Tíminn - 06.08.1978, Blaðsíða 2
2
Sunnudagur 6. ágúst 1978
Dufgus:
Sálarflækjur Vilmundar
Vilmundur Gylfason skrifaði grein i Timann um dag-
inn. Ég las þessa grein. Ég hef sannfærst um að i
greinum hans ekkert nýtilegt aö finna. Það sé þvl vit-
legra að eyða timanum i lestur annars efnis og upp-
byggilegra. Þó hef ég hugsað mér aö lita i það sem frá
honum kemur stöku sinnum i framtiðinni. Af rikri
samúö með mannlegri reisn þykir mér ritmennska
hans sorgleg og vænti þess af einlægni að hann eigi eft-
ir aö skrifa sig frá spillingunni og komast til manns.
Þegar ég sá aö hann var farinn aö skrifa i Timann þótti
mér ekki örvænt um að þáttaskil væru oröin i lifi hans,
hann hefði nú lokiö við aö skrifa sig frá þeim inni-
byrgöu flækjum af völdum pólitiskrar spillingar sem
öll hans skrif hingað til hafa einkennst af.
En svo var ekki, þvi miöur. Hann býr ennþá viö sömu
sálarflækjurnar. Sá sem þetta ritar hefur yndi af að
lesa um sálfræöi þó aö ekki sé hannneinn sérfræðingur
á þvi sviöi. Hann hefur lesiö af athygli kenningarnar
um það hvernig viðurstyggileg atvik geta brennt sig
inn i barnssálina og valdið mönnum óbærilegum sálar-
kvölum á fullorðinsárum og á þvi er engin lækning
önnur en sú að tala eöa skrifa sig frá þvi. Hann hefur
lika lesið kenninguna um að morðingi leiti alltaf á
morðstaöinn aftur. Þaö þurfi ekki annaö en að biða
hans þar. Fyrr eða siöar komi hann aftur og komi upp
um sig.
Vilmundur kemur alltaf aftur
Það fer ekki hjá þvi aö við lestur greinar Vilmundar i
Timanum sannfærist maður um réttmæti þessara
kenninga. Vilmundur ræöir um spillingu i Fram-
sóknarflokknum, en sálarflækjurnar eru erfiöar og
morðstaðurinn dregur til sin, þannig aðalla greinina út
i gegn er hann aö ræöa um spillingu i Alþýðuflokknum,
þau sár sem barnssál á mótunarárum fékk I andrúms-
lofti pólitiskra samsæra og undirferla. Þaðan eru hug-
myndir hans komnar þó svo aö hann reyni að yfirfæra
þetta allt á Framsóknarflokkinn.
Vilmundur segir Framsóknarflokkinn vera á kafi i
fyrirgreiðslupólitik. A sama tima er annar maöur að
skrifa grein i Visi um Framsóknarflokkinn. Þetta er
gamall framsóknarmaöur sem fyllst hefur gremju út I
flokkinn en dáist i sama mæli aö Vilmundi. Gremja
hans út i Framsóknarflokkinn stafar af þvi að flokkur-
inn hefur brugðist i fyrirgreiðslupólitikinni. Hann hafði
starfað lengi fyrir flokkinn og taldi sig eiga rétt á þægi-
legu embætti á vegum rikisins að launum. En Fram-
sóknarflokkurinn brást. Þetta hefði aö sjálfsögðu
aldrei komiö fyrir i Alþýðuflokknum. A mótunarárum
Vilmundar var það viðburöur aö nokkur gengi i Al-
þýðuflokkinn nema i von um embætti. Þetta hefur
brennt sig inn i sál hans.
„Framsóknarflokkurinn hefur righaldið i óréttláta
kosningalöggjöf til þess að halda meiri völdum en kjör-
fylgi hans gæfi tilefni til”, segir Vilmundur. Ekki ætla
ég hér aö fara aö útskýra skoðanir framsóknarmanna
á kosningalöggjöfinni, en það vill svo til að þær hafa
ævinlega mótast af þvi hvaö liklegast væri að skapaði
mesta festu i stjórn landsins. En sú kosningalöggjöf
sem við búum nú við og allir eru sammála um aö valdi
hinu mesta óréttlæti er sett þegar Alþýöuflokkurinn
var einn við völd i landinu. Hún er samin aö frumkvæði
Alþýðuflokksins með stuðningi Sjálfstæðisflokksins og
Alþýöubandalagsins. Það sem brennt hefur sig inn i
viðkvæma sál á mótunarstigi er pukrið um það hvernig
þessi kosningalöggjöf gæti þjónaö Alþýðuflokknum til
valdaaðstöðu. Alþýðufiokkurinn sat i rikisstjórn tólf
fyrstu árin eftir aö þessi kosningalög eru sett.
Utflutningsbætur
frá Alþýöuflokknum
„Framsóknarflokkurinn hamaðist gegn frjálsum
viðskiptum I upphafi viðreisnar. Frjáls viöskipti komu
i veg fyrir, aö hægt væri aö veita bændum og öðrum
jeppaleyfi og öll leyfin. Kjörfylgiö hvildi á leyfunum”.
Þetta segir Vilmundur. Meö öðrum oröum: Kjörfylgi
Framsóknarflokksins hvildi á þvi aö Alþýöuflokkurinn
veitti leyfi. Þarna er hann nú að tala um eitthvaö ann-
að en Framsóknarflokkinn. Vilmundur spinnur langa
sögu um uppbætur á landbúnaöarvörur og telur sig
vera að tengja Framsóknarflokkinn við þá sögu. Nú er
það svo að uppbætur á landbúnaðarvörur eru regla i
öllum löndum Vestur- og Norður-Evrópu og getum vlð
varla komist hjá slikum uppbótum á meöan svo háttar
til. Og tvisýnt getur það talist að Framsóknarflokkur-
inn hafi einn ráðið þeirri þróun. Að minnsta kosti hefur
það heyrst að aörir flokkar hér á landi væru skyldari
jafnaðarmannaflokkum Norðurlanda, sem hafa staðið
fyrir þessari þróun þar.
En nú vill einnig svo til aö uppbótakerfiö hér hófst á
annan hátt en þann að það sé hægt aö telja það vera
fyrirgreiðslupólitik við bændur. Það voru aðrir en
framsóknarmenn sem stóðu fyrir þvi aö byrjaö var að
falsa visitöluna með niðurgreiðslum. Uppbótakerfið
sem hér reið húsum i hálfan annan áratug átti upptök
sin i nýsköpunarstjórninni, en þar komu nú alþýðu-
flokksmenn meira við sögu en framsóknarmenn, eins
og öllum ætti að vera kunnugt. Meira að segja útflutn-
ingsuppbætur á landbúnaðarvörur veröa ekkert raktar
nema til Alþýöuflokksins. Ef til vill hefur þetta allt
saman brennt sig inn i barnssálina. Alþýöuflokkurinn á
svo þakkir skildar fyrir það að taka þátt I þvi að upp-
bótakerfið gamla var afnumiö og að standa gegn þvi að
það yröi tekið upp að nýju nú.
Húsbyggingasjóðir
og fjármálaumsvif
Vilmundur gefur ýmislegt i skyn um húsbygginga-
sjóö Framsóknarflokksins og fjármálaumsvif. Ekki
hefur hann lengi þurft að leita til þess að gjörþekkja
þau mál á þann hátt sem hann skrifar um þau. Viö-
kvæma barnssálina sviður undan Alþýöuhúsinu, Iðnó
og Alþýöubrauðgerðinni. Það hefur þurft harðnaða sál
til þess að þola fjármálaumsvif Alþýöublaösins, þar
sem hlutafélög voru stofnuð og þau látin fara á hausinn
og ný stofnuð. Það er nauösynlegt að koma þessu yfir á
einhvern annan flokk til þess að geta haldið sæmilegri
sálarró. Ekki ætla ég að leiða getum aö þvi hvaöan
hann hefur fyrirmyndina að þeirri lýsingu sem hann
gefur ráðherrum. Það verða aðrir að gera.
En þó að það sé athyglisvert sem Vilmundur tinir til
um spillingu er hitt þó enn athyglisveröara hverju
hann sleppir. Hann sakar Framsóknarflokkinn t.d.
ekki um fjársnikjur erlendis. Þetta hygg ég verá sönn-
un fyrir þvi að Alþýðuflokkurinn hafi ekki stundað slik-
ar snikjur lengi, þaö hafi ekki gerst á þeim árum þeg-
ar sál Vilmundar var viökvæmust fyrir spillingu. Sið-
ustu tvö til þrjú árin hefur sál hans veriö svo hörönuö
að hún kippir sér ekki upp við annað eins og erlendar
fjársnikjur, og jafnframt hverfur þörfin fyrir aö klína
þvl á aöra.
BÍLAPARTA-
SALAN
auglýsir
NYKOMNIR VARAHLUTIR I:
Land Rover árg. 65
Chevro/et Nova - '67
Saab - '68
Hillmann Hunter - '70
Wil/y's - '54
Vo/kswagen 1600 - '69
BÍLAPARTASALAN Höföatúni 10 — Sími 1-13-97
& ÚTBOÐ
E&SEG Hitaveita Akureyrar óskar eftir tilboðum i lagningu dreifikerfis Hitaveitu á Akureyri, áfanga 5b. útboðsgögn eru afhent á skrifstofu Hita- veitu Akureyrar, Hafnarstræti 88b, gegn 30 þús. kr. skilatryggingu. Tilboð verða opnuð á skrifstofu Akureyr- arbæjar, Geislagötu 9, Akureyri, miðviku- daginn 9. ágúst, kl. 11 f.h.
&
Hitaveita Akureyrar.