Tíminn - 09.07.1978, Side 15
Sunnudagur 9. júli 1978
15
Séö vestur yfir mótssvæöiö. Sýningarhringir eru merktir meö róm-
verskum tölum. Aörar tölur: 1. Suöurbraut, 2. Stóöhestahús og
skrifstofa, 3. Tjaldsvæöi, 4. Kappreiöabraut, S. Áhorfendasvæöi, 6.
Keppnishestarétt, 7. Aöalhliö, 8. Hnakkageymsla, 9. Tjaidsvæöi, 10.
Leirdalur. Til vinstri er leiöin niöur á Þingvelli.
100 kynbótahross,
160 gæðingar og
120 kappreiðahross
á Skógarhólamóti
Landssamband hestamanna-
félaga var stofnaö áriö 1949 og
hélt sitt fyrsta landsmót á Þing-
völlum áriö eftir.og nú dagana
13.-16. júlf, mun haldiö hiö átt-
unda landsmót hestamanna og
aö þessu sinni munu hestamenn
mætast aö Skógarhólum 1 Þing-
vallasveit.
Fyrsti vísir aö landsmóti var
þó níu árum fyrr. Hestamanna-
félagiö Fákur, beitti sér — aö
áeggjan Jóns Pálssonar dýra-
læknis á Selfossi — fyrir þvi, aö
hestamenn frá félögunum Glaö,
Faxa, Fák og Sleipni f jölmenntu
riöandi á mót á Þingvöllum 28.
júni 1941. Þá var ákveöið aö
hittast aftur á sama staö að niu
árum liönum, og var kosin fimm
manna nefnd til undirbúnings
þess fundar. Arangur starfs
þeirrar nefndar var stofnun
L.H., 18. des 1949og landsmót 6,-
9. júli, 1950. Bergur Magnússon,
formaður framkvæmdanefndar
landsmótsins nú, segir aö það
hafi honum þótt flottasta og
skemmtilegasta landsmót, sem
haldið hefur verið til þessa”. Aö
framkvæmd þessa 8. landsmóts
standa 13 hestamannafélög af
Suöur- og Suövesturlandi,
ásamt L.H. og munu þessir aöil-
ar skipta með sér tapi eöa
gróöa, sem af mótinu veröur.
Búnaöarfélag íslands á einnig
drjúgan þátt I landsmótinu, en
ber af þvi kostnað eingöngu.
B.l. leggur landsmótinu til
framkvæmdastjóra, aö þessu
sinni Pétur Hjálmsson, og
greiöir honum laun.
Hrossaræktarráöunautur,
Þorkell Bjarnason, hefur i starfi
sinu hjá B.l. feröazt um land-
iö allt og skoöaö og valiö
kynbótahross til sýningar á
mótinu og mun stjórna dómum
þeirra þar. Aö siöustu má
svo telja rikissjóö, aöila aö
framkvæmd landsmótsins, þvi
þaöan kemur verölaunafé kyn-
bótahrossa, sem er lögbundin
upphæö meö dýrtiöaruppbótum
eftir settum reglum. Aðildarfé-
lögin 13 skipta meö sér störfum
viö hliövörzlu, gæzlu stóöhesta,
eftirliti meö giröingum,
hnakkageymslu, hreinlætisaö-
stööu og öðrum störfum, sem til
falla á stóru móti, þó ekki dóm-
störfum viö sýningar og keppni.
Oll störf félagsmanna eru lögö
fram i sjálfboöavinnu og er
skipt niöur i 439 vaktir, sem
hver er 8 tima löng.
Undirbúningur
Undirbúningur hefur staöiö
alllengi og eins og aö likum læt-
ur hefur steytt á ýmsum skerj-
um og tekizt aö sigla fram hjá
öörum. Til dæmis um erfiöleika
má nefna, að stjórnendur Pósts
og sima ákváöu að fari menn að
flykkjast út i óbyggöir, geri þeir
þaö á eigin ábyrgö og þurfi ekk-
ert aö vera aö hringja i aöra á
meöan og veröi slys, veröur þaö
aö fara sem fara vill.
Þvi er mótstaðurinn sima-
sambandslaus, en komiö veröur
á talstöövakerfi viö umheiminn,
aöallega notaöar bllatalstöövar
og hjálparsveit skáta veröur á
staönum alltaf viöbúin aö veita
alla aöstoö, sem hún getur og
þaö eru góöir haukar i horni.
Ýmislegt hefur verið gert til aö
bæta aöstööu á svæöinu, t.d. var
byggt upp um 1500 fermetra
áhorfendasvæöi, dómpallurinn
fluttur til aö auövelda alla
stjórnun, hreinlætisaðstaöa
Þeir boöuöu tif blaöamannafundar. Frá vinstri: Klemens Jónsson,
stjórnandi skemmtidagskrár, Pétur Hjálmsson, framkvæmda-
stjóri, Bergur Magnússon, formaöur framkvæmdanefndar og
Bjarni Ansnes, ritari framkvæmdanefndarinnar.
byggö upp o.fl. Túniö á Svarta-
gili var fengiö á leigu til beitar
fyrir langferöahross, á Leirdal
er beitargiröing fyrir sýningar-
hross, þar sem eigendur sjá um
þau sjálfir og auk þess eru hin
gömlu beitarhólf svæöisins. Alls
eru þvi 8 beitarhólf á svæöinu og
á þau hafa veriö borin 25 tonn af
áburöi.
Tjaldstæöi hafa veriö skipu-
lögö meö hreinlætisaöstööu,
bæöi inni á mótsvæöinu og fjær
fyrir þá sem vilja meira næöi.
Hótel Valhöll hefur tekiö aö sér
sölu á neyzluvörum til gesta, á
svæöinu veröur til sölu mjólk,
ýmsar kjötvörur o.fl. sem fólk
þarf til matargeröar I útilegu og
a.m.k. mjólk og kjöt selst þar á
sama verði og annars staöar.
Þær vörur eru háöar verölags-
eftirliti. Að sjálfsögöu geta þeir
sem ekki leggja stund á matar-
gerö fengiö keypta tilbúna ýmsa
hraörétti. En þurfi einhver að
hringja, veröur hann aö skreppa
niöur I Valhöll til þess, það er
varla nema hálftlma reiö.
Reiöleiöir til Skógarhóla úr
ýmsum áttum hafa verið
merktar og lagfæröar, t.d. leið
Reykvikinga og nágranna um
Fellsendaflóann og viöar, þeir
sem koma sunnan Grafninginn
þurfa nú ekki aö riöa i rykmekki
meöfram þjóöveginum frá
Grafningsvegamótum, heldur
stefna til fjalla um ruddan og
vel merktan veg og koma á
fyrrnefnda leiö Reykvikinga i
Einiberjalaut, um þaö bil miöja
vegu milli Selkots og Brúsa-
staða. Þeir sem riöa austan aö
fara um merkta slóö frá Vatns-
vikinni upp I gegnum þjóögarö-
inn um Skógarkot yfir á Langa-
stig, um hliö, sem gert hefur
veriö á Þjóögarösgiröinguna og
áfram til mótsvæöisins.
Dagskrá
Kl. 10 á miövikudagsmorgun
hefjast dómar kynbótahrossa og
standa þann dag allan og þann
næsta og á fimmtudeginum
verða einnig dæmdir gæöingar I
B-flokki og söluhross kynnt. En
á föstudag veröur mótiö svo
formlega sett og siöan rekur
hvert atriöiö annaö: kynbóta-
hross kynnt, alhliða gæöingar
dæmdir, unglingar keppa,
undanrásir kappreiöa fara fram
og gæöingaskeiö, og aö lokum
kvöldvaka.
A lguardag er fram haldiö i
svipuöum stil en á sunnudags-
morgun k. 11, hefst dagskráin
meö helgistund I Hvannagjá,
þar sem biskupinn, hr. Sigur-
björn Einarsson, prédikar og
kirkjukór Skálholts syngur.
Þaðan fer aö messu lokinni,
hópreiö félaganna undir fánum
og forystu Bergs Magnússonar,
áleiðis til mótsvæöisins og kem-
ur inn á svæöiö kl. 13. Siöan
flytja stórmenni ávörp og aö þvi
loknu hefjast sýningar á kyn-
bótahrossum og beztu gæöing-
um, verölaunaafhending fer
fram og aö lokum úrslit kapp-
reiöa.
A kvöldvökunum á föstudags-
og laugardagskvöld skemmta
margir ágætir hestamenn af
báöum kynjum. Þar mun kenna
margra grasa t.d. mun Gunnar
Eyjólfsson þylja kvæöi, vonandi
syngur hann þaö ekki, en Jón
Sigurbjörnsson syngur hins
vegar. Kolbrún Kristjánsdóttir
stjórnar ýmiss konar listilegri
reiö kvenna og barna og Sigurö-
ur á Kirkjubæ reynir aö hafa
einhvern hemil á sonum slnum
Halla og Ladda, svo eitthvað sé
.nefnt. Auk hestamanna verða
svo margir af frægustu
skemmtikröftum þjóöarinnar á
Hreinn I Helgadal sá um aö
merkja og lagfæra reiöleiöir.
ferðinni. Kvöldvökunum stjórn-
ar Klemens Jónsson en Gunnar
Eyjólfsson veröur kynnir.
Keppnishross
ÍJr þeim um þaö bil 500 kynbóta-
hrossum, sem skoöuö voru viöa
um land voru valin um 100 til aö
koma fram á landsmóti og er
þess aö vænta, aö flest þeirra
komi. Gæöingar I tveim flokk-
um eru 160-170, um 40 unglingar
keppa á jafnmörgum hestum i
tveim flokkum, 10-12 ára og 13-
15 ára, 25 hross keppa i tölti og
10 i gæöingaskeiöi og kappreiöa-
hross eru skráö 120-130, þar á
meöal flest eöa öll fljótustu
hross, sem vitaö er um á land-
inu um þessar mundir.
s.v.