Tíminn - 06.08.1978, Page 8
8
■ Sunnudagur 6. ágúst 1978
stendur á eyr-i þeirri, sem land-
námsbærinn dregur nafn af.
Hún gengur út frá Norðurströnd
fjarðarins og myndar góöa höfn,
enda hefur margur sjómaðurinn
notið hvildar þar i skjóli hárra
fjalla þegar illviðri geisuðu á
Halamiðum. önfirðingar sóttu
lengi verslun til Þingeyrar eöa
Isafjarðar en 1823 var löggiltur
verslunarstaður á Flateyri.
Fredrik Svensen rak fyrstu
verslun á Flateyri, en siöan þeir
Hjálmar Jónsson og Torfi Hall-
dórsson, en við hann er kennt
Torfahúsið, sem sést framar-
lega á eyrinni. Torfi haföi lært
sjómannafræði i Kaupmanna-
höfn. Hann hélt sjómannanám-
skeið á Isafirði og Flateyri og
margir nemenda hans voru I
fremstu röð skipstjóra á skútu-
öldinni. Meðal þeirra voru hinir
dugmiklu Rósinkranzsynir frá
Tröð i önundarfirði en þeir
reistu sér myndarleg ibúðarhús
sem sjást standa ofar á eyrinni.
Fjallið til vinstri, handan
fjarðarins, heitir Þorfinnur, en
dalur Valþjófsdalur. I Vest-
firskum sögnum 2. b. er sögn
um landnám önundarfjarðar
skráð eftir Sveinbirni Magnús-
syni frá Skáleyjum.
Hans Ellefsen hét norskur
maður, sem hóf hvalveiðar frá
önundarfirði 1889. Stöö sina
reisti hann á landi Eyrar og
nefndi Sólbakka. Hún varð
sennilega sú stærsta hérlendis.
Lengst af veiddu fimm bátar
fyrir stöðina og á árunum 1889-
1900 komu þar að landi 1236
steypireyðar, 732 langreyðar,
126 hnúfubakar, 17 sandreyöar
og nokkrir sléttbakar. Stöðin
brann i ágústbyrjun 1901 og
varð ægilegt bál er hús loguðu i
kvöldkyrrðinni og sjóðandi lýsið
rann út á höfnina. Ellefsen
hugðist byggja nýja stöð á Hóli
á Hvilftarströnd. Hlaðinn var
mikill reykháfur og skipi sökkt I
bryggjuhaus. Ekki varö úr frek-
ari framkvæmdum, enda fækk-
aði nú hvölum á Vestfjarða og
Norðurlandsmiðum og önnur
stöð var reist i Mjóafirði. Eftir
nokkur ár þar fluttist Ellefsen
af landi brott og hóf veiðar við
Suður-Afriku. Ellefsen var
áhugasamur um málefni ön-
firðinga enda naut hann vin-
sælda og virðingar. Hann var
góður vinur Hannesar Haf-
steins, sýslum. Isfirðinga og
siðar ráðherra, og þegar
Hannes fluttist suður til þess að
taka við ráðherrastörfum, seldi
Ellefsen honum hús sitt á Sól-
bakka fyrir 5 krónur. (Hann
mun ekki hafa talið rétt að gefa
Isl. ráðherra slika gjöf). Húsið
var flutt til Reykjavikur og hef-
ur sómt sér vel á fögrum stað
við Tjörnina.
Flateyri
Sólbakki
Ingólfur Davíðsson:
Byggt og búið
ígamla daga
1 þessum þætti höldum við til
önundarfjarðar. Sumarmynd-
ina frá Sólbakka tók Björn Páls-
son ljósmyndari á tsafiröi, i
hliðinni fyrir ofan Sólbakka
aldámótaárið. A Flateyrar-
myndinni stendur K. Rósin-
kranzson, og rituð er á kortið
kveðja 1911. Myndin af húsi
Ellefsens, sem nú er ráðherra-
bústaður, var tekin 12. júni 1976.
„önundur Vikingsson, bróðir
Þórðar i Alviðru, nam önundar-
fjörðallan og bjó á Eyri” segir i
Landnámu. Kauptúnið Flateyri
Horft yfir Sólbakka aldamótaárið
I I i i ‘ >
Ráðherrabústaðurinn I Tjarnargötu 32 12/6 1976
j-