Tíminn - 06.08.1978, Side 19
Sunnudagur 6. ágúst 1978
19
bókmenntir
Halldór Kristjánsson:
Höfuðsynd
kynslóðar-
innar
Poul Vad
Hin litilþægu
tJlfur Hjörvar islenskaði
Bókaútgáfa Menningarsjóðs.
Siðastliðið haust kom út hjá
Menningarsjóði skáldsagan Hin
litilþægu eftir danska skáldið
Poul Vad i þýðingu Úlfs
Hjörvar.
Þetta er ekki stór bók, tæpar
150 blaösíður. Hún segir frá
dönsku fólki siðustu ára. Tima-
tal sögunnar gæti verið þannig
að hún gerist fyrir 10-15 árum og
segir einkum frá fólki sem þá er
um og yfir fertugt.
Ekki er þetta saga mikilla
atburða. Höfundur sýnir okkur
umhverfi fólksins, viðbrögð
þess og hugarheim. Þetta er
fólk sem ekki hefur sérstakar
áhyggjur af fjármálum sinum
yfirleitt. Það býr i velferðar-
þjóðfélagi. Félagsskap þess og
samkvæmum er lýst. Það lætur
eftir sér að njóta lifsins. Þó er
bókin alls ekki gerö til að lýsa
lifsgleði eða lifsnautn. Þetta
fólk brestur slikt yfirleitt.
Sögupersónur eru með ýmsu
móti. Hinrik t.d., en frá honum
segir einna mest, er virðulegur
og vel settur skrifstofumaöur
sem á sér konu sem annast
heimilið vel og leggur kapp á að
hafa styttur á hillum. Súsanna
hins vegar lætur sér nægja
appelsinukassa fyrir matarborð
og hægindastól og margt er þar i
milli i manngerð og búnaði.
Ég held að oröið litilþæg komi
ekki fyrir nema einu sinni i bók-
inni. Þá er Hinrik að tala við
móður Súsönnu. Hann er kom-
inn þar i hugsunum sinum að
hugurinn dvelur við „eitthvað i
hægum æðaslætti hversdagsins,
á heimili hans, i lifi barna hans,
hjá vinum hans, og ööru hvoru
gafst einnig ráörúm til þakklæt-
is, kyrrláts þakklætis dálitla
stund, eins og svali á alltof
heitum sumardegi”. Honum er
ljóst að lán hans og yndi á kom-
andi tima er bundið viö þetta
eitthvaö. En sum gömlu hugtök-
in segja ekki neitt. Þau eru
eiginlega oröin gagnslaus. Upp
úr þessu fer konan að tala um
skilningsleysi sitt. „Eöa
kannske er ástæðan sú að það
eru ekki gerðar jafnmiklar
kröfur lengur.”
„Já-á, þaö má vera. Við erum
i rauninni býsna litilþæg.”
Þetta er lausnarorðið. Þessi
kynslóð er litilþæg. Hún er svo
litilþæg að hún ætlar sér ekki
verkefni sem nafn er gefandi.
Hún setur sér ekki það mark að
breyta heiminum. Þess vegna
er hún gæfulaus. Þess vegna er
hún glötuð. Daglegt brauðstrit
er ekki svo erfitt og tvisýnt að
það heimti hug hennar allan og
alla orku. Lifið var að vissu leyti
þolanlegra á hernámsárunum
þegar menn lögðu sig i hættu við
skemmdarverk sem ýmislegar
skelfingar fylgdu. Þá var eitt-
hvað i húfi, eitthvað lagt i hættu,
fyrir einhverju barizt. En lifs-
trúin er brostin, og þar meö er
horfiö sérhvert takmark sem
einhvers er vert og veizlurnar
eru vanmáttug tilraun að hafa
af sér leiðindi. Slik eru örlög
þeirra sem eru svo litilþæg aö
þau ætla sér ekki að frelsa
heiminn. Það er höfuðsynd.
Eitthvað þessu likt virðist
mér að það sé sem Poul Vad er
að sýna með þeim myndum sem
hann dregur upp i þessari bók.
Sjálfsagt er þetta orðalag fjar-
lægt honum.En gamai þætti mér
að vita hvort lesendur sjá ekki
þennan hugsanaferil opnast
þegar þeir hafa verið um stund i
félagsskap þessa fólks sem
Úlfur Hjörvar hefur hér
islenzkað.
H.Kr.
Bændur
Ekki er nauðsynlegt að kaupa
HEYYFIRBREIÐSLUR
á hverju ári. Yfirbreiðslur úr gervistriga
fúna ekki. Fást i næsta kaupfélagi
Pokagerðin Baldur
Stokkseyri — Simi 99-3310
Þú tekur bíl á leigu á
AKUREYR!
BEYKJAVIK
eg skilar honum i Reykjavík eða öffugt
Meðal annarn
VW-1303/ VW-sendiferðabílar, VW-
Microbus — 9 sæta, Opel Ascona,
Mazda, Toyota, Amigo, Lada Topas, 7-
9 manna Land Rover, Range Rðver,
Blazer, Scout.
Bílaleiga Akureyrar
Reykjavik: Siðumúla 33, Simi 86915
Akureyri: Simar 96-21715-23515