Tíminn - 06.08.1978, Blaðsíða 35
Matsveinn aöstoöar meö grisinn.
Timamynd: Kóbert. lllaðboröiö: grisahryggur, siidarréttir, salöt, ostar og ávcxtir.
Eigendur og hótelstjóri Borg-
arinnar buöu blaöamönnurh' til
hádegisverðar á fimmtudaginn
til að kynna nýjan matseöii og
skipan i hádeginu. Hugmyndin
er sú, að menn geti skotist inn á
Borg um miðjan dag og fengið
sér að borða — einn rétt eða
marga, á 15 minútum eða þrem-
ur klst., allt eftir efnum og
ástæðum. Forstöðumaður þess-
arar nýjungar er Friðrik Gisla-
son, skólastjóri Hótel- og veit-
ingaskólans, sem annast hótel-
stjórn i sumar. Jafnframt hefur
Friðrik staöiö fyrir breytingum
á salarkynnum, sem miða að
þvi að skilja aðalveitingasalinn
frá „gyllta salnum” (sem einu
sinni hét), en i gættinni milli
hinna tveggja sala stendur hlaö-
borðið.burðarás hins nýja siðar i
átlist á Borginni. A hlaðborðinu
er hvern dag einn heitur réttur,
ásamt sildarréttum, ýmiss kon-
ar salötum og brauði. Búðingur
og kex með osti fylgja. Hlað-
borðsmáltiðin kostar um 4700 en
„hlaðdiskur” kr. 1800. Auk þess
geta þeir sem vilja taka hádeg-
isverðinn alvarlegri tökum, val-
ið sem fyrr af „matseðli dags-
ins” eða „á la carte”.
Eins og allir vita eru sildar-
réttirnir á Borginni löngu
heimsfrægir, enda hafa kunn-
áttumenn i sild og aðrir sælker-
ar átt þarna marga gleðistund i
hálfa öld. Friðrik tjáði okkur, að
meginhugmyndin með hlað-
borðinu væri sú, að hafa á boð-
stólum „létt kalt borð á hverj-
um degi”, ólikt hinu hefðbundna
kalda borði sem Borgin hefur
löngum verið með á laugardög-
um, og svignar af steikum fugla
og spendýra, ásamt löxum,
humrum, rækjum, og öðrum
frægum átfiskum. Sem
dæmi um hlaðborðs-snarl i há-
deginu mætti taka sildarrétti
með brauði i fyrstu ferð, heitan
grisahrygg með hrisgrjónum og
karrýsósu, ásamt grænmetis-
salati (4sósur) i annarri, og kex
með osti og ávöxtum i hinni
þriðju. Með slika undirstöðu
geta menn óhræddir sveiflað
sér aftur út i viðskipta- og at-
vinnulifið, sáttir við guð og
menn, enda var okkur sagt að
hlaðborðið hafi mælst vel fyrir
jafnt meðal fastagesta sem ann-
arra.
Fimmtugsafmæli í aö-
sigi.
Aron Guðbrandsson stjórnar-
formaður og einn af eigendum
Borgarinnar, skýrði okkur frá
sögu Borgarinnar. Jóhannes Jó-
sepsson og frú Karólina komu
heim frá Ameriku árið ’29 og
lögðu fé sitt i að byggja Hótel
Borg. Borgin var opnuð i janúar
1930, og var þá eitt finasta hótel
á Norðurlöndum, kostaði með
Borgin
með nýja
réttaskrá
Viö hlaöboröið, Friörik Gislason, hótelstjóri næstur.
Eftirmenn Jóhannesar á Borg (frá vinstri), Sigurjón Ragnarsson (Guölaugssonar i Hressingarskálanum),
Arni Fannberg (Jónsson), Hólmsteinn Sigurösson (mágur Pétur Danielssonar) og Aron Guðbrandsson.
öllum húsbúnaöi yfir eina millj-
ón króna. Tiðindamaöur Morg-
unblaðsins lýsti þessu svo:
„Snælduhurðin i fordyrinu þaut
i sifellu, inn streymdu gestir.
En þó allmargir komi i einu
ber ekki á þrengslum, þvi 50
borð eru i aöalveitingasalnum,
og yfir 150 sæti en 100 stólar meö
smáborðum i „gyllta salnum”,
sem standa utan með
dansplássinu. Jóhannes hótel-
eigandi var að ganga frá mat-
seðlum gildaskálans, eða
„réttaskrám”, sem hann nefnir.
Þar rek ég augun i margt ný-
stárlegt, bæði nöfn og verðlag.
„Cabaret” heitir fjölmeti á
Borg, og kostar 3 krónur en
miðdegisverður kostar kr.
2.50.”
Þvi Jóhannes vildi hafa reisn
yfir hlutunum: glæsilegt hótel
og glæsilega hótelmenningu,
með islenskum nöfnum á rétt-
unum. Þá orti Tómas:
„Arveig drukku ýtar fyrst,
umlaði þá i seggjum.
Borðuðu svo með bestu lyst,
bauta með pönnueggjum.”
Þvi miður hefur ekki tekist
jafnvel með nýja matseðilinn:
ég tel 32 villur i enska textanum,
3 i hinum islenska og eina i vin-
skránni. Þetta verður að
leiðrétta snarlega.
Nýir eigendur tóku við rekstri
Borgarinnar 1. janúar 1960, þeir
Aron Guðbrandsson, Jón Fann-
berg, Ragnar Guölaugsson og
Pétur Danielsson. Pétur
Danielsson var hótelstjóri, en
féll frá i júli 1977. Þá tók Stein-
unn Thorlacius við rekstr-
inum, og nú i sumar Friðrik
Gislason, sem fyrr sagði.
Og sitthvað hefur breytst
þessi 50 ár. Matsölustöðum
hefur að visu fjölgað i bænum,
en það hefur bæjarbúum lika
gert, en jafnframt hefur það
orðið hlutfallslega æ dýrara að
„borða úti". Fyrst eftir striðiö
var það t.d. ódýrara að fara á
Borgina en að borða sunnu-
dagamatinn heima (sagði Frið-
rik Gislason mér.. en hann hóf
feril sinn á Borginni um þær
mundir), og þannig á það auð-
vitað að vera. Þau gleöitiðindi
berast nú frá Vesturheimi. að
vinsældir magasárs- og hjarta-
slagsfæðu (TV dinners, ham-
borgarar) fari nú mjög dvin-
andi, og menn sæki fremur út á
matsölustaði að borða heldur en
að vera að gutla þetta hver i
sinu horni. Raunhæfasta leiðin
til að skapa ..lifandi miðbæ”
hefur ekkert með Hallærisplan-
ið eða Fjalaköttinn aö gera —
hún er sú, að gera mönnum
kleift að komast út úr eldhúsinu
og niður i bæ. til að borða og
hitta vini sina. Það mun fara
saman. að miðbærinn „lifnar
við”, og snælduhurðin á Borg-
inni fer að þjóta i sifellu.
Sig.St.