðir Ragnars
sem tengist Stinna stuð á sérstakan hátt.
Kjartan hafði leikið í öllum búningum
Stinna stuð, sem hann klæddist í Með allt
á hreinu, í Þjóðleikhúsinu áður.
FRÉTTIR AF FÓLKI
Meistari Morrissey er kominn til Íslands og heldur tónleika í Laugar-
dalshöll í kvöld. Söngvarinn margfrægi
spókaði sig í Kringlunni í gær með konu
sinni og barni. Meðal þeirra verslana
sem hann lét sjá sig í var 17 og þar
mun hann hafa keypt sér jakkaföt til að
líta sem best út á tónleikunum. Þrátt
fyrir að hafa verið vinsæll söngvari í
aldarfjórðung þurfti Morrissey ekki að
hafa áhyggjur af því að vera ónáðaður í
Kringlunni. Starfsfólk flestra
verslana hafði ekki hug-
mynd um hver hann væri
og mun söngvarinn hafa
kunnað þessu ágæt-
lega.
Og meira af Morrissey því skipu-leggjendur Gay Pride göngunnar
í miðborg Reykjavíkur í dag gera sér
miklar vonir um að hann láti sjá sig í
göngunni. Margir hafa viljað
túlka texta söngvarans á
þann veg að þeir fjalli um
ástir samkynhneigðra
en sjálfur hefur hann
aldrei ljáð máls á
því að hann sé
samkynhneigður.
Ekkert hefur heyrst
um hvort Morriss-
ey láti sjá sig svo
göngufólk verður
einfaldlega að
hafa augun opin.
Töluverð eftirsjá er að stórtónleikum Rásar 2 á Miðbakka á Menningarnótt
sem verða ekki í ár vegna framkvæmda
á hafnarsvæðinu. Björgólfur Guðmunds-
son og hans fólk í Landsbankanum
ætla þó að gera sitt til að fylla upp í
tómarúmið. Smekkleysinginn Einar Örn
Benediktsson hefur verið ráðinn til að
skipuleggja tónleika með fjölmörgum
hljómsveitum
af yngri kyn-
slóðinni. Stórt
svið verður
sett upp fyrir
framan útibú
Lands-
bankans á
Laugavegi 77
þar sem yngri
kynslóðin
fær að rokka
frá hádegi
og fram á
kvöld. - hdm