Tíminn - 09.07.1978, Blaðsíða 19

Tíminn - 09.07.1978, Blaðsíða 19
Sunnudagur 9. júli 1978 19 Ljósm.: Tryggvi Þórmóósson Guftmundur Pálsson, vélstjóri: „Ég gerfti mér ijóst aft ég kynni aft ienda undir botninum á togaranum.” skaut loks upp ab nýju og skipverjar á togaranum höfftu komift auga á mig. Magnús lá á lestarlúg- unni Ekki gekk áfallalaust aft bjarga mér um borö. Þeir togaramenn höföu náö í krókstjaka sem varmjög þung- ur og þegar þeir voru aö reyna aö krækja I mig tókst ekki betur til en svo aö þeir viöbeinsbrutu mig. Loks heppnaöist þeim aö krækja I hálsmáliö á stakknum og þannig var mér dröslaö um borö. Fyrsti maöurinn sem ég kom auga á var Gisli en honum höföu þeir getaö bjargaö fyrstum og nú kom ég auga á Magnús, þar sem hann lá á lestarlúgunni. Háseta á togaranum tók nú aö drífa aö og enn fremur kom stýrimaöurinn þarna og spuröi hve margir viö heföum veriö á bátnum. Þegar viö gátum sagt honum þaö hristi hann aöeins höfuöiö. Nú varfariö meö okkur afturá og vorum viö afklæddir á firplássinu en þetta var gamall gufutogari byggöur 1937. Hann hét Kingston Pearl og var frá Hull 600 tonn aö stærö og haföi veriö endurbyggður aö ein- hverju leyti. Rafn fannst aldrei Togaramenn geröu allt sem þeir gátu fyrir okkur, þeir reyndu aö koma i dikur hita meö öllum ráðum,báru okkur toddi og tróðu okkur i þurr fót sem þó voru öll svo h'til aö við vorum eins og strengdir kettir i þeim. Togarinn leitaði hinna i þrjár klukkustundir og eftir klukku- tima fannst Höröur og var hann enn meö belgina. Við reyndum aö koma lifi i hann og reyndum áfram alveg þar til hann var tekinnaöstirðna. Þaökomlljós við læknisrannsókn aö hann haföi þegar verið drukknaöur þegar viö fundum hann. Rafn fannst aftur á móti aldrei enda voru skilyröi til leitar mjög slæm. óljósar fréttir Togarinn reyndi áö send_a til- kynningu um slysiö út i gegn um talstöðina en sú tilkynning var óljós og lengi vissi enginn hverj- ir komizt höföu af og hverjir ekki. Það var ekki fyrr en samband náöist viö varöskip sem þaö tókst og biöu menn þvi á Suöur- eyri milli vonar og ótta eftir nánari fréttum. Til dæmis frétti konan min Olga Guömundsdótt- ir þaö úti á götu hvernig fariö heföi, en vissi ekki um hvort ég væri meðal þeirra sem björg- uöust. Ég haföi kvænzt I desem- ber og viö nýlega eignazt okkar fyrsta barn og þaö reyndi ég aö þaö er rétt sem sagt er, aö I llfs- háska svlfi liðin atvik ævinnar fyrir hugskotssjónum manna þvi einmitt þetta leitaöi sifellt á mig meöan ég barðist fyrir llf- inu I sjónum. Kingston Pearl lá 1 þrjá daga á tsafiröi meöan sjópróf fóru fram og ég man aö skipstjórinn var mjög niöurbrotinn sem og okkar skipstjóri GIsli Guö- mundsson. Útgerö togarans mun hafa þurft aö greiöa tveggja milljón króna tryggingu áöur en togarinn fékk aö halda út aö nýju og var þaö mikiö fé þá. Viö skipbrotsmennirnir fengum nokkrar bætur fyrir vertiöartap og fleira, þótt lang- an tlma tæki aö ná þessu út. Þau uröu endalok Kingston Pearl að ári siöar á mjög svipuöum slóðum og slysiö varö á, kom uppeldurl honum og var hann dreginn alelda til Isa- fjarðar, þar sem loks var slökkt i honum en áhöfnin hafðist viö i brúnni þar til landi var náö. Aftur á sjó Þegar Súgfirðingur var farinn var engan bát að hafa I hans staö og var ég því I landi um hríð eöa þar til ég réð mig loks á mótorbátinn ölduna meö þeim Guömundi Magnússyni og Páli Janusi. Ég bjó á Súgandafirði á árun- um 1948 til 1963, þegarég fluttist til Reykjavikur og var ég stööugt viö sjómennsku, nú siöast á rannsóknaskipinu Haf- þóri sem ég byrjaöi á 1968 og var fyrsti vélstjóri á I sjö ár. Súgandafjarðar og Súgfiröinga minnist ég alltaf meö ánægju og kannski eftirsjá. Þar býr gott fólk i fagurri byggð. þingismaður og Ásta Norðmann. Okkur lék forvitni á að vita meira um þessa gömlu mynd og höfðum því samband við þá Krist- in og Einar. Kristinn fræddi okkur á Iþví, að hann hefði verið við hagfræðinám í Berlín, er þessi mynd var tekin. Þeir hefðu stundum hitzt islenzku námsmennirnir, þar i borg og farið saman á kaffihús. ( einni slíkri ferð hefðu þeir ákveðið að láta taka mynd af sér. Staðurinn hefði verið val- inn rétt hjá Brandenborg- arhliðinu, nánar tiltekið fyrir framan Sigursúl- una. Við báðum Kristin að segja okkur frá einhverju skemmtilegu atviki frá þessum dögum, helzt eitt- hvað frá því fólki sem með honum var á mynd- inni. Hann kvaðst nú ekki muna mikið, en þó væri eitt atvik minnisstætt í samband við Haildór Laxness, sem þá var að læra þýzku þar ytra. Hann hefði eitt sinn komið til sín snemma morguns og þeir siðan farið á kaffistofu að fá sér morgunsopa. Kristinn bað hann þá að spreyta sig á þýzkunni og panta kaff ið. Gekk það eitthvað brösótt þangað til Halldór segir heldur hvatskeytis- lega „Wie es das, sprechen Sie Nicht Hoch- deutsch?" („Hvernig er það, talið þér ekki há- þyzku?"). Þjóninn firrt- ist heldur betur við, enda engin furða því hann var líkast til atvinnulaus prússneskur liðsforingi, en atvinnuástand var harla bágborið um þessar mundir. Eins og áður er getið er Einar Olgeirsson einnig á þessari mynd. Blaða- manni Tímans tókst að. hafa upp á honum og bað hann um upplýsingar varðandi myndina. Einar kvaðst hafa verið við nám i Berlín á þessum tíma og lagt stund á bók- menntir og tungumál. Þetta hefðu verið skemmtilegir tímar og yfir Berlin hefði hvílt al- þjóðlegt andrúmsloft. Þarna hefðu verið við nám ungir menn frá öll- um heimshornum, þ.á.m. Cou-En Lai seinna for- sætisráðherra Kína. Ekki kvaðst Einar hafa þekkt hann þá. Við spurðum Einar hvort hann hefði verið orðinn sósialisti er þetta var og hvað hann svo hafa verið. Hann hafi gengið í gamla jafnaðar- mannaf lokkinn 1921 skömmu áður en hann fór utan. Einar sagði að þeir hefðu búið saman um tíma Kristinn, Stefán Pétursson, síðar ritstjóri Alþýðublaðsins og hann. Halldór Laxness hefði þá komið til þeirra og við það tækifæri var efnt til myndatökunnar. Skömmu seinna hefði hann farið til Frakk- lands, þar sem hann fékk sig skírðan til kaþólskrar trúar. H.R. — í síðasta sunnu- dagsblaði Timans, rifjar Ásgeir Bjarnþórsson upp kynni sín af Halldóri Lax- ness, frá þeim tíma, er þeir dvöldust báðir í Kaupmannahöf n. Var það veturinn 1919-1920. Þar segir hann ennfrem- ur frá því, að þeir hafi hitzt aftur í ársbyrjun • 1922 og þá í Berlín. Tímanum áskotnaðist gömul mynd frá þessum dögum í Berlín, sem þeir félagar Ásgeir og Halldór eru á. Ásamt þeim eru á myndinni Kristinn Guð- mundsson fyrrverandi sendiherra, Einar 01- geirsson fyrrverandi al- Við Sigursúluna í Berlín 1922. Talið frá vinstri eru á myndinni: Kristinn Guðmundsson, Ásgeir Bjarnþórsson, Ásta Norð- mann, Halldór Laxness og Einar Olgeirsson. Gömul mynd af góðu fólki EflBBSEC

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.