Tíminn - 06.08.1978, Blaðsíða 3
Sunnudagur 6. ágúst 1978
3
Fjórir á NM unglinga
í siglingum
— sem haldið verður 9.-13. ágúst
HR—Flugvélin sem við sjáum á þessari mynd
hefur reyndar ekki séð dagsins ljós nema i
hugum visindamanna. Tilheyrir hún kynslóð
framtíðarinnar ef svo má segja og verður e.t.v.
arftaki hinnar hljóðfráu Concorde. Það sem
telja verður markverðast við þessa nýju vél er
hin sérkennilega lögun vængjanna. Eins og sjá
má á myndinni leika vængirnir á öxlum, annar
visar fram en hinn aftur, þannig að flugvélin
verður eins og fljúgandi skæri. Ástæðan er ekki
sérviska einhverra spakviturra visindamanna
heldur sú að loftmótstaða vængsins er lang-
minnst með þessu móti — mun minni en ef báð-
ir vængirnir væru afturdregnir.
ESE — 1 dag halda fjórir ungir
siglingakappar af staö áleiöis til
Danmerkur, þar sem þeir munu
halda uppi heiðri Islands á
Norðurlandamóti unglinga i
siglingum á svokölluðum Flipper
bátum, og er þetta i fyrsta skipti
sem unglingar héðan taka þátt i
stórmóti i siglingum erlendis.
Piltarnir, sem taka þátt i mót-
inu, heita Þór Oddsson, Sigurður
Ragnarsson, báöir úr siglinga-
klúbbnum Ými i Kópavogi, og
þeir Sigurður Hjálmarsson og Jón
Þ. ölafsson, félagar i Siglinga-
klúbbnum Brokey, Reykjavik.
Fararstjóri verður Friðrik Friö-
riksson stjórnarmaður i Siglinga-
sambandi íslands.
I viðtali sem blaöamaöur Tim-
ans átti við Brynjar Valdimars-
son, formann Siglingasambands
Islands, i gær.kom fram aö mikl-
ar vonir eru bundnar við piltana,
þó að ekki sé búist við að þeir
blandi sér i toppbaráttuna á mót-
inu. Brynjar sagði að siglinga-
menn vonuðu að þeir höfnuðu ein-
hvers staðar fyrir ofan miðju, og
ef það tækist, þá væru þeir
ánægðir.
I samtalinu við Brynjar kom og
fram, að mjög þróttmikið starf er
nú rekið innan Siglingasam--
bandsins, en félög innan þess
telja nú um 400-500 manns, og eru
þá ekki taldir með siglinga-
klúbbarnir Siglunes og Kópanes,
sem Æskulýðsráð Reykjavikur og
Tómstundaráð reka, en þeir eiga
ekki aðild að sambandinu.
A næstunni verður mikið um að
vera i siglingaiþróttinni, og sem
dæmi um keppnir sem haldnar
eru á vegum hinna ýmsu klúbba
innan S.I.L., má nefna að um
helgina verður haldin kjölbáta-
keppni á vegum Ýmis i Kópavogi,
en þeir bátar eru þeir stærstu sem
keppt er á hérlendis.
Þá verður um helgina 11.-13.
ágúst haldið landsmót i keppni á
„optimist” bátum, nokkurs konar
bjartsýniskeppni, og helgina þar
á eftir verður landsmót i flokki
„Fireball — Flipper” báta. Loka-
Siglt á bát af Flipper gerð á Fossvoginum.
keppni, sem er opin, verður siöan n.k. og er þaö siöasta mótið sem
haldin helgina 2.-3. september haldið er á vegum S.Í.L. i ár.
KAUPFELAG RANGÆINGA
HVOLSVELLI
býður ferðafólk
velkomið á
félagssvæði
sitt
mæta
KROFUAA TÍMANS
og bæta verzlunarhætti og verzlunarþjónustu í sýslunni
bjóðum við allar algengar dagvörur í verzlunum okkar ó
Hvolsvelli og Rauðalæk
d mun lægra verði gegn staðgreiðslu.
Einnig bjóðum við gott úrval af húsgögnum ó hagstæðu verði
í Vörumarkaði okkar á Hvolsvelli
Verið velkomin og
njótið góðrar þjónustu!
Á RAUÐALÆK rekum við:
mennar viðgerðir
Esso-þjónustustöð.
og býður því þjónustu sína meðal annars:
í nýtizku verzlun við þjóðveginn, þar
sem seldar eru allar hugsanlegar ferða-
vörur, ásamt öðrum nauðsynja og gjafa
vörum.
í söluskála þar sem eru á boðstólum
heitur matur, smáréttir, öl, gosdrykkir,
tóbak og sælgæti fram til kl. 23.
i bifreiðaverkstæði sem annast allar al-
mennar viðgerðir, smyr, bætir o.fl.
i Esso-þjónustustöð þar sem ferðalangar
fá benzin, oliur og ýmsar vörur til bif-
reiðarinnar.
í Gistihúsinu Hliðarvegi 5, sem opið er
allt árið simi 99-5187. Gisting — Morgun-
verður.
IIkaupfélagioiI llllilllllllllllllllllllllllllllllllll!IIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIHIIII
r n WSMZMMm 1 m
M