Tíminn - 06.08.1978, Blaðsíða 5
Sunnudagur 6. ágúst 1978
v. VA'
5
Við hringveginn
1'Asbyrgi
Antík á
Yztafelli
Frá Vopnafirði er haldið á
mánudag, þar er mikil vinna, en
jafnvel i tómstundum þéna
menn peninga eins og sveitar-
stjórinn sem dró fisk fyrir um 65
þús. kr. um helgina. Frá Vopna-
firði er farið um Sandvikurheiði
i Bakkafjörð. Þar er höfnin
stóra mál staðarins, en allir
virðast vera að byggja. Norður-
enda vegarins yfir Sandvikur-
heiði er verið að endurbyggja,
en vegurinn frá Vopnafirði til
Raufarhafnar er nánast sam-
felld hraðbraut, nema helst
kaflinn yfir Brekknaheiði til
Þórshafnar.
Frá Raufarhöfn er haldið
vestur Melrakkasléttu til Kópa-
skers. Hluti vegarins er krókótt-
ur og niðurgrafinn, en fjörurnar
og vikurnar eru fullar af reka-
viði og öðrum gersemum sem
sjórinn ber á land.
Þarna er unnið að vegabótum
og þess ekki langt að biða að
troðningarnir verði horfnir með
öllu.
A Kópaskeri sjást i fljótu
bragði engin ummerki jarð-
skjálftanna miklu en ibúarnir
byggja og byggja.
Þar er gist á hótelinu i góðu
yfirlæti en ekið siðan i rigningu
áleiðis til Húsavikur. Ásbyrgi er
skoðað af þrjósku i rigningunni
en uppi eru heitstrengingar
þess efnis að þarna verði að
koma aftur, i góðu veðri
væntanlega, og skoða betur
Hljóðakletta, Hólmatungur og
Jökulsá.
í Kelduhverfinu sjást vel um-
merki jarðsigs og umbrota þrátt
fyrir dumbunginn. Þegar komið
er á Tjörnes, tekur hvert gilið
við af öðru, vegurinn verður
eins og risastór rennibraut. A
gilbarminum er að sjálfsögðu
ekið á 70 km hraða en af hrað-
anum i botni gilsins fer engum
sögum, en áfram er haldið á 70
þegar upp er komið.
A Húsavik gera menn út
stærsta trilluflota landsins ef
ekki heimsins. Þar er fögur
kirkja, handverk iðnaðarmanns
en ekki arkitekts.
Enn rignir, ferðafólk Guð-
mundar Jónassonar myndar
kirkjuna og þeysir siðan áfram
austur, en við vestur i átt til
Akureyrar, alltaf sömu hrað-
brautirnar.
Við Yztafell i Köldukinn er
verkstæði. Þar er að sjá margan
girnilegan grip: 1942 model
Dodge Cariol með upprunalegu
húsi, Ford skutbil 1950 og
nokkra Ford og Dodge bila,
’55-’56 módel. Þetta eru allt
gripir sem eru að verða
„antik”.
Vaðlaheiðin er sleip i rigning-
unni og þungir vörubilar flytja
möl efst af heiðinni i lagfæring-
ar neðst i brekkunum.
Þreyttir ferðalangar gista á
Eddu á Akureyri.
K.Sn.
LANDSINS BESTU
ÖLGERÐAREFNI:
HALLERTA U ÞÝSKU BJÓRGERÐAREFNIN:
lageröl, páskaöl og porter.
SUBARU
Til afgreiðslu strax
FRAMHJÓLADRIFSBÍLAR, sem veröa — FJÓRHJÓLADRIFS-
BILAR
meö einu handtaki inni í bílnum, sem þýðir, að þú kemst hvert sem
er á hvaða leið sem er.
SUBARU — með f jórhjóladrifi klrifrar eins og geit, vinnur
eins og hestur, en er þurftarlítíII eins og fugl.
SUBARU -skutbíll:
95 hestöfl — 1600 cc.
975 kg. Fjórhjóladrif
SUBARU Pickup, sem er til í allt:
94 hestöfl — 1600 cc. — 930 kg. Fjórhjóladrif.
og SUBARU
— ffyrir þá sem vilja komasff áffram
SUBARU -sportbill: nshestöfl—1600 cc. — aðeins 800 kg.
SUBARU
bílar með langa reynslu.
SUBARU - UMBOÐID
INCVAR HELGASON
Vonarlandi v/Sogaveg — Simar 84510 og 8451 1
HOLLENSK ÖLGERÐAREFNI:
CREAM OFHOLLAND, BITTER OF HOLLAND.
ENNFREMUR:
HERIFF, HAMBLETON, GRAHAMS, MUNTONA,
UNICAN, LARSENS, VIGNERON og EDME ölgerðar-
efni og vínþrúgusafar.
Mikið úrval af áhöldum og ílátum.
Póstkröfuþjónusta nú samdægurs.
HAFPLAST
P.O. Box 305 o
_ Ármúla 21, Tel: 82888 rp
105 Reykjavík
ÚTBOÐ
Hitaveita Akureyrar óskar eftir tilboðum i
smiði og fullnaðarfrágang á dælustöð
Hitaveitu Akureyrar við Þórunarstræti.
útboðsgögn verða afhent á skrifstofu
Hitaveitu Akureyrar, Hafnarstræti 88b,
frá 4. ágúst n.k., gegn 30 þús. kr. skila-
tryggingu.
Tilboð verða opnuð á skifstofu Akureyrar-
bæjar, Geislagötu 9, mánudaginn 14.
ágúst, 1978, kl. 11 f.h.
Hitaveitustjóri.